Ægir - 01.08.2011, Page 156
154
Fyrirtækið Dæluhúðun í Keflavík beitir
nýjustu tækni í viðgerðum og fyrir-
byggjandi viðhaldi á dælum, skrúfum og
öðrum málmhlutum sem mikið álag er á
t .d . í skipum og vinnsluhúsum . Málm-
hlutirnir eru húðaðir með svokölluðu
Belzona - keramikefni og í þeim tilfellum
sem laga þarf skemmda hluti, s .s . vegna
tæringar eða ryðs, eru þar til gerð efni
notuð til að steypa í skemmdirnar áður
en húðað er . Á einföldu máli má segja
að mikið þurfi til að járnhlutur öðlist ekki
nýtt og langt líf í höndum sér-
fræðinganna hjá Dæluhúðun .
Gunnlaugur Hólm Torfason er
stofnandi og framkvæmdastjóri
Dæluhúðunar . Hann er ekki í vafa um
að þessi tækni getur víða leyst
kostnaðarsöm vandamál í skipum og
bátum .
„Húðunartækninni kynntist ég á
sínum tíma í starfi í fiskeldistöðinni Silfur-
stjörnunni en þar var gerð tilraun með
góðum árangri með húðun á dælum .
Eftir að ég fluttist til Keflavíkur ákvað ég
að fara út í þessa tækni og hef séð um
viðhald á dælubúnaði fyrir fiskeldisfyrir-
tækin Stofnfisk og Íslandsbleikju, auk
þess sem við höfum tekið að okkur við-
gerðir á dælum úr skipum, sundlaugum,
gert við skrúfur skipa, olíupönnur úr
bílum og margt fleira . Við höfum líka
gert við blokk úr aðalvélum og ljósa-
vélum skipa, gerðum við skemmdir og
húðuðum síðan yfir . Í þeim tilfellum hafa
viðgerðirnar haldið í nokkur ár og
sparaði útgerðinni stórfé,“ segir Gunn-
laugur Hólm en Dæluhúðun hefur í
starfsemi sinni náið samstarf við Vélar
ehf . í Reykjavík .
Málmhluturinn öðlast nýtt líf
Af sjálfu leiðir að álag á málmhluti er
mikið í sjávarútvegi - aðstæðnanna
vegna . Seltan tærir og framkallar ryð,
auk þess sem mikið álag er á dælum,
skrúfum og ýmsum slíkum búnaði .
Tæringarskemmdir virðast gjarnan við
fyrstu sýn vera fyrirboði um mikil fjárútlát
og viðgerðir en Gunnlaugur segir marg-
borga sig að skoða málin vandlega
áður en ákvörðun um slíkt sé tekin . „Við
höfum mörg dæmi um vélarhluti, t .d .
dælubúnað, þar sem við höfum þurft að
laga stóran hluta dælublaðanna og
höfum síðan húðað þau . Við leggjum
mat á það hvaða efni nota skal til við-
gerða eftir því í hvers konar álagi við-
komandi hlutur er en ég fullyrði að vel
viðgerður hlutur með Belzona húð getur
orðið eins og nýr og skilað notandanum
mörgum árum, jafnvel áratugum í lengri
notkun,“ segir Gunnlaugur .
Viðgerðir á skipsskrúfum eru fljótar
að borga sig því með húðun minnkar
viðnám, straumtæring hverfur og gróður
nær ekki festu á skrúfublöðunum .
Nýuppgerður dælubúnaður hefur einnig
skilað eigendum sínum verulegum
orkusparnaði í kjölfar upptektar hjá
Dæluhúðun .
„Öll efni sem við notum í okkar við-
gerðir eru viðurkennd til notkunar í
kröfuhörðustu greinum á borð við mat-
vælaiðnað . Þau eru því kjörin sem við-
haldslausnir fyrir sjávarútveg og því
horfum við mjög til þeirrar greinar,“ segir
Gunnlaugur en auk húðunar annast
Dæluhúðun ýmar gúmmíviðgerðir, s .s . á
mótorpúðum, gírkassapúðum, netaaf-
drögurum og nótablökkum
Dæluhúðun ehf.
Austurbraut 4
230 Keflavík
Símar 895-3556, 821-2671
og 421 4426
www.hudun.is
Tæringar vanda-
málin leyst!
Skipsblokk fær viðgerð hjá Dæluhúðun .
Illa farið dæluhjól fyrir og eftir meðferð . Skrúfublöð vilja tærast og skemmast . Hér er dæmi um hvernig
skrúfa öðlast nýtt líf .