Ægir - 01.08.2011, Qupperneq 16
14
Brimrún ehf.
Hólmaslóð 4
101 Reykjavík
Sími 525 0250
www.brimrun.is
Furuno Norge hefur þróað nýjan höfuð-
línusónar, TS-337A, í samstarfi við
kanadíska fyrirtækið Imagenex . Prófanir
um borð í norskum skipum hafa farið
fram og árangurinn er orðinn sá er
stefnt var að og hefur tækið þegar verið
selt til nokkurra norskra skipa . Brimrún
hefur nú sónarinn til sölu og sýnir hann
á Íslensku sjávarútvegssýningunni nú í
september .
Íslendingurinn Gunnar Grímsson,
sölustjóri hjá Furuno Norge, hefur tekið
þátt í hönnunar- og þróunarferli
sónarsins . Hann verður á bás Brimrúnar
og mun veita allar upplýsingar um tækið
ásamt öðrum starfsmönnum Brimrúnar .
Byltingarkennt tæki
„Með tilkomu nýja OMNI höfuð-
línusónarsins frá Furuno Norge má
reikna með að svipuð bylting verði við
leit að fiski og þegar gömlu sónartækin,
sem steppuðu með 5° millibili borð í
borð, viku fyrir Omni sónurunum,“ segir
Lárus Grímsson, sölumaður hjá Brimrún .
„Í eldri tækjunum tók þetta sónarinn frá
2-3 mínútum og jafnvel enn lengri tíma,
allt eftir því á hvaða skala verið var að
leita . Það var því sannkölluð bylting
þegar OMNI sónarinn kom á markaðinn
og sónarinn sendi út, með einni
sendingu, allan hringinn eða 360° . Þar
sem það gat verið allt of tímafrekt að
láta eldri tækin leita allan hringinn og
hætta á að fiskur tapaðist voru menn að
láta tækin leita borð í borð, oft ca . 45°
fram og til beggja hliða . En leitun með
þessum hætti tók samt nokkrar mínútur .
Það var því stórkostleg framför þegar
OMNI sónararnir komu á markaðinn .
Skipstjórarnir fengu um hæl frá hverri
sendingu, allan hringinn, gríðarlegt
magn upplýsinga,“ segir Lárus .
Það sama á við um þennan nýja
höfuðlínusónar frá Furuno Norge, hann
sendir út allan hringinn í einni sendingu .
Í dag notast öll skip í íslenska fiskiskipa-
flotanum, sem eru á flottrollsveiðum, við
höfuðlínusónara sem hafa sömu upp-
byggingu og gömlu sónararnir sem lýst
er hér að framan . Þeir senda út
ákveðinn gráðufjölda í senn í hverri
sendingu og það tekur því tækið nokk-
urn tíma að fara borð í borð . Það getur
verið erfitt að bíða eftir upplýsingum frá
tækinu þegar verið er að draga flottroll
nærri botni eða í botni þar sem hólótt er
og botnlagið ekki þekkt . „Þetta breytist
nú með nýja Furuno sónarnum, þar sem
allar upplýsingar koma með einni
sendingu . Skipstjórnarmenn sjá alla
opnun trollsins í einni sjónhendingu -
höfuðlínuna, fótreipið, hliðarbyrði, inn-
komuna inn í trollið og lögun trollsins - í
hverri sendingu . Það er ómetanlegur
kostur,“ segir Lárus .
Gunnar Grímsson hjá Furuno Norge með hluta sónarsins .
Brimrún frumsýnir
nýjan höfuðlínusón-
ar frá Furuno Norge