Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 124
122
Tobis ehf.
Tjarnargötu 2
230 Reykjanesbæ
Sími 527 5599
www.tobis.is
Beitusölufyrirtækið Tobis í Reykjanes-
bæ, sem hefur starfað í sex ár mun nú á
haustmánuðum flytja til Hafnarfjarðar
þar sem talsverð aukning verður á
starfseminni . Auk þess að selja beitu á
Íslandi, Grænlandi, Noregi, til Rússlands
og víðar hefur Tobis tekið við umboði á
línu og línubúnaði frá Fiskvegn en þetta
merki þekkja línuútgerðir hér á landi af
góðu einu . Þórleifur Ólafsson, eigandi
og framkvæmdastjóri Tobis, segir þessa
breytingu kalla á fleiri starfsmenn .
„Við komum til með að annast sölu á
línunni og öllum tengdum búnaði, ásamt
allri þeirri þjónustu sem þetta krefst .
Þetta er lína sem hefur verið ein sú
vinsælasta bæði hér á landi og víða í
Norðurhöfum um langt skeið þannig að
það er verulegur fengur að því fyrir
okkur að taka við umboði fyrir þetta
merki,“ segir hann og reiknar með að
Tobis verði komið í húsnæði að
Hvaleyrarbraut 2 seint á haustmán-
uðum .
Smokkfiskurinn vinsælasta beitan
Vinsælasta beitan hjá Tobis er smokk-
fiskur enda hefur reynslan sýnt að hann
er mest alhliða fyrir flestar fisktegundir .
„Það hefur verið erfitt að fá smokk-
fiskinn vegna þess að smokkfiskvertíð í
Suður-Atlantshafi brást en engu að
síður erum við vel sett hvað birgðir af
smokkfiski varðar . Saury er einnig mjög
vinsæl beita hjá okkur en því til viðbótar
margar aðrar innfluttar fisktegundir, auk
þess sem við seljum einnig íslenska
beitu . Þá er um að ræða bæði makríl,
síld og loðnu,“ segir Þórleifur en til að
gefa hugmynd um magnið sem fer í
beitu árlega þá selur Tobis 2-3000 tonn
á ári .
„Ég hvet viðskiptavini okkar til að
koma á bás okkar á Íslensku
sjávarútvegssýningunni og kynna sér
hvað við höfum að bjóða, bæði í
beituúrvalinu og ekki hvað síst í línunni
og tengdum búnaði,“ segir Þórleifur .
Öll beita á einum stað
Kyrrahafssári
Falklandseyjasmokkfiskur
Atlantshafsmakríll
Sandsíli
Bjóðum nú
allan línubúnað
frá Fiskevegn
í Noregi
Tobis ehf.
Tjarnargata 2 - 230 Reykjanesbær
Sími 527 5599 - GSM 698 5789
Fax 421 5989 - thor@tobis.is
Afgreiðsla Ísafirði.
Afgreiðsla Dalvík.
Afgreiðsla Eskifjörður.
Afgreiðsla Höfn í Hornafirði.
Tóbis ehf
Tobis tekur umboð fyr-
ir Fiskvegn línubúnað
Smokkfiskur og saury eru vinsælustu beiturnar hjá Tobis .