Ægir - 01.08.2011, Page 50
48
„Greiðslufallstrygging getur ráðið úr-
slitum um hvort útflutningsfyrirtæki lifir
áfram eða rekstrarsaga þess rennur sitt
skeið á enda . Eigandi fyrirtækis lenti í
því að erlendur viðskiptavinur varð
gjaldþrota og þar með töpuðust háar
kröfur sem hefðu að óbreyttu fellt ís-
lenska fyrirtækið líka . Eigandinn hafði
sem betur fer greiðslufallstryggingu og
sagði mér að annars hefði illa farið,“
segir Hrönn Greipsdóttir, forstöðumaður
faktoring á fyrirtækjasviði Arion banka .
Faktoring (fjármögnun viðskiptakrafna)
og miðlun greiðslufallstrygginga er ný
þjónusta bankans og á rætur að rekja til
þess að hann keypti nýverið rekstur
SPRON factoring
„Þjónusta af þessu tagi er algeng
erlendis en hefur ekki náð að ryðja sér
verulega til rúms á Íslandi . Samt hentar
hún afar vel fyrirtækjum í útflutningi og
þar með til dæmis fiskútflytjendum .
Þetta er viðbótarleið til fjármögnunar
sem breytir hefðbundnum lánsvið-
skiptum í staðgreiðslu vegna þess að
bankinn lánar út á viðskiptakröfur gegn
veði í kröfunum sjálfum .“
Aðalsmerki kröfufjármögnunar er að
gera viðskipti öruggari og einfaldari . Eitt
af lykilatriðum er samningur við traust
erlent tryggingarfélag . Þegar sótt er um
tryggingu á erlenda greiðendur fer af
stað ferli hjá tryggingarfélaginu þar sem
lánshæfi viðkomandi er metið . Á
grundvelli þess mats er opnuð trygg-
ingarlína sem fjármögnunin tekur mið af .
Ef tryggð krafa fer í vanskil tekur trygg-
ingarfélagið yfir innheimtuna . Sé um
sannanlegt greiðslufall að ræða, svo
sem gjaldþrot eða greiðslustöðvun,
greiðir tryggingarfélagið bæturnar í
síðasta lagi 180 dögum eftir útgáfudag
reiknings .
Það skiptir miklu máli fyrir íslensk
fyrirtæki að Arion banki hafi þessi
erlendu tryggingarfélög að bakhjarli,
enda getur verið afar erfitt, dýrt og
flókið ferli að gæta hagsmuna sinna og
ná rétti sínum á erlendri grundu ef eitt-
hvað fer úrskeiðis í viðskiptum .
Arion banki
Borgartúni 19
105 Reykjavík
Sími 444 7000
www.arionbanki.is
Nýmæli í þjónustu fyrirtækjasviðs Arion banka .
Fjármögnun viðskiptakrafna með skilarétti (e . financing
with recourse) en með skilarétti er átt við að sá sem fjár-
magnar kröfuna geti skilað henni aftur til kröfuhafa hafi
hún ekki greiðst 60 dögum eftir gjalddaga .
Hentar fyrirtækjum í vöruútflutningi sérlega vel, þar með
töldum fiskútflytjendum .
Hentar líka stórum og meðalstórum fyrirtækjum á innan-
landsmarkaði
Arion banki semur um að lána viðskiptavini sem svarar til
allt að 80% viðskiptakrafna og breyta þannig stórum hluta
af kröfusafni viðkomandi í handbært fé til ráðstöfunar
strax .
Með þessu móti er brúað bil sem skapast kann ef við-
skiptavinur dregur að greiða reikninginn og fyrirtækið
getur notað svigrúmið til að standa við skuldbindingar sín
megin, til dæmis gagnvart eigin birgjum .
Minni óvissa um greiðsluflæði .
Samningur Arion banka við öflug erlend tryggingarfélög
sem taka þátt í að meta greiðsluhæfi/stöðu erlendra við-
skiptavina íslenskra fyrirtækja sem í hlut eiga og tryggja
þau gagnvart greiðslufalli hins erlenda viðskiptavinar .
Greiðslufallstrygging er forsenda fjármögnunar erlendra
krafna . Ef krafa lendir í vanskilum kemur til kasta erlendu
tryggingarfélaganna að aðstoða við innheimtu .
Faktoring í hnotskurn
Hrönn Greipsdóttir, forstöðumaður faktoring á fyrirtækjasviði Arion banka .
Greiðslufallstrygging
er vinur í raun