Ægir - 01.08.2011, Page 28
26
VOOT var stofnaði í Reykjavík árið
2003, en stofnendur eru Vignir Óskars-
son og Óskar Þórðarson . Nafn fyrir-
tækisins er skammstöfun eigendanna
en aðsetur VOOT er í Reykjanesbæ .
Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi á
beitu og hefur það farið jafnt og þétt
stækkandi frá stofnun . Árlega flytur fyrir-
tækið um tvö þúsund tonn af beitu
hingað til lands en það þjónustar
margar af stærri línuútgerðum landsins,
jafnt sem smærri fyrirtæki .
„Okkar markmið hafa alltaf verið að
veita persónulega og trausta þjónustu,
jafnt til stórra sem smárra fyrirtækja . Við
höfum einnig þá sérhæfingu að vera
eingöngu í því að flytja inn beitu en ekki
veiðarfæri eða búnað líkt og aðrir gera .
Fyrst og fremst flytjum við inn smokkfisk
og saury sem er þær tegundir af beitu
sem komið hafa best út . Við bjóðum
upp á fleiri tegundir en reyndin er sú að
flestir sækjast eftir þessum tveimur,“
segir Óskar Þórðarson, framkvæmda-
stjóri VOOT .
Vinælar beitutegundir
Saury er fiskur sem náskyldur er geirnef
sem veiðist við Íslandsstrendur af og til .
Þetta er langvaxinn fiskur líkt og horn-
fiskar og getur orðið 40 sm að stærð en
er tíðast 25-35 sm þegar hann er
veiddur . Þessi fisktegund á heimkynni í
hlýjum og heittempruðum sjó og er
aðallega veidd við strendur Japans á
haustin . Aðalbirgjar VOOT á saury eru
fyrirtækin Ocean Trading Korea og Bai
Xian Wi Enterprise Co . Ltd . á Taiwan .
Saury hefur hátt fituinnihald sem helst
nokkuð stöðugt allt árið . Það sem gerir
hann að góðum beitufiski er hversu roð
hans er sterkt . Þetta gerir að verkum að
hann losnar síður af króknum og veiðir
því lengur en önnur hefðbundin beita .
Veiði á svokölluðum argentínskum
smokkfiski hefur brugðist að undan-
förnu og segir Óskar að margir
notendur hafi brugðist við því með því
að nota saury þess í stað . „Hvort
tveggja eru þetta góðar beitutegundir
en saury virðist samt meira alhliða fyrir
margar fisktegundir,“ segir Óskar .
Fáir milliliðir - hagstætt verð
„Öll okkar beita er sjófryst og kemur
hingað til lands beint upp úr skipunum .
Fiskurinn er í öskjum sem er handraðað
í gáma og hér fer þetta beint í Ísheima
hjá Samskipum . Þar er öskjunum raðað
á palla til smærri aðila en einnig fara
gámarnir beint til stærri viðskiptavina en
okkar kaupendur eru út um allt land .
Það eru því mjög fáir milliliðir á leiðinni
sem aftur gerir okkur samkeppnisfæra í
verðum,“ segir Óskar en auk þess að
selja íslenskum aðilum beitu hefur fyrir-
tækið einnig viðskipti við grænlenskar
útgerðir .
VOOT Beita ehf.
Hafnargötu 27
230 Reykjanesbæ
Sími 581 2222
www.beita.is
Sérhæfðir í beitunni
Eigendur VOOT, þeir Óskar Þórðarson (t .v) og Vignir Óskarsson, í heimsókn á Taiwan
þaðan sem fyrirtækið kaupir beitu .
Saury er önnur algengasta beitan hjá
VOOT . Þessi askja fór beint úr skipi til
Íslands og þar til viðskiptavina VOOT .
Saury skipað upp úr frystiskipi á Taiwan og
í flutning til Íslands .