Ægir - 01.08.2011, Side 32
30
„Skipaskoðunarsvið annast öryggis-
skoðanir á skipum og bátum og próf-
unarstofa Frumherja annast löggildingar
og prófanir mælitækja af ýmsu tagi .
Starfsemi matvælasviðs breyttist þann 1 .
mars s .l . þegar stjórnvöld ákváðu að
færa framkvæmd eftirlitsins til ríkisins á
ný .“ Þetta segir Róbert Hlöðversson,
sviðsstjóri matvælasviðs Frumherja um
þá þjónustu sem fyrirtækið veitir ís-
lenskum sjávarútvegi .
Skipaskoðunarsvið
Skipaskoðunarsvið Frumherja sinnir
faggiltum öryggisskoðunum skipa undir
400 brt . í umboði Siglingastofnunar Ís-
lands um land allt . Öll skip, sem notuð
eru til veiða í atvinnuskyni, á að bún-
aðarskoða einu sinni á ári . Aðrar skoð-
anir, s .s . vélskoðun, öxulskoðun, bol-
skoðun og rafmagnsskoðun, eru
framkvæmdar annað hvert ár eða
sjaldnar . Skipaskoðunarsvið annast
einnig eftirlit með nýsmíði og
breytingum skipa, þykktarmælingar,
tjónaskoðanir o .fl .
Prófunarstofa Frumherja
Prófunarstofa Frumherja annast
löggildingar og prófanir mælitækja af
ýmsu tagi, s .s . voga, eldsneytismæla,
vatnsmæla og raforkumæla . Einna
lengst hefur starfsemin snúist um
löggildingu voga, en þær ber að
löggilda á tveggja ára fresti . Prófunar-
stofan getur löggilt allar stærðir voga,
allt frá minnstu borðvogum upp í
bílavogir og allar gerðir flokkara,
flæðivoga og annarra sjálfvirkra voga .
Nýjung: útvistun gæðastjóra
Þegar Matvælastofnun tók við fram-
kvæmd eftirlits með sjávarútvegsfyrir-
tækjum á ný urðu verulegar breytingar
á starfsemi matvælasviðs Frumherja .
Ákveðið var að nýta reynslu og þekk-
ingu starfsmanna sviðsins og bjóða mat-
vælaframleiðendum ráðgjöf og fræðslu
um gæðamál, s .s . uppsetningu HACCP-
kerfa, gerð gæðahandbóka og nám-
skeið um gæðamál . Auk þess annast
matvælasviðið úttektir á fiski og
fiskafurðum fyrir framleiðendur, kaup-
endur og seljendur sjávarafurða eins og
verið hefur . Útvistun gæðastjóra er
nýjung sem felur í sér að matvælasvið
tekur að sér umsjón með gæðakerfi
fyrirtækisins gegn fastri mánaðar-
greiðslu . Þessi lausn hentar minni og
meðalstórum fyrirtækjum vel þar sem
hún býður upp á faglega umsjón með
gæðamálum fyrirtækisins án þess að
stöðugildum fjölgi .
Síauknar kröfur kaupenda
„Gæða- og heilbrigðiskröfur stjórnvalda
og neytenda til matvælaframleiðenda
hafa aukist verulega á undanförnum
árum . Ekki er einungis horft á hvort mat-
væli séu örugg til neyslu heldur einnig
hvaða áhrif framleiðslan hefur á um-
hverfið og hvort meðferð húsdýra sé
samkvæmt dýraverndarlögum . Æ fleiri
kaupendur matvæla gera kröfu um að
framleiðendur þeirra sýni fram á það
með vottun eða á annan hátt að öryggi
framleiðslunnar sé tryggt, að fisk-
veiðarnar séu sjálfbærar, ræktun
vistvæn og meðferð nytjadýra mann úð-
leg svo dæmi séu tekin . Starfsmenn
matvælasviðs Frumherja hafa yfirgrips-
mikla þekkingu á þessum málaflokkum
og eru reiðubúnir að veita mat-
vælaframleiðendum ráðgjöf á þessu
sviði,“ sagði Róbert að lokum .
Frumherji
Hesthálsi 6-8
110 Reykjavík
Sími: 570 9000
www.frumherji.is
Vaskir menn í Frumherja, frá vinstri: Valtýr Guðbrandsson, sviðsstjóri prófunarstofu, Stefán
Hans Stephensen, sviðsstjóri skipaskoðunarsviðs og Róbert Hlöðversson, sviðsstjóri mat-
vælasviðs .
Frumherji með
fjölþætta þjónustu
Áhersla lögð á ráðgjöf og fræðslu varðandi gæðamál
í matvælafyrirtækjum