Ægir - 01.08.2011, Síða 103
og verkefnastjórnun bæði erlendis og á
Íslandi einbeita sér nú alfarið að
markaðnum á Íslandi . Ástæðu þess að
ráðist er í þessa breytingu segir Jón
Birgir að megi meðal annars rekja til
mikils vaxtar Marels á undanförnum
árum . Annars vegar geri stærðin fyrir-
tækinu kleift að hrinda breytingu sem
þessari í framkvæmd en hins vegar kalli
stærð fyrirtækisins á að menn skerpi
fókusinn . „Rætur Marels liggja í fisk-
iðnaðinum og ég held að mönnum hér
á Íslandi hafi sumum fundist sem Marel
væri orðið of stórt og meira alþjóðlegt
en íslenskt fyrirtæki . Með þessari
breytingu skerpum við fókusinn og
aukum um leið áherslu á grunnstoðina
sem er fiskiðnaðurinn á Íslandi .“
Gildi Íslensku
sjávarútvegssýningarinnar
Jón Birgir segir Íslensku sjávarútvegs-
sýninguna mikilvægan vettvang til að
hitta viðskiptavini fyrirtækisins og ræða
við þá um þær lausnir sem Marel hefur
að bjóða . Áður fyrr var sýningin nýtt til
að kynna þær nýjungar sem voru efst á
baugi hverju sinni en á undanförnum
árum hefur alþjóðlega sjávarútvegs-
sýningin sem haldin er árlega í Brussel
orðið vettvangur slíkra kynninga . „Þótt
hlutverk Íslensku sjávarútvegs-
sýningarinnar hafi breyst að þessu leyti í
markaðsstarfinu hefur gildi hennar fyrir
okkar heimamarkað ekkert minnkað og
hún er eftir sem áður mjög mikilvæg
fyrir Marel,“ segir Jón Birgir . Hann segir
að í ár muni Marel leggja aðaláherslu á
að kynna fimmtu kynslóð af Innova
framleiðslustýringarhugbúnaðinum og
þær heildarlausnir sem hann býður upp
á . Frekar en að sýna gestum nýjustu
færiböndin og útskýra hvað þau snúast
hratt segir Jón Birgir að þeir vilji hitta
viðskiptavini sína og ræða um þær
áskoranir og vandamál sem þeir standa
frammi fyrir og finna lausnir sem duga .
„Skilaboðin sem við viljum að menn fari
með út af sjávarútvegssýningunni eru
þau að ef upp koma spurningar eða
vandamál í vinnslunni þá nægi að setja
sig í samband við Marel því þar finnist
lausn sem dugar .“
Jón Birgir segir að rekstur fisk-
iðnaðarseturs Marels hafi gengið vel
það sem af er ári . Fyrri hluta árs hafi litið
út fyrir að það væri að hægja á fjár-
festingum íslenskra fiskvinnslufyrirtækja
en úr því hefði ræst þegar leið á árið .
Hann segir að Marel hafi átt ágætt sam-
starf við Íslandsbanka um fyrirgreiðslu til
fiskvinnslufyrirtækja sem eru að fjárfesta
í nýjum tæknibúnaði . Í gegnum Ergó
þjónustu Íslandsbanka hafi fundist lausn
sem dugar til að koma hlutunum á
hreyfingu . „Við teljum að þessi lausn
henti vel og að aðgangur að fjármagni
eigi ekki að þurfa að stöðva fiskvinnslu-
fyrirtæki sem vilja fjárfesta í nýrri tækni,“
segir Jón Birgir Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri fiskiðnaðarseturs Marels
að lokum .
101
Nokkrum af lykilmönnum Marel í fiski . Frá vinstri: Óskar Óskarsson, sölustjóri Íslandi, Sigurjón Gísli Jónsson, ráðgjafi fiskiðnaðarseturs, Jón
Birgir Gunnarsson, framkvæmdastjóri fiskiðnaðarseturs, Guðjón Stefánsson, sölustjóri Íslandi og Valdimar Gestsson, þjónustustjóri Íslandi .