Ægir - 01.08.2011, Blaðsíða 150
148
„Innan Matís eru á hverjum tíma
fjöldamörg verkefni sem snúa beint að
sjávarútvegi og nýtingu á auka-
hráefnum . Ég nefni sem dæmi þróun
ferla til þurrkunar á aukahráefni, þróun á
afurðum úr slógi, nýting aukafurða í fisk-
eldi og þannig má telja . Þetta teljast til
hefðbundnari verkefna hjá okkur en
síðan er hinn flokkurinn sem er í stöð-
ugri sókn, þ .e .a .s . líftæknin . Þar má
segja að við séum komin yfir í mögu-
leika til að umbreyta þessum auka hrá-
efnum í eitthvað mun verð\mætara en
við gerum í dag . Á öllum sviðum eru
tækifæri en ekki hvað síst í líftækninni
og þar stöndum við hjá Matís vel að
vígi,“ segir Hörður Kristinsson, rann-
sóknastjóri Matís ohf ., aðspurður um
verk efni fyrirtækisins á sviði sjávar-
útvegs .
Mikil virkni efna úr þangi og þara
Sem dæmi um líftæknina nefnir Hörður
möguleika til að taka aukahráefni úr bol-
fiski, einangra úr þeim prótein sem aftur
eru unnin áfram með ensímum og þau
klofin niður í peptíð . Þar með eru
próteinin komin á form sem hægt er að
vinna í duft- eða töfluform sem íblöndun
í t .d . matvæli og gera þau þannig heilsu-
samlegri . „Þetta er dæmi um ferli þar
sem líftækninni er beitt og úr verður
verðmæt afurð . Við erum með verkefni í
gangi þar sem einmitt þetta er gert og í
því tilfelli er verið að gera prófanir með
íblöndun á próteinunum í fiskibollur og
fleiri matvæli . Á þennan hátt er hægt að
gera fiskibollurnar ennþá hollari,“ segir
Hörður og nefnir að í öðrum verkefnum
komi sérfræðingar að því að auka magn
omega-3 fitusýra í sjávarfangi og
ýmsum öðrum vörum .
„Það allra nýjasta á líftæknisviðinu og
eitt af mörgum spennandi verkefnum
hjá okkur er að auka möguleika á
nýtingu þangs og þara . Í mörgum
löndum í kringum okkur, t .d . Frakklandi,
Kanada, Skotlandi, Írlandi og jafnvel í
Noregi höfum við séð að menn eru
komnir lengra í nýtingu á þangi og þara
Matís
Vínlandsleið 12
113 Reykjavík
Sími 422 5000
www.matís.is
Það nýjasta á líftæknisviðinu og eitt af mörgum spennandi verkefnum hjá Matís er að auka
möguleika á nýtingu þangs og þara .
Líftæknin er
fjársjóður
framtíðarinnar