Ægir - 01.08.2011, Side 64
62
Oddi er stærsti íslenski framleiðandi
umbúða úr pappa og er að þróa raka-
þolnar og umhverfisvænar umbúðir úr
bylgjupappa . Oddi hefur verið starfandi
frá árinu 1943 en merk tímamót uðru
2008 þegar tvö gamalgróin fyrirtæki
sameinuðust Odda: Prentsmiðjan
Gutenberg og Kassagerðin sem hefur
síðustu áratugi verið stærsti íslenski
framleiðandi umbúða úr pappa fyrir ís-
lenskan sjávarútveg .
„Við tölum oft um að fyrirtækið hafi
vaxið upp með íslenskum sjávarútvegi;
hann hefur gengið í gegnum miklar
breytingar og alltaf hefur Kassagerðin,
og síðan Oddi, starfað þétt með ís-
lenskum sjávarútvegsfyrirtækjum,“ segir
Jón Ómar Erlingsson, fram kvæmda stjóri
Odda . „Oddi hefur verið stærsti innlendi
framleiðandi pappaumbúða fyrir
sjávarútveg í gegnum tíðina og helstu
vörurnar eru kassar úr bylgjupappa og
öskjur úr kartonefni . Við þekkjum vel
þær kröfur sem sjávarútvegsfyrirtæki
gera, ekki einungis hvað varðar gæði
umbúðanna heldur einnig hýsingu,
dreifingu og afhendingaröryggi . Þessi
þættir eru ekki síður mikilvægir því
rekstrarumhverfi sjávarútvegsins er
þannig að allir verða að leggjast á eitt
svo að hjólin haldist gangandi og
bregðast þarf snarlega við þegar að-
stæður breytast .“
Umhverfismerkið Svanurinn
Oddi er eina fyrirtækið á Íslandi sem
framleiðir bylgjupappa og stærstu við-
skiptavinirnir eru fyrirtæki sem tengjast
sjávarútvegi, bæði innlend og erlend .
Sama má segja um umbúðir úr kartoni
sem gjarnan eru rakavarðar, annað
hvort með plast- eða vaxhúð . Þess
háttar rakavörn hentar síður á umbúðir
úr bylgjupappa og þess vegna hefur
Oddi verið að þróa nýjar lausnir á því
vandamáli í samstarfi við kanadískan
hráefnisframleiðanda .
„Þessi lausn gengur út á það að
bæta náttúrulegum efnum út í
pappamassann sem pappírinn er unn-
inn úr . Þessi efni auka rakaþol til mikilla
muna án þess að húða þurfi umbúðirnar
sérstaklega . Þannig skapast enginn
aukakostnaður í sjálfri framleiðslunni og
hinir góðu eiginleikar bylgjupappa,
hvað varðar styrk, hagkvæmni og
endurvinnslu, haldast óbreyttir . Þessar
vörur hafa verið í prófun hér á landi og
niðurstöðurnar lofa góðu,“ segir Jón
Ómar en Oddi mun á sjávarútvegs-
sýningunni kynna þessa nýju lausn .
Hugað er að umhverfisstefnu fyrir-
tækisins í framleiðslu á umbúðum og
hefur Oddi fengið vottun norræna um-
hverfismerkisins Svansins . Fyrirtækið
var fyrsti umbúðaframleiðandi í heimi til
að fá þá vottun . „Það skiptir okkur miklu
máli að öll okkar starfsemi fari fram í sátt
við umhverfið og það er ánægjulegt að
þessar nýju lausnir eru mjög í takt við þá
stefnu .“
Eins og þegar hefur komið fram flytur
Oddi út vörur og er fyrirtækið með sölu-
fyrirtæki í Bandaríkjunum og Færeyjum
auk þess sem umbúðir eru fluttar til
annarra Evrópulanda og þá aðallega til
Þýskalands, Bretlands og Frakklands .
Jón Ómar segir að um 15% af þeim
umbúðum sem Oddi framleiðir fari í út-
flutning . „Íslenski markaðurinn er og
verður okkar aðalmarkaður en út-
flutningurinn er mikilvægur því hann
skapar ákveðið jafnvægi í rekstrinum og
gefur okkur tækifæri til að fylgjast með
því sem er að gerast erlendis .“
Prentsmiðjan Oddi ehf.
Höfðabakka 7
110 Reykjavík
Sími 515 5000
www.oddi.is
Umhverfisvænar
umbúðir
Jón Ómar Erlingsson . „Þessi lausn gengur út á það að bæta náttúrulegum efnum út í pappa-
massann sem pappírinn er unnin úr . Þessi efni auka rakaþol til mikilla muna án þess að
húða þurfi umbúðirnar sérstaklega .“