Ægir - 01.08.2011, Side 140
138
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er
fjölbrautaskóli sem býður upp á bæði
bóklegt og verklegt nám en um 300
manns sækja skólann að jafnaði . Meðal
fjölbreyttra námsbrauta geta nemendur
sótt nám á skipstjórnarbraut og vél-
stjórnarbraut . „Nemendur á þessum
brautum koma víða að, en kjarninn er
þó héðan úr Vestmannaeyjum . Þetta
eru oft sjómenn sem hafa verið á
skipum sem gerð eru út frá Vestmanna-
eyjum, hafa kannski verið til sjós í
nokkur ár en séð svo að það væri gott
að ná sér í réttindin,“ segir Ólafur Hreinn
Sigurjónsson, skólameistari Framhalds-
skólans í Vestmannaeyjum .
Vélstjórnarnámið hefur notið mikilla
vinsælda og er nánast alltaf fullskipað .
„Við bjóðum annars vegar upp á vél-
stjórnarbraut A, sem er ætluð þeim sem
hyggjast afla sér réttinda til að starfa á
skipum með vélarafl undir 750 kW . Hins
vegar bjóðum við vélstjórnarbraut B,
sem er ætluð þeim sem vilja ljúka rétt-
indum til að gegna stöðu yfirvélstjóra og
1 . vélstjóra á skipum með vélarafli undir
1500 kW og undirvélstjóra á skipum
með 300 kW og minna . Réttindi fást svo
að fullnægðum skilyrðum um siglingar-
tíma og starfsþjálfun,“ segir Ólafur
Hreinn .
Hermirinn eykur möguleikana
„Við erum núna komin með nýjan
vélarrúmshermi sem mun bæta
verulega við möguleikana í kennslunni .
Við fengum myndarlegan stuðning frá
útvegsmönnum hér í Vestmannaeyjum
til að kaupa herminn sem svipar nokkuð
til flugherma sem fólk kannast kannski
við . Nemandinn er þá í þrívíðu
vélarrúms-umhverfi og leysir sams-
konar vandamál og koma upp í
raunveruleikanum,“ segir Ólafur Hreinn
og bætir við að með því móti öðlist
nemendur mun betri reynslu en ella .
„Við erum einnig með nám fyrir skip-
stjórnarmenn . Það er ekki alveg eins
vinsælt og vélstjórnarnámið en við
söfnum í hópa og keyrum þá í gegn
öðru hverju . Skipstjórnarnámið er fyrir
fyrstu tvö réttindin, A stig og B stig, en
þau duga til dæmis fyrir flest íslensk
skip .“
Undanfarið hefur verið töluverð fólks-
fjölgun í Vestmannaeyjum og finnur FÍV
fyrir vinsældum eyjanna . „Við verðum
vör við það hér í skólanum að fólk er að
flytja hingað . Hér hefur vantað fólk í
margar atvinnugreinar og við sjáum líka
marga sem hafa alist upp hérna, meðal
annars gamla nemendur okkar, sem eru
að snúa til baka eftir háskólanám, sem
er ánægjulegt .“
Ólafur Hreinn segir Framhalds-
skólann í Vestmannaeyjum hentugan
kost þar eð hann bjóði bæði upp á
bóklegt og verklegt nám . Námi við
skólann lýkur með stúdenssprófi sem
veitir rétt til inngöngu í háskóla og ýmsa
sérskóla eða starfsréttindanám .„Námið
er ekki dýrt miðað við marga aðra fag-
skóla, en þeir sem eru í þessu námi hjá
okkur borga bara sama skólagjald og
aðrir nemendur eða um 12 .000 krónur á
önn . Þeir sem eru í verknámi eins og
þessu þurfa að auki að borga efnis-
gjöld, en það eru ekki háar upphæðir,“
segir Ólafur Hreinn og hvetur alla sem
áhuga hafa á að ná sér í réttindi eða
bæta við sig námi að láta slag standa .
Framhaldsskólinn í
Vestmannaeyjum
Dalavegi
900 Vestmannaeyjar
Sími 488 1070
www.fiv.is
Gísli Eiríksson, vélstjórnarkennari við tölvuskjána . Hér má sjá það viðmót sem nemendurnir
vinna í .
Ólafur Hreinn Sigurjónsson, skólameistari
Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum .
Fullkominn vélarrúms-
hermir bætir kennslu