Ægir - 01.08.2011, Qupperneq 44
42
„Við bjóðum allar gerðir af GPS tækjum
með kortaplotterum fyrir bátana og við
höfum fundið síðustu tvö sumur að þær
tækjalausnir, sem við höfum að bjóða,
eru mjög hagkvæmur kostur fyrir
strandveiðibátana og í raun allan smærri
bátaflotann . Þetta eru allt frá einföldum
tækjum með fjögurra tommu skjám upp
í 15 tommu tæki fyrir stærri bátana .
Garmin eru ekki lengur aðeins fram-
leiðandi á GPS tækjabúnaði heldur er
fyrirtækið einnig komið með fiskileitar-
tæki, ratsjár, sjálfstýringar og ýmislegt
fleira . Allt það sem Garmin hefur að
bjóða fæst hjá okkur og á heimasíðu
okkar eru einnig aðgengilegar upp-
lýsingar um tækjalausnir fyrir báta-
flotann,“ segir Ríkarður Sigmundsson,
framkvæmdastjóri RS Import, umboðs-
aðila Garmin á Íslandi .
Sniðið að þörfum hvers og eins
Tækjalausnirnar frá Garmin eru hag-
kvæmar bátaeigendum því sem dæmi
má taka er hægt að fá dýptarmæli með
plotter, sjókortum og botnstykki fyrir
innan við 150 þúsund krónur .
„Gjarnan hafa menn tekið svona
pakka í byrjun en síðan uppfært í öflugri
búnað eftir því sem þörf hefur verið á .
Þá hafa menn t .d . farið í stærri tæki með
7 tommu snertiskjá sem hafa í öllum til-
fellum skemmtilegra vinnuviðmót . Og ef
menn vilja fara í plottera með enn stærri
skjám þá hafa þau aukna tengimögu-
leika við önnur tæki, samnýtingu á
kortum í fleiri en einu tæki og þannig
mætti lengi telja . Öll þessi nýja tækni,
sem Garmin er að koma með á
markaðinn, hefur fengið góðar umsagnir
og full ástæða er fyrir eigendur skipa og
báta að fylgjast vel með því sem mun
bætast við á næstunni í línunni,“ segir
Ríkarður .
Hafsbotninn í þrívíðu
Bylting varð með tilkomu kortagrunna í
GPS tækjum og það á ekki síður við á
sjónum en á landi . Með Bluechart g2
sjókortunum frá Garmin er hægt að sjá
íslensku sjókortin eins og þau koma af
kúnni og einnig er í þeim svokallað
veiðikort þar sem hefur verið blandað
saman íslensku kortagögnunum og
erlendum kortagrunni sem sýnir lands-
lagt hafsbotnsins með afar skýrum graf-
ískum hætti . Þessi kort segir Ríkarður að
sjófarendur hafi sannreynt að séu mjög
nákvæm hvað varðar botninn hér við
land en bæði er hægt að fá þau með
hæðarlínum og einnig á formi sem birtir
botninn í þrívíðri mynd og heita þá
Bluechart g2 Vision .
„Þessu öllu til viðbótar höfum við tal-
stöðvar á samkeppnishæfu verði, sem
best sést af mikilli sölu þeirra að undan-
förnu . Við bjóðum líka búnað fyrir sjálf-
virku AIS tilkynningaskylduna þannig að
menn þurfa ekki að leita lengra til að
græja bátinn upp fyrir verðtíðina,“ segir
Ríkarður . Auk sölu og ráðgjafarþjónustu
í Garmin tækjunum hefur fyrirtæki hans
einnig með höndum viðgerðarþjónustu
á þessum búnaði .
Garmin á Íslandi
Ögurhvarfi 2
203 Kópavogur
Sími 577 6000
www.garmin.is
Hagstæðar
lausnir
frá Garmin
Garmin Bluechart g2 og g2 Vision kortin eru með sérstakt veiðikort sem sýnir mun ítarlegri og þéttari dýptarlínur en almennu sjókortin . Þekkt
er að hólar og holur sem ekki koma fram í almennum sjókortum birtist í veiðikortinu . Á myndinni til hægri má sjá hvernig Garmin Bluechart
g2 Vision kortin sýna botns- og landslag í þrívídd ásamt því að geta reiknað sjálfvirkt leið miðað við hve mikið báturinn ristir . Grynningar eru
einnig litaðar eftir djúpristu .