Ægir - 01.08.2011, Page 54
52
Fyrirtækið Samhentir Kassagerð ehf . í
Garðabæ fagnar á þessu ári 15 ára
afmæli en það hefur á þessu tíma
skapað sér leiðandi stöðu á markaði
fyrir umbúðir og ýmsar aðrar rekst rar-
vörur . Frá upphafi hefur sjávar-
útvegurinn verið stærsta stoðin í mjög
stórum hópi viðskiptamanna Samhentra
en segja má að þjónusta fyrirtækisins
nái til allra atvinnugreina . „Okkar
sérhæfing liggur í umbúðunum og öllu
sem að þeim snýr,“ segir Bjarni Hrafns-
son, rekstrarstjóri Samhentra . Þar nefnir
hann kassa, öskjur, arkir, poka, pappa,
plast, límbönd og ýmislegt fleira . Vél-
búnaður sem tengist umbúðum, er
einnig snar þáttur og vaxandi í sölu
Samhentra . Þetta mun fyrirtækið undir-
strika á stórum bás á Íslensku
sjávarútvegssýningunni .
Heil pökkunarlína sýnd
„Á sýningunni komum við til með að
vera með uppsetta pökkunarlínu fyrir
uppsjávarfrystihús og sýna hvernig hún
vinnur . Hér er um að ræða tæki frá
þremur framleiðendum sem saman
mynda línu . Hún hefst þegar blokkirnar
koma frosnar á færiböndum frá fryst-
unum . Síðan tekur vélbúnaður okkar
við, setur blokkina í kassa, bindur utan
um hann, skilar honum síðan áfram í
áprentun og merkingu, þaðan í staflara
á bretti og síðasti hlekkurinn er svo
sjálfvirkur búnaður sem plastar brettið .
Heildstæð lausn þar sem mannshöndin
kemur ekki að á annan hátt en þann að
stýra línunni . Þessi lausn hefur verið sett
upp í nýjustu uppsjávarfrystihúsunum
hér á landi . Frysting á uppsjávarfiski
hefur verið í mikilli uppbyggingu að
undanförnu og við höfum átt okkar þátt í
henni, bæði með vélbúnaði og að
sjálfsögðu umbúðum . Sjálfvirknin í
pökkun er stöðugt að aukast, bæði
vegna þess hversu vinnusparandi hún
er og sömuleiðis skilar sjálfvirknin ein-
faldlega góðri vöru,“ segir Bjarni .
Eigum til það sem
viðskiptavinurinn þarfnast
Eins og áður segir koma vörur Sam-
hentra Kassagerðar við sögu á öllum
þeim stigum sjávarútvegsins þar sem
umbúðir eru notaðar . Hvort heldur er í
landvinnslu eða sjóvinnslu, fyrir upp-
Samhentir-Kassagerð ehf.
Suðurhrauni 4a
210 Garðabæ
Sími 575 8000
www.samhentir.is
15 ára afmælisveisla
Að kvöldi opnunardags Íslensku
sjávarútvegssýningarinnar, þann
22 . september, bjóða Samhentir til
mikillar afmælisveislu í húsakynnum
sínum við Suðurhraun 4 í Garðabæ .
Þangað er öllum viðskiptamönnum
og velunnurum boðið en mikið lið
þjóðþekktra listamanna mun troða
þar upp . Má þar nefna hljómsveitina
Jón Jónsson og Papa sem spila
undir hjá Matta Matt, Helga Björns
og Bubba - og er samt ekki allt talið .
Samhentir Kassagerð ehf . er til húsa að Suðurhrauni 4a í Garðabæ .
Samhentir með allar
lausnir í umbúðunum