Ægir - 01.08.2011, Síða 112
110
„Við erum sannfærð um að ullin sé það
sem sjómenn þurfa til að halda á sér
hita . Það kemur ekkert í staðinn fyrir
hana . Hún hefur bjargað Íslendingum í
gegnum aldirnar, bæði sjómönnum og
bændum sem unnu mikið úti í kulda og
bleytu,“ segir Margreta Björke sem
ásamt eiginmanni sínum, Heiðari V .
Viggóssyni, rekur tvær Janusbúðir á Ís-
landi og eina í Noregi .
Margir Íslendingar þekkja vel til
JANUS ullarfatnaðar, sem hefur meðal
annars verið afar vinsæll fyrir yngstu
kynslóðina . Á Norðurlöndum og víðar í
Evrópu er JANUS vörumerkið þekkt fyrir
endingargóðan og hlýjan undirfatnað til
notkunar við vinnu, útivist og hvarvetna
sem fólk þarf að halda á sér hita í mis-
jöfnum veðrum . Janusverksmiðjan fram-
leiðir einnig eldtefjandi undir- og
millifatnað, sem hentar fólki sem vinnur
til að mynda í álverum, málmblendiverk-
smiðjum eða á bensínstöðvum, svo
dæmi séu nefnd . Þá hafa JANUS Extra
ullarfötin verið vinsæl meðal sjómanna,
og geta útgerðarfyrirtæki gert sér-
samninga um kaup á þeim, sem og
öðrum vörum . „JANUS Extra fötin eru
hæfilega þykk og geta tekið við miklum
raka, án þess að fólki verði kalt og
henta því vel undir vöðlur, sjógalla og
ýmiss konar vinnu- og regnfatnað . Fólk
getur keypt hjá okkur ullarfatnað í
þremur þykktum, eftir því hvað hentar
hverjum og einum . Fugla- og stang-
veiðimenn sem þurfa til dæmis að vera
lengi úti, jafnvel hreyfingarlausir, þurfa
því þykkari ull,“ segir Heiðar . „Þá er gott
ráð að vera í tvöföldu eða þreföldu lagi
af ull ef það er mjög kalt . Það er alltaf
hægt að tína af sér ef manni verður of
heitt . Það getur því stundum verið
sniðugra að vera í mörgum þunnum
lögum, frekar en einu þykku .“
Ull sem ekki klæjar undan
„Merinóullin, sem JANUS vörurnar eru
prjónaðar úr, kemur af Merinó kindum á
Nýja-Sjálandi, sem eru töluvert ólíkar
norskum og íslenskum kindum . Ullin
hefur sömu eiginleika og önnur ull,
nema hvað hún er mun mýkri og fólki
klæjar ekki undan henni . Hún hentar því
líka þeim sem eru með viðkvæma húð
og finnst að öllu jöfnu óþægilegt að
klæðast ull,“ segir Margreta .
Janusverksmiðjan í Noregi hefur
stækkað mikið á síðustu árum og er nú
ein af stærstu ullarverksmiðjum í
Evrópu . Margreta segir það ævintýri
líkast að sækja verksmiðjuna heim og
sjá vinnuferlið með berum augum, allt
frá einföldum þræði upp í fullbúna flík .
„Varan gengur í gegnum fjölmörg stig
og efnið verður að hvíla inn á milli til að
jafna sig . Meðal annars er ullin hituð
upp í 60 gráður og kæld niður aftur .
Þetta er gert til að þétta ullina svo hún
minnki ekki í þvotti . JANUS vörurnar
þola því þvott í þvottavél á fjörutíu
gráðu hita . Við brýnum þó alltaf fyrir
fólki að nota sérstakt ullarþvottaefni því
að venjuleg þvottaefni innihalda ensím
sem eyða hinni náttúrulegu lanólínfitu
sem er í ullinni . Þú ert ekki lengi að
eyðileggja ullarvöru, ef þú þværð hana
með venjulegu þvottaefni, en með ullar-
þvottaefni getur hún enst árum saman .“
Janusbúðin
Laugavegi 25, 101 Reykjavík
Amarohúsinu, Hafnarstræti 99-101,
600 Akureyri
Sími 552 7499
www.janusbudin.is
Margreta Björke og Heiðar V . Viggósson, eigendur Janusbúðarinnar .
Merino kindin er töluvert ólík hinni íslensku .
Merinó ullin er sérlega mjúk og klæjar ekki
undan henni, hún hentar því viðkvæmri
húð .
Dúnmjúk merinóullin
hlýjar sjómönnum!