Ægir - 01.08.2011, Síða 60
58
Vörður hefur vaxið hratt síðustu árin og
aukið markaðshlutdeild sína jafnt og
þétt á íslenska tryggingamarkaðinum .
Félagið á sér langa sögu, allt aftur til
ársins 1926 þegar Vélbátasamtrygging
Eyjafjarðar var stofnuð . Það var þó ekki
fyrr en í kringum árið 2003 sem þátttaka
Varðar í virkri samkeppni við önnur
tryggingafélög á markaðnum hófst fyrir
alvöru . Árið 2009 keypti færeyski
bankinn BankNordik meirihluta í Verði,
en BankNordik er einn af tíu stærstu
bönkum á Norðurlöndum . „Vöxtur
félagsins undanfarin ár hefur sýnt að
Vörður hefur komið sterkur inn sem nýr
kostur á einstaklings- og fyrir-
tækjamarkaði . Þó þátttaka okkar í sam-
keppninni á tryggingamarkaðinum sé til-
tölulega ný af nálinni hefur þjónustu
félagsins verið vel tekið,“ segir Atli Örn
Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og
þjónustusviðs félagsins . Félagið er
komið í hóp 100 stærstu fyrirtækja
landsins á þessum stutta tíma og hefur
komið vel út í ánægjukönnunum við-
skiptavina á tryggingamarkaði . Það
segir mikla sögu .
Góð kjör fyrir smábátaeigendur
„Sjávarútvegur skipar mikilvægan sess í
þjónustu okkar . Það eru gríðarlega
miklir fjárhagslegir hagsmunir bundnir í
skipum og bátum, hagsmunir sem gæta
þarf að séu tryggðir fyrir óvæntum
áföllum . Vörður býður upp á allar
tegundir trygginga fyrir útgerðir, litlar
sem stórar . „Það sem meira er,“ bætir
Atli Örn við, „það hefur um árabil verið í
gildi samningur um betri kjör á trygg-
ingum á milli Varðar og félaga í Lands-
sambandi smábátaeigenda . Við bjóðum
þessum hópi víðtækari tryggingaskil-
mála og tryggjum honum þannig bestu
kjörin á tryggingum og þeirri þjónustu
sem völ er á hverju sinni . Hjá Verði má
finna úrval húftrygginga fyrir báta og
skip auk annarra nauðsynlegra við-
bótartrygginga, t .d . áhafnartryggingu og
afla- og veiðarfæratryggingu . Í
sjávarútvegi er að finna marga af okkar
traustustu viðskiptamönnum og ljóst að
við höfum margar góðar lausnir fyrir
fagið .“
Lykillinn er gott starfsfólk
Atli Örn var nýlega ráðinn til félagsins
en hann hefur víðtæka reynslu úr við-
skiptalífinu . „Það sem kom mér
skemmtilega á óvart, þegar ég kom til
Varðar, er hversu mikil og breið þekking
er hér innandyra . Starfsfólk trygginga-
félaga þarf að vera sérstaklega vel upp-
lýst og nauðsynlegt að það hafi góða
þekkingu á starfsemi viðskiptavina
sinna og það leynir sér ekki að hér eru
menn alltaf á tánum . Tryggingafélag
verður að sýna heilindi gagnvart við-
skiptavinum sínum og því verður best
náð með vandaðri vinnu starfsfólks .“
Traustur grunnur
„Rekstur fyrirtækisins hefur verið mjög
traustur undanfarin ár og afkoma félags-
ins hefur styrkst mikið . Þrátt fyrir erfiðar
ytri aðstæður í efnahagslífinu hefur
félagið skilað hagnaði síðustu ár og fest
sig í sessi sem góður kostur fyrir ein-
staklinga, fyrirtæki og stofnanir .
Sóknarfærin eru enn til staðar, íslenskir
neytendur og fyrirtæki vilja góða
þjónustu og Vörður mun áfram leggja
sig fram um að veita hana,“ segir Atli
Örn . Vörður verður með fulltrúa sína á
sjávarútvegssýningunni í Smáranum í
bás G14 og hvetur alla til að koma við
og kynna sér það sem félagið hefur upp
á að bjóða .
Vörður tryggingar hf.
Borgartúni 25
105 Reykjavík
Sími 514 1000
www.vordur.is
Sjávarútvegur skip-
ar mikilvægan sess
í þjónustu Varðar
Atli Örn Jónsson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Varðar .