Ægir

Volume

Ægir - 01.08.2011, Page 92

Ægir - 01.08.2011, Page 92
90 Eins og á fyrri sýningum verður Hampiðjan með stórt og áberandi sýningarsvæði á Íslensku sjávarútvegs- sýningunni í ár . „Við lítum á sjávar- útvegs sýninguna sem kjörinn vettvang til að hitta viðskiptavini okkar, fara yfir stöðuna og kynna þá vöruþróun sem á sér stað hjá okkur,“ segir Jón Guðmann Pétursson forstjóri . Hann segir það veigamikinn hluta af starfsemi Hamp- iðjunnar að stunda kraftmikla vöruþróun og kynna reglulega nýjungar sem stuðla að betri veiðarfærum og hagkvæmari veiðum . Í ár mun Hampiðjan meðal annars sýna nýjan og endurbættan Dynex togtaugakapal með álímdri kápu sem kemur í staðinn fyrir togvírinn og einnig Dynex höfuðlínukapal sem er ný vara hjá Hampiðjunni . Þá verða einnig kynnt þantroll fyrir makrílveiðar og nýr og endurbættur Helix kaðall svo fátt eitt sé nefnt . Hampiðjan var stofnuð árið 1934 og framleiddi í byrjun net og kaðla en þróaðist síðan í alþjóðlega keðju netaverkstæða . Í staðinn fyrir að selja íhluti í veiðarfæri varð meginverkefni félagsins að framleiða og þjónusta tilbúin veiðarfæri . Að sögn Jóns Guð- manns hófst þessi þróun fyrir alvöru í kringum úthafskarfaveiðarnar upp úr 1990 en síðan þá hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt og er nú á meðal stærstu veiðarfæraframleiðenda í heiminum . Í dag er Hampiðjan samsteypa 13 dótturfyrirtækja í 10 löndum en höfuð- stöðvarnar og miðstöð sölu og þróunar eru á Íslandi . Stærsta dótturfélagið, Hampiðjan Baltic í Litháen, annast grunnframleiðslu á netum, köðlum og ofurtógum en úr þessum efnivið vinna netaverkstæði annarra dótturfélaga samsteypunnar síðan fullbúin veiðarfæri, bæði botntroll og flottroll og selja ofurtóg og tengdar vörur sem útgerðin þarf . Rekstur Hampiðjunnar er umfangsmikill og segir Jón Guðmann að í dag sé salan til innlendra viðskipta- manna ekki nema um 25% af heildar- tekjum samstæðunnar . Alls starfa um 500 manns hjá Hampiðjunni og dótturfélögum hennar en þar af er um helmingur eða um 250 í Litháen þar sem grunnframleiðslan fer fram í yfir 20 þúsund fermetra húsnæði . Stæsta kaðalflettivél sem smíðuð hefur verið Hampiðjan stendur framarlega í fram- leiðslu á ofurtógum sem eru unnin úr firnasterku Dyneema gerviefni og segir Jón Guðmann sölu á þeim til annarra greina en sjávarútvegs vaxandi þátt í starfseminni . „Við höfum verið að þróa Dynex ofurtógin í hartnær 20 ár og erum í nánu samstarfi við framleiðanda grunnefnisins . Ofurtógið sem við fram- leiðum er jafnsterkt og vír af sama sver- leika en hefur það fram yfir vírinn að vera margfalt léttara, enda flýtur tógið á sjónum og ryðgar hvorki né tærist,“ segir Jón Guðmann . Hann segir að fyrir- tæki í olíuiðnaði séu í auknum mæli að skipta úr vírum í ofurtóg meðal annars vegna þess að eftir því sem olíuvinnslan færist á meira dýpi þá duga vírarnir ekki lengur . „Þegar þú ert kominn með þriggja kílómetra langan streng þá þolir vírinn það ekki lengur heldur slitnar undan eigin þunga . Það eru hins vegar lítil takmörk fyrir því hvað þú getur unnið á miklu dýpi með ofurtóginu frá okkur .“ Jón Guðmann segir að í ljósi þeirra tækifæra sem menn sjá á þessum markaði og í sjávarútvegi hafi Hampiðjan Baltic nýlega fjárfest í nýrri kaðalflettivél sem sé sú stærsta sem smíðuð hafi verið í heiminum og jafn- framt dýrasta fjárfesting í einstakri vél sem ráðist hafi verið í til þessa í sögu Hampiðjunnar . Kaðlaflettivélin sem er smíðuð í Þýskalandi er engin smásmíði því hún er yfir 11 metra há og kemur til með að geta fléttað mjög sver ofurtóg í miklum lengdum með mörg þúsund tonna slitstyrk . Hampiðjan hf. Skarfagarðar 4 104 Reykjavík Sími: 530 3300 www.hampidjan.is Ofurtógin frá Hampiðjunni leysa vírinn af hólmi Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar . Meðal þess sem Hampiðjan kynnir á sjávar- útvegssýningunni að þessu sinni er Dynex togtaugin með álímdri hlífðarkápu .
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.