Ægir - 01.08.2011, Qupperneq 30
28
Líkt og oft áður mun Scanmar kynna
nýjungar í nemaframleiðslu sinni og
stjórnbúnaði þeim tengdum á Íslensku
sjávarútvegssýningunni . Fyrirtækið hefur
í kvartöld verið í fremstu röð með þróun
á alls kyns nemabúnaði fyrir veiðarfæri
og þá miklu þróun segir Þórir Matthías-
son, framkvæmdastjóri Scanmar á Ís-
landi ehf ., ekki síst að þakka náinni sam-
vinnu við skipstjórnendur og útgerðir .
Þessi mikla nálægð og samvinna er
einmitt ástæða þess að Scanmar hefur
verið með starfsstöð hér á landi undan-
farin ár en íslenski markaðurinn er fyrir-
tækinu mjög mikilvægur .
„Á sínum tíma vakti þráðlaust
veiðistýringarkerfi frá Scanmar gríðar-
lega athygli í fiskveiðum um allan heim .
Tæknin gjörbylti öllu starfsumhverfi sjó-
manna og jók hagkvæmni togveiðanna .
Það má segja að þessi atriði séu ennþá
kjarninn í framleiðslu Scanmar eins og
notendur okkar búnaðar þekkja og
áhugasamir sýningar gestir munu geta
kynnt sér hjá okkur,“ segir Þórir .
Ný kynslóð hleranema
Scanmar er nú að koma fram með nýja
kynslóð af hleranemum sem fyrirtækið
hefur unnið að þróun á um nokkurt
skeið en segja má að þeir leysi af hólmi
búnað sem í grunninn hefur þjónað skip-
stjórnendum um 25 ára skeið .
„Við sýnum nýja gerð af SS4 nemum
sem hafa verið endurhannaðir með tilliti
til styrkleika og eru steyptir úr mun slit-
sterkara plasti en áður hefur þekkst . Það
skiptir miklu í því álagi sem nemar eru í
þegar veiðarfærið er dregið eftir botn-
inum .
Ný rafhlöðutækni verður líka kynnt og
ekki hvað síst er áhugaverð sú raf-
hleðslutækni sem við komum nú með
en tómar rafhlöður fyrir nema er nú
hægt að fullhlaða á um tveimur
klukkustundum . Búnaðurinn fyrir raf-
hleðsluna er jafnframt forritunartæki sem
notuð eru þegar breyta þarf upp-
setningu nemanna,“ segir Þórir .
Toghraðanemi og brúareiningar
Á sýningunni verður einnig kynntur nýr
og endurbættur toghraða- og
skekkjunemi en Þórir segir þennan
nema mjög mikilvægt stjórntæki . „Þeir
sem hafa tekið hann í sína þjónustu eru
fljótir að tileinka sér hann og kasta ekki
trolli nema hafa hann á veiðarfærinu .
Þessi nemi er bæði notaður við flottrolls-
og botntrollsveiðar og með upplýsingum
frá honum geta skipstjórnendur stillt af
hraða og fleiri atriði til að hámarka
veiðihæfni trollsins - að hraði sé réttur
miðað við straum og fiskur fari þannig
rétt inn í trollið í stað þess að það hrindi
frá sér . Slík vatnsfötuáhrif eru mjög þekkt
en erfitt að meta þau nema með þessum
nema,“ segir Þórir .
Scanmar mun kynna nýjustu útgáfu af
Scanbas kerfinu og stærstu útgáfu
hingað til af ScanScreen kerfinu .
Valmöguleikar í brúareiningum frá
Scanmar verða einnig kynntir .
„Loks er vert að vekja athygli á að á
sýningunni munu verða hagstæð tilboð í
uppfærslu úr eldri búnaði yfir í nýjan frá
Scanmar .“
Scanmar á Íslandi ehf.
Grandagarði 1a
101 Reykjavík
Sími 551 3300
www.scanmar.no
Nýjungar kynntar
Á sjávarútvegssýningunni leggur Scanmar áherslu á nokkur aðalatriði, auk
þess að undirstrika sölu- og viðhaldsþjónustu fyrirtækisins hér á landi. Nefna
má eftirfarandi.
» Ný gerð af fjarlægðarnemum.
» Nýr samhæfður hleranemi með fjarlægð, halla, hita og dýpi.
» Áhrif samliggjandi þátta, svo sem toghraða, hlerahalla og hlerafjarlægðar á
veiðihæfni veiðarfæris og olíueyðslu.
» Straumhraði í belg og snúningur á poka/belg. Mikilvægi þess að réttur tog-
hraði komi í veg fyrir vatnsfötuáhrif og snúing á poka sem aftur leiðir til
þess að fiskur sleppur í gegnum slaka möskva og gengur ekki aftur í poka.
» Dæmi um hvernig aflanemi með halla gefur upplýsingar um afla í
veiðarfæri miklu fyrr en hefbundinn aflanemi. Með slíkum nema er
auðveldara en fyrr að staðsetja fisk og sjá hvar og hvenær hann kom inn í
veiðarfærið.
» Ferilskráning aflanema með halla skoðuð með tilliti til innkomu á afla,
ásamt nýrri hönnun nema sem eru sterkari en nokkru sinni fyrr. Ný raf-
hlöðutækni nema kynnt, sem og ný hleðslutækni.
Kynslóðaskipti
hjá Scanmar
Þórir Matthíasson, framkvæmdastjóri Scanmar á Íslandi ehf . „Munum kynna margar nýjungar
á Íslensku sjávarútvegssýningunni .