Ægir - 01.08.2011, Qupperneq 108
106
Fyrirtækið Kemi á Tunguhálsi 10 í
Reykjavík var stofnað árið 1991 . Í byrjun
var fyrirtækið með litla en stöðuga
starfsemi en eftir 2000 hafa umsvifin
aukist mikið og veltan margfaldast á
síðustu árum . Aðaltilgangur fyrirtækisins
er að flytja inn og dreifa efnavörum,
smurefnum, hreinsiefnum, smurtækjum
ýmisskonar o .s .frv . Birgjar fyrirtækisins
eru eru víða og þeir stærstu eru 3M,
Interflon, Novadan, Irving Oil, Megalab,
Total Elf, Unitor, DuPont, Idekemi og
Lumax . Viðskiptavinir í dag eru vel yfir
2000 og meðal þeirra stærstu eru
álverin, ýmis iðnfyrirtæki, fiskvinnslur,
útgerðir, bændur og einstaklingar . Versl-
unin að Tunguhálsi 10 er opin alla virka
daga . Helstu markmið Kemi eru að fyrir-
tækið vaxi og dafni með því að veita
fyrsta flokks þjónustu með góðar vörur,
örugga afgreiðslu og stöðugleika að
leiðarljósi .
Óskar Harðarson, sölumaður, segir
að fyrirtæki í sjávarútvegi, bæði fisk-
vinnslufyrirtæki og útgerðarfyrirtæki, sé
stór hluti viðskiptavinanna . „Kemi á í
vaxandi viðskiptum við verkstæði alls
konar, álverin, iðnfyrirtæki, verktaka,
bændur o .fl . Vöruúrval okkar er mjög
gott en við erum með ýmsar efnavörur,
koppafeiti, glussa, gírolíur og fleira sem
við kaupum m .a . frá Irving Oil og fleirum .
Svo eru vaxandi viðskipti með alls konar
öryggisvörur, eins og eyrnahlífar,
öryggishjálma, rykgrímur og suðu-
hjálma, en okkar markmið er að veita
sem allra besta þjónustu í öryggisvörum
enda eru vaxandi kröfur og aukinn
skilningur hjá fyrirtækjum á nauðsyn
þess að nota góðar vörur til að auka
öryggi starfsmanna . Það á ekki síst við
um fyrirtæki í sjávarútvegi . En sjómenn
eru sennilega hvað fróðastir um
öryggismál almennt og hvað það skiptir
miklu máli að nota góðar öryggisvörur .
Nú í seinni tíð er mest lagt upp úr því
að öryggisvörur séu viðukenndar og
góðar . Á öryggishjálmum er t .d . hnappur
sem gefur til kynna þegar notkunartími
hjálmsins er útrunninn eða hann
skemmist, og þá ber að skipta um hjálm
hjá viðkomandi starfsmanni . Þessu
getur valdið t .d . sólarljós eða selta auk
högga sem hann verður fyrir, en ef ekk-
ert slíkt kemur fyrir má reikna með um
þriggja ára endingartíma . Þar sem notuð
eru hættuleg efni sem geta valdið
augnskaða eins og t .d . ýmsar sýrur er
nauðsynlegt að vera með augn-
skolunarefni á staðnum svo hægt sé að
bregðast hratt og örugglega við ef
óhapp verður . En með þessum augn-
skolunarefnum þarf að fylgjast vel með .
Líftími þeirra er takmarkaður, jafnvel þó
aldrei sé þörf á að notað neitt af þeim .“
Aukin gæði olíuvara
Gæði olíuvaranna hafa aukist síðustu ár
og segir Óskar að umgengni um þessar
vörur hafi líka breyst til hins betra . T .d . er
betur staðið að förgun á úrgangsolíu nú
en áður og þess betur gætt að hún spilli
ekki náttúrunni . Einnig eru gerðar meiri
fyrirbyggjandi ráðstafanir við meðferð
og flutning . Kemi er með svokallaða
spilliefnapakka frá KAFKO þar sem í eru
olíuuppsogsmottur og –pylsur ásamt
umhverfisvænum hreinsiefnum til að
þrífa upp ef eitthvað fer niður .
Kemi hefur lagt áherslu á að bjóða
viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu
olíuvörur sem völ er á og á sem besta
verði . ,,Með aukinni ábyrgð okkar á
þeim olíuvörum sem við erum að bjóða
og með auknum gæðum aukast um leið
viðskiptin, enda kunna viðskiptavinir
okkar vel að meta þann metnað sem við
leggum í að uppfylla þeirra kröfur . Oft
eru þessar olíuvörur notaðar á dýr tæki,
og þá er mikilvægt að þær uppfylli þær
kröfur sem framleiðendur tækjanna
Kemi ehf.
Tunguhálsi 10
110 Reykjavík
Sími 544-5466
www.kemi.is
Mæta auknum
kröfum um
öryggisbúnað
Hús Kemi að Tunguhálsi 10 í Reykjavík .