Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 34
32
Vöxtur Sónar ehf . frá því fyrirtækið var
stofnað fyrir 6 árum hefur verið eftir-
tektarverður . Sónar hefur stimplað sig
inn undanfarin ár sem eitt öflugasta inn-
flutnings- og þjónustufyrirtæki landsins
á siglinga-, fiskileitar- og fjarskipta-
tækjum . „Við teljum okkur vera með fjöl-
breyttustu vörulínu landsins í siglinga-
og fjarskiptatækjum og ætlum að reyna
að koma því til skila á sjávarútvegs-
sýningunni,“ segir Guðmundur Braga-
son, sölustjóri Sónar ehf . „Við munum
sýna ný og spennandi tæki frá SAILOR,
JRC, RAYMARINE, KAIJO, SEATEL,
WESMAR, WASSP og COMNAV en rús-
ínan í pylsuendanum verður heimsfrum-
sýning á nýjum og mjög öflugum
þrívíddarsónar og dýptarmæli sem heitir
SeapiX .
SeapiX er fyrsti þrívíddarsónarinn
hannaður sérstaklega til að uppfylla
þarfir nútíma skipstjórnenda . Þessi
sónar/dýptarmælir býður upp áður
óþekkta möguleika í að greina milli fisk-
tegunda í kring um skipið, safna botn-
upplýsingum og fleira sem skiptir máli í
að flýta veiðum, auðvelda þær og skila
sparnaði . Það sem við höfum séð frá
þessum þrívíddarsónar lofar virkilega
góðu og óhætt að segja að sjón sé
sögu ríkari .“
Hitamyndavél getur skipt sköpum
„Við munum einnig frumsýna í Evrópu
nýja línu tækja frá Raymarine ásamt
vönduðum hitamyndavélum frá sama
framleiðanda,“ segir Guðmundur . Hann
bætir við að Raymarine hitamynda-
vélarnar geri siglinguna öruggari með
því að birta skýra mynd af umhverfi
skipsins jafnvel þó svartamyrkur sé . Þær
séu því frábær viðbót við hefðbundin
siglingatæki um borð í skipum og
bátum . Hitamyndavél er einnig mikil-
vægt leitartæki ef maður fellur útbyrðis,
en við þær aðstæður skiptir öllu máli að
finna manninn sem fyrst .
Annað nýtt öryggistæki hjá Sónar er
mjög nettur AIS sendir frá Kannad sem
menn geta haft á sér eða í vinnugall-
anum . Falli þeir útbyrðis þá geta þeir
sett hann í gang og maðurinn kemur inn
á AIS móttakara skipa í allt að 4 mílna
radíus .
„SAILOR er gæðamerki sem menn
treysta í fjarskiptabúnaði til sjós . Við
munum sýna nýja tækjalínu frá SAILOR
á sjávarútvegssýningunni en þar eru
ýmsar nýjungar í GMDSS búnaði . Sónar
var í janúar tilnefnt Service Partner fyrir
SAILOR á Íslandi og er eina fyrirtækið á
Íslandi með þá vottun . Í tilefni þess
munum við bjóða sýningartilboð á
SAILOR fjarskiptabúnaði á þessari
sýningu . Að verða Service Partner
SAILOR á Íslandi gerir okkur kleift að
bjóða betri þjónustu á SAILOR búnaði
og fljótari afgreiðslu á varahlutum o .fl .
frá SAILOR,“ bætir Guðmundur við .
Sónartæki mikilvæg í makrílleit
„Við hjá Sónar bjóðum eitt mesta úrval
landsins í sónartækjum til makrílveiða .
Menn á skipum með góðan
hátíðnisónar hafa talað um hversu
markvissari makrílveiðarnar verði með
þeim og auðveldara að forðast
óæskilegan meðafla . Í hring-
sónartækjum erum við með vönduð
sónartæki frá Wesmar og JRC . Þau tæki
henta í allt frá smæstu bátum upp
stærstu skip . Í Omni sónartækjum sem
uppsjávarflotinn hefur mest keypt,
bjóðum við upp á hin öflugu KAIJO
sónartæki sem hafa verið þekkt fyrir
mikil gæði og sterkan botnbúnað .
„Frá JRC munum við frumsýna nýtt
hágæða Doppler Current straumlogg,
nýjan GPS kompás og nýlega radara
sem hafa fengið mikið lof notenda . Við
erum einnig með mikið úrval AIS tækja
og bjóðum t .d . aflmeira Class-B AIS tæki
eða 12W á mjög góðu verði,“ segir Guð-
mundur og bætir við að Íslenska
sjávarútvegssýningin sé tilhlökkunar-
efni . „Á sýningunni á að vera létt yfir
þessu og það höfum við að leiðarljósi .
Ég býð alla velkomna í fjörið hjá okkur á
bás C20 til að skoða hið einstaka
vöruúrval sem við bjóðum upp á .“
Sónar ehf.
Hvaleyrarbraut 2
220 Hafnarfirði
Sími 512-8500
www.sonar.is
Starfsmenn Sónars . Guðmundur Bragason, Björn Valur Guðjónsson, Vilhjálmur Árnason,
Einar Ríkharðsson og Óskar Aðalbjörnsson . Á myndina vantar Susanne Anderson .
Heimsfrumsýning
hjá Sónar