Ægir - 01.08.2011, Síða 58
56
SECURITAS hf.
Skeifan 8
108 Reykjavík
Sími 580 7000
Stjórnstöð 533 5533
Þjónustuver 580 7100
www.securitas.is
Hefðbundið kerfi eftirlitsmyndavéla
skynjar hreyfingu á eftirlitssvæðinu sínu
og lætur vita en greinir ekki hvað
hreyfist eða veldur hreyfingunni .
Securitas er að kynna mynd-
greiningartækni sem gerir þetta og
meira til . Ef bætt er við hitaskynjurum í
slíkt eftirlitskerfi fer fátt fram hjá sívök-
ulum vaktaugum þess að nóttu eða
degi, úti eða inni .
Nýja kerfið skynjar til dæmis bíla, fólk
eða annað, sem kemur inn á vaktsvæði
eða fer út af því . Það getur talið bílana
eða fólkið, sem getur nýst bæði í
öryggis- og upplýsingaskyni . Kerfið
getur greint hegðun þeirra sem við á og
metið hvort hún telst athugunar verð
eða ekki . Þannig er unnt að fá boð um
ef einhver eða einhverjir staðnæmast
og dvelja óeðlilega lengi á tilteknum
stað .
Kerfið getur sömuleiðis sent boð ef
það skynjar hlut á stað sem enginn
hlutur á að vera lengur en augnablik
(t .d . ef taska er skilin eftir á flug-
stöðvargólfi eða á götuhorni!) eða látið
vita ef eitthvað á vaktsvæðinu hverfur
„út úr mynd“ . Möguleikarnir eru í raun
óendanlega margir, einn er sá að láta
kerfið fylgjast með færibandi sem flytur
vörur milli svæða og það sendir boð ef
kassi dettur af færibandinu, ef bandið
stoppar eða eitthvað það gerist sem
óeðlilegt getur talist .
Síðast en ekki síst gerir mynd-
greiningin mögulegt að fækka
villuboðum í eftirlitskerfum, þ .e . þegar
látið er vita af óskilgreindri hreyfingu á
vaktsvæði en svo kemur á daginn að
þar var ekki annað að gerast en að
plastpoki fauk í vindhviðu . Mynd-
greiningin gerir eftirlitið þannig
skilvirkara, nákvæmara og öruggara . Og
aukið öryggi er auðvitað það sem málið
snýst um . Ef villuboðum fækkar sparar
það tíma og þar með fjármuni, enda er
tíminn peningar þegar allt kemur til alls .
Securitas hefur að bjóða þrenns konar slökkvikerfi sem henta
til dæmis sjávarútvegsfyrirtækjum vel til sjós og lands:
Novec 1230. Góður kostur í tölvusali, tæknirými, vélarúm
skipa og víðar . Slökkviefnið er kemískt, vökvi og lofttegund
sem rýfur efnahvörf brunans og hefur ekki skaðleg umhverf-
isáhrif .
Stat-X . Sjálfvirkt slökkvikerfi sem hentar vel fyrir rafmagns-
töflur, tækjaskápa og minni rými, svo sem vélarrými báta . Efnið
er í föstu formi og myndar gas og fíngerðar agnir sem rýfur
brunaferli .
Inergen. Slökkviefni sem myndað er af náttúrlegum
lofttegundum og hvorki brennur né eitrar eða skaðar umhverfi,
vélar eða innanstokksmuni . Í þessu umhverfisvæna slökkviefni
er köfnunarefni (52%), eðalgas/argon (40%) og koltvísýringur
(8%) .
Inergen virkar þannig að það minnktar hlutfallslega súrefni
úr 21% í um 15% í andrúmslofti rýmis þar sem brennur . Eldur
þarf súrefnisnæringu til að loga og þegar súrefnið minnkar
hættir eldurinn að geta „andað“ og kafnar á 30-45 sekúndum .
Inergen er einstakt slökkviefni að því leyti að mönnum er
að meinalausu að vera í rými þar sem það er notað til að kæfa
eld . Svo er koltvísýringi í Inergen fyrir að þakka að líkaminn
nýtir hraðar en ella það súrefni sem eftir er í rýminu .
Koltvísýringurinn örvar einfaldlega andardráttinn og mönnum
líður ágætlega við aðstæður þar sem eldur kafnar úr súrefnis-
skorti!
Eldur kæfður með náttúruefnum
Myndgreiningartæknin gerir m .a . mögulegt að telja bíla á götum eða vegum og greina öll
frávik frá hinu eðlilega í umferðinni, til dæmis hvort bíll hafi verið stöðvaður og hvort fólk sé
á ferli á akbrautum .
Myndeftirlitskerfi
sem skynjar, skilur
og greinir