Ægir - 01.08.2011, Side 72
70
„Sérhæfing okkar felst í reimunum í
færiböndin, þ .e . öðru en járninu, álinu
eða vélbúnaðinum . Reimarnar eru einn
mikilvægasti hlekkur færibandanna og
sá flötur sem varan kemst í beina
snertingu við . Það skiptir því öllu máli að
gæði reimanna séu mikil - alveg sér í
lagi í matvælaframleiðslu eins og
sjávarútvegi þar sem er á ferðinni við-
kvæm vara,“ segir Hermann Gunnars-
son aðaleigandi og framkvæmdastjóri
Reimaþjónustunnar . Fyrirtækið var
stofnað upp úr sjávarútvegsdeild Sam-
bandsins árið 1988 og síðan þá hefur
það vaxið og dafnað á sínu sérsviði sem
snýr að reimaþjónstu . Færibönd koma
mikið við sögu í matvælavinnslu og er
þjónusta við fyrirtæki í sjávarútvegi snar
þáttur í starfsemi þess .
Rétt val skiptir máli
Rétt val á reimum í færiböndin skiptir
máli og þar er af nógu að taka hjá
Reimaþjónustunni . Yfirborð reimanna er
margs konar - allt eftir því hvað hentar
starfsemi viðkomandi notanda . Það
getur verið sleipt, matt, munstrað eða
gaddað og hægt er að velja úr margs
konar efnum, t .d . polyester,
polypropylene, polyethylene, polyacetal
og termoplastisk polyester, svo aðeins
séu tekin nokkur dæmi úr vöruúrvali
Reimaþjónustunnar . Að sama skapi geta
böndin verið margvísleg í lengdum og
gerðum; t .d . sérhannaðar reimar fyrir
mikinn hita eða kulda, kubbabönd,
færibönd sem beygja, færibönd með
ásoðnum spyrnum, færibönd með
merkingum og þannig mætti áfram telja .
Enda er það svo að reimarnar frá
Reimaþjónustunni koma við sögu í
öllum matvælaiðnaði hér á landi, á flug-
völlum, í flutningafyrirtækjum, prent-
iðnaði, timburiðnaði og jafnvel á líkams-
ræktarstöðvunum!
Nýjungar kynntar á
sjávarútvegssýningunni
„Í sjávarúvegi er mikil áhersla lögð á að
hámarka líftíma vörunnar, og þetta á til
að mynda við um ferska fiskinn . Það er
því lykilatriði að færibandareimarnar
uppfylli gæðakröfur . Þetta er einmitt
atriði sem við ætlum að beina kastljós-
inu að á bás okkar á Íslensku
sjávarútvegssýningunni . Í gegnum tíðina
hefur verið þekkt að böndin hafa verið
lagskipt hvað uppbyggingu varðar en
núna er einn af okkar birgjum kominn
fram á sjónarsviðið með bönd sem eru
heilsteypt og þetta gerir að verkum að
örverur eiga erfiðara með að hreiðra um
sig í böndunum . Þrifin verða því
auðveldari og allt skilar þetta sér í betri
framleiðsluvöru,“ segir Hermann en
umrædd bönd koma frá Volta Belting
sem er einn þriggja stærstu birgja
Reimaþjónustunnar . Volta Belting er
leiðandi í heiminum í framleiðslu færi-
bandaefnis úr Thermoplastic . Þessi
bönd uppfylla allar ströngustu kröfur
matvælaiðnaðarins en nýjasta gerðin
gengur undir nafninu Positive drive
belts – hönnun sem ætlað er að leysa
verkefnin við erfiðustu notkunarskilyrði .
Fulltrúar Volta Belting taka þátt í
kynningu á bás Reimaþjónustunnar á
sjávarútvegssýningunni og gefst því
kjörið tækifæri til að fá upplýsingar frá
fyrstu hendi framleiðandans .
Aðrir stærstu birgjar Reimaþjónust-
unnar eru spænski reimaframleiðandinn
Esbelt og Forbo-Siegling . „Auk þess að
selja reimarnar önnumst við alla
þjónustu í kringum þær, sníðum í réttar
lengdir og sjóðum saman, hvort heldur
er hér á verkstæðinu hjá okkur, um borð
í skipum eða inni á gólfi í fyrirtækjum .
Lykilatriði er að uppfylla þarfir viðskipta-
vinarins fljótt og vel,“ segir Hermann .
Reimaþjónustan
- reimar og bönd ehf.
Lyngháls 11
110 Reykjavík
Sími 561 7730
www.reimar.is
Guðmundur Ólafur Guðmundsson framleiðslustjóri og Hermann Gunnarsson, aðaleigandi
og framkvæmdastjóri Reimaþjónustunnar .
Nýjustu reimarlausnirnar
fyrir matvælaiðnaðinn