Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 92
90
Eins og á fyrri sýningum verður
Hampiðjan með stórt og áberandi
sýningarsvæði á Íslensku sjávarútvegs-
sýningunni í ár . „Við lítum á sjávar-
útvegs sýninguna sem kjörinn vettvang
til að hitta viðskiptavini okkar, fara yfir
stöðuna og kynna þá vöruþróun sem á
sér stað hjá okkur,“ segir Jón Guðmann
Pétursson forstjóri . Hann segir það
veigamikinn hluta af starfsemi Hamp-
iðjunnar að stunda kraftmikla vöruþróun
og kynna reglulega nýjungar sem stuðla
að betri veiðarfærum og hagkvæmari
veiðum . Í ár mun Hampiðjan meðal
annars sýna nýjan og endurbættan
Dynex togtaugakapal með álímdri kápu
sem kemur í staðinn fyrir togvírinn og
einnig Dynex höfuðlínukapal sem er ný
vara hjá Hampiðjunni . Þá verða einnig
kynnt þantroll fyrir makrílveiðar og nýr
og endurbættur Helix kaðall svo fátt eitt
sé nefnt .
Hampiðjan var stofnuð árið 1934 og
framleiddi í byrjun net og kaðla en
þróaðist síðan í alþjóðlega keðju
netaverkstæða . Í staðinn fyrir að selja
íhluti í veiðarfæri varð meginverkefni
félagsins að framleiða og þjónusta
tilbúin veiðarfæri . Að sögn Jóns Guð-
manns hófst þessi þróun fyrir alvöru í
kringum úthafskarfaveiðarnar upp úr
1990 en síðan þá hefur fyrirtækið vaxið
jafnt og þétt og er nú á meðal stærstu
veiðarfæraframleiðenda í heiminum .
Í dag er Hampiðjan samsteypa 13
dótturfyrirtækja í 10 löndum en höfuð-
stöðvarnar og miðstöð sölu og þróunar
eru á Íslandi . Stærsta dótturfélagið,
Hampiðjan Baltic í Litháen, annast
grunnframleiðslu á netum, köðlum og
ofurtógum en úr þessum efnivið vinna
netaverkstæði annarra dótturfélaga
samsteypunnar síðan fullbúin
veiðarfæri, bæði botntroll og flottroll og
selja ofurtóg og tengdar vörur sem
útgerðin þarf . Rekstur Hampiðjunnar er
umfangsmikill og segir Jón Guðmann
að í dag sé salan til innlendra viðskipta-
manna ekki nema um 25% af heildar-
tekjum samstæðunnar . Alls starfa um
500 manns hjá Hampiðjunni og
dótturfélögum hennar en þar af er um
helmingur eða um 250 í Litháen þar
sem grunnframleiðslan fer fram í yfir 20
þúsund fermetra húsnæði .
Stæsta kaðalflettivél sem
smíðuð hefur verið
Hampiðjan stendur framarlega í fram-
leiðslu á ofurtógum sem eru unnin úr
firnasterku Dyneema gerviefni og segir
Jón Guðmann sölu á þeim til annarra
greina en sjávarútvegs vaxandi þátt í
starfseminni . „Við höfum verið að þróa
Dynex ofurtógin í hartnær 20 ár og
erum í nánu samstarfi við framleiðanda
grunnefnisins . Ofurtógið sem við fram-
leiðum er jafnsterkt og vír af sama sver-
leika en hefur það fram yfir vírinn að
vera margfalt léttara, enda flýtur tógið á
sjónum og ryðgar hvorki né tærist,“
segir Jón Guðmann . Hann segir að fyrir-
tæki í olíuiðnaði séu í auknum mæli að
skipta úr vírum í ofurtóg meðal annars
vegna þess að eftir því sem olíuvinnslan
færist á meira dýpi þá duga vírarnir ekki
lengur . „Þegar þú ert kominn með
þriggja kílómetra langan streng þá þolir
vírinn það ekki lengur heldur slitnar
undan eigin þunga . Það eru hins vegar
lítil takmörk fyrir því hvað þú getur unnið
á miklu dýpi með ofurtóginu frá okkur .“
Jón Guðmann segir að í ljósi þeirra
tækifæra sem menn sjá á þessum
markaði og í sjávarútvegi hafi
Hampiðjan Baltic nýlega fjárfest í nýrri
kaðalflettivél sem sé sú stærsta sem
smíðuð hafi verið í heiminum og jafn-
framt dýrasta fjárfesting í einstakri vél
sem ráðist hafi verið í til þessa í sögu
Hampiðjunnar . Kaðlaflettivélin sem er
smíðuð í Þýskalandi er engin smásmíði
því hún er yfir 11 metra há og kemur til
með að geta fléttað mjög sver ofurtóg í
miklum lengdum með mörg þúsund
tonna slitstyrk .
Hampiðjan hf.
Skarfagarðar 4
104 Reykjavík
Sími: 530 3300
www.hampidjan.is
Ofurtógin frá
Hampiðjunni leysa
vírinn af hólmi
Jón Guðmann Pétursson, forstjóri
Hampiðjunnar .
Meðal þess sem Hampiðjan kynnir á sjávar-
útvegssýningunni að þessu sinni er Dynex
togtaugin með álímdri hlífðarkápu .