Ægir - 01.08.2011, Page 120
118
Skipaþjónusta
Einars Jónssonar
Laufásvegi 2a
101 Reykjavík.
Sími 892-1565 & 552-3611.
Skipaþjónusta Einars Jónssonar hefur
starfað í yfir þrjá áratugi en hét í upphafi
Húseignaþjónustan . Einar var áður á
sjónum en byrjaði síðan að starfa við
skipasmíðar í Svíþjóð . Þegar heim kom
fór hann að starfa við viðhald á skipum,
aðallega við sandblástur og málun og
einnig við einangrun með polyurethan í
frystilestum .
,,Það er mest að gera við málingar-
vinnuna en það er afar misjafnt hversu
oft skip eru máluð, en yfirleitt er verið að
mála skip á tveggja ára fresti . Það er
hefðbundið hjá þeim sem vilja halda
skipunum vel við . En svo eru auðvitað
dæmi um að skip séu látin draslast ef á
að fara með þau í úreldingu . Venju-
legast eru skip einnig tekin í slipp, ekki
bara máluð niður að sjólínu, einnig
botnhreinsuð og máluð . Stundum tökum
við að okkur að lestarnar og að mála
einnig vinnsludekk enda hafa kröfurnar
verið að aukast hvað varðar mat-
vælaeftirlit og Heilbrigðiseftirlitið tekur
þetta út .
Þessi viðhaldsvinna hefur verið
svolítið óstöðug vegna þess að óvissa
ríkir í fiskveiðistjórnarmálunum og
margar útgerðir hafa haldið að sér
höndum hvað varðar viðhald og fjár-
festingar . Bæði á þetta við um skip og
viðhald þeirra og einnig fjárfestingar í
landi, s .s . byggingar á tönkum, loðnu-
vinnslum, frystihúsum, o .fl . Við höfum
einnig verið í verkefnum á lands-
byggðinni og höfum farið hringinn í
kringum landið . Ekki síst í vinnu við
einangrun á lestum og sandblástur og
málningu á tönkum og mannvirkjum . Við
erum til taks hvar sem er á landinu .“
Einar ætlar að sækja sjávarútvegs-
sýninguna í Kópavogi . Hann segir að á
fyrri sýningum hafi hann fengið hug-
myndir um ný efni, t .d . gólfefni, sem þar
hafi verið kynnt, ekki síst ýmis
epoxyíefni sem mjög gott er að þrífa
auk þess sem þessi efni eru sterk og í
þeim góð ryðvörn .
SKIPAÞJÓNUSTA EINARS JÓNSSONAR EHF
Laufásvegi 2a • 101 Reykjavík • Gsm: 892 1565 • Sími: 552 3611 • Fax: 562 4299
Útgerðarmenn . . . !
Látið okkur sjá um reglulegt viðhald á skipum ykkar og bátum.
Sérhæfum okkur í viðhaldi á vinnsludekkjum.
Fiskvinnslustöðar . . .
Háþrýstiþvottur og sandblástur.
Alhliða viðgerðir á þökum og veggjum.
Föst verðt i lboð --- Margra ára reynsla --- Le i t ið upplýs inga
Málun og einangrun skipa
Til taks - hvar sem er!
Einar Jónsson með nokkrum starfsmönnum
sínum við togarann Jón Vídalín sem verið
var að mála fyrir skömmu þar sem hann lá
við Ægisgarð .