Ægir - 01.08.2011, Page 118
116
„Icefish sýningin er tækifæri til að kynna
nýjungar og er ástæða þess að við
höfum verið með frá upphafi . Pmt tók í
notkun fullkomnustu límmiðaprentvél,
sem völ var á fyrir síðustu sýningu . Á
meðan sýningin stóð yfir hrundu bank-
arnir og við reiknuðum ekki með að
vera með næst . Prentvélin dró okkur
svo í gegnum kreppuna . Reksturinn
hefur sjaldan verið betri og við erum
með í ár,“ segir Sigurður Oddsson hjá
Pmt í samtali .
„Límmiðaframleiðslan er kjölfestan í
rekstrinum, eins og plastumbúðir voru
hjá Plastos . Við leggjum því áherslu á
límmiðana og vélar tengdar
límmiðanotkun . Tækin komu þannig til
að skömmu eftir að ég byrjaði hjá
Plastos gengu SH og Shell til liðs við
Plastprent og ljóst að við yrðum að
bjóða eithvað meira en plastumbúðir til
að standast samkeppnina . Ég skoðaði,
hverju við gætum bætt við, sem byrjaði
með einföldum pokalokunarvélum .
Fljótlega bættust Ishida tölvuvogir við .
Grunnurinn að límmiðunum voru Ishida
miðavogir . Pökkunarvélar, dagsetninga-
prentarar og fleira fyrir iðnfyrirtæki bætt-
ist svo við . Í dag bjóðum við heildar-
lausnir með vinnsluvélum, vogum, pökk-
unarvélum, umbúðum og límmiðum .“
Þið hafið semsagt staðist
samkeppnina?
Já og gott betur, þrátt fyrir að Sjóvá og
lífeyrissjóðir hefðu bæst í hluthafhóp
samkeppnisaðilans . Við vorum fluttir í
nýtt iðnaðarhúsnæði í Garðabæ, þegar
ég seldi Plastos til Akoplasts . Áður hafði
ég stofnað sérfyrirtæki, Plastos miðar
og tæki (Pmt), um límmiðana og tækin .
Plastprent yfirtók seinna Akoplast og
þar með var engin innlend samkeppni í
framleiðslu plastumbúða . Því fór sem
fór, því samkeppnin knýr fram betri
rekstur og framfarir . Nú eru lífeyris-
sjóðirnir orðnir einu eigendur Plast-
prents . Skyldu þeir ekki hafa verið búnir
að tapa nóg á fyrirtækinu?
Hvernig er samkeppnin núna?
„Hún er ósanngjörn svo ekki sé meira
sagt . Helsti samkeppnisaðilinn var
kominn á hvínandi hausinn ári fyrir hrun .
Skv . ársreikningi 2007 hefur bankinn
fellt niður skuldir á annan milljarð áður
en hann afhenti fyrri eigendum fyrir-
tækið aftur með nýrri kennitölu og
aðeins breyttu nafni . Óneitanlega er
pirrandi að standa í svona, en við erum
ekki þeir einu . Það er fullt af fyrirtækjum
í svipaðri stöðu, sem hafa staðið við allt
sitt en eru nú í samkeppni við þá sem
hafa fengið skuldir felldar niður og
komnir með nýja kennitölu . Svona er Ís-
land í dag .“
Þú ert ekki að gefast upp og hætta?
Ég er voða lítið fyrir að gefast upp .
Reyndar er ég löngu kominn á aldur, en
hef svo gaman að þessu . Finnst sér-
staklega gefandi að sjá unga menn rífa
upp fyrirtæki með dugnaði og ósérhlífni .
Á sama hátt er jafn dapurt að sjá góð
fyrirtæki lognast út af í ástandinu sem
nú er .“
Plast miðar og tæki ehf.
Krókhálsi 1
110 Reykjavík
Sími 567 8888
www.pmt.is
Starfsfólk Pmt á góðum degi . Sigurður Oddsson er lengst til vinstri á myndinni .
Samkeppnin knýr
fram betri rekstur
Vélin hjá Lýsi í Þorlákshöfn er engin smá-
smíði .