Ægir - 01.08.2011, Síða 42
40
Landsbankinn hf . hefur sterkari tengsl
við höfuðatvinnugrein landsmanna en
nokkurt annað fjármálafyrirtæki og er
því sannkallaður Landsbanki sjávar-
útvegsins . „Við erum með um 40%
markaðshlutdeild í sjávarútvegi og
fjórðungur af öllu útlánasafni bankans er
til sjávarútvegsins,“ segir Haukur
Ómarsson, forstöðumaður sjávarútvegs-
viðskipta hjá Landsbankanum . ,,Við
erum í mjög sterkri stöðu til að þjóna
þessari grein, enda er Landsbankinn
stærsta fjármálafyrirtæki Íslendinga með
útibú um allt land, bæði til sjávar og
sveita .“ Haukur segir að innan Lands-
bankans sé litið á það sem styrkleika og
mikilvæga sérstöðu að Landsbankinn er
að stærstum hluta í eigu íslenska ríkis-
ins, sem skapar honum og viðskipta-
vinum hans vel þegna kjölfestu á um-
brotatímum . „Við getum tekið á okkur
töluverðan sjó sem stendur .“
Haukur segir það yfirlýst markmið
Landsbankans að þjóna öllum greinum
sjávarútvegsins vel, bæði veiðum og
vinnslu og ekki síður þeim fyrirtækjum
sem tengjast greininni og styðja við
hana . „Hér í höfuðstöðvunum er hópur
starfsfólks sem sérhæfir sig í
sjávarútvegi og þjónustu við hann . Í
útibúum um allt land er líka fjöldi starfs-
manna sem hefur sérhæfða þekkingu á
sjávarútvegi og virk tengsl við
sjávarútvegsfyrirtækin . Fyrirtækja bank-
inn sinnir stærstu fyrirtækjunum en
öðrum félögum er þjónað í útibúunum .
Öll stór og meðalstór fyrirtæki eru með
eigin viðskiptastjóra sem annast öll
þeirra mál hjá bankanum .“
Hreyfiafl
Ný stefna var mörkuð innan Lands-
bankans á árinu 2010 og þar setur hann
sér það markmið að verða sam bæri-
legur bestu bönkum Norðurlanda árið
2015 . Landsbankinn skilgreinir sig sem
„hreyfiafl í íslensku samfélagi“ og býðst
til þess að taka þátt í arðbærum
verkefnum undir þeim merkjum í náinni
samvinnu við íslenska og erlenda við-
skiptavini sína . „Staða Landsbankans er
sterk og við erum tilbúin að taka þátt í
nýrri fjárfestingu þar sem hún býðst,“
segir Haukur .
Einstakur vettvangur
„Sjávarútvegurinn er og verður
höfuðatvinnuvegur þjóðarinnar . Því fylgir
bæði mikil ábyrgð og traust að vera
helsti banki þessarar greinar og við
ætlum að standa undir því . Sjávar-
útvegssýningin er einstakur vettvangur
til að rækta tengsl við viðskiptavini og
fylgjast með hræringum í helstu
greinum sjávarútvegs .“
Að sögn Hauks hefur Landsbankinn
alltaf tekið þátt í sjávarútvegssýningum
hérlendis, enda hluti af tilverunni í
mannlegum samskiptum og viðskiptum
að sýna sig og sjá aðra! ,,Við hittum við-
skiptavini okkar og rifjum upp fyrri kynni
og auðvitað verða líka til ný viðskipta-
sambönd á svona samkomum . Þetta er
líka kjörinn staður fyrir sérfræðinga
bankans á sviði fjármögnunar til að
kynna sér strauma og stefnur í fisk-
veiðum og vinnslu, tækninýjungar og
annað slíkt . Allt skiptir þetta máli í
starfseminni .
Landsbankann er að finna í bás E 10
og við bjóðum gesti velkomna, bæði
viðskiptavini og aðra, til að kynna sér
hvað við höfum fram að færa og þiggja
léttar veitingar í leiðinni .“
Landsbankinn hf.
Austurstræti 11
101 Reykjavík
sími 410 4000
landsbankinn.is
Kyrrð og friðsæld í höfninni á Bakkafirði .
Ljósmynd: Jóhann Ólafur Halldórsson .
Landsbanki
sjávarútvegsins
Haukur Ómarsson, forstöðumaður sjávarútvegsviðskipta hjá Landsbankanum .