Ægir - 01.08.2011, Side 158
156
Í Fisktækniskóla Suðurnesja er boðið
upp á tveggja ára grunnnám á sviði
veiða, fiskvinnslu og fiskeldis á fram-
haldsskólastigi ásamt endurmenntun
fyrir starfandi fólk . Skólinn er í eigu Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum,
Grindavíkurbæjar, mennta- og fræðslu-
aðila á Suðurnesjum, einstaklinga, fyrir-
tækja og stéttarfélaga á Suðurnesjum á
sviði fiskeldis, veiða og vinnslu sjávar-
afla .
„Fisktækniskólinn býður upp á hag-
nýtt, tveggja ára einingabært nám með
mikla áherslu á vinnustaðaþjálfun og
atvinnulífið,“ segir Nanna Bára Marías-
dóttir verkefnastjóri . „Námsárið skiptist í
eina önn í skóla með áherslu á fag-
greinar og eina önn á vinnustað undir
leiðsögn tilsjónarmanns . Fólk sem vill
hasla sér völl í þeim greinum sem
skólinn býður upp á fær því tækifæri að
mynda góðar tengingar út í atvinnulífið
auk þess að búa sig undir frekara nám .
Náminu lýkur með framhaldsskólaprófi .
Með námi í skólanum fá nemendur
aukin tækifæri til sérhæfingar og geta
sýnt ábyrgð, frumkvæði og skipulags-
hæfni í störfum sínum . Skólinn býður
upp á fjölbreyttar námsleiðir sem þró-
aðar hafa verið í nánu samstarfi við
greinina og gefur námið bæði miklar
framtíðaratvinnumöguleika auk réttinda
til frekara náms í öðrum skólum, bæði
hérlendis og erlendis .“
Námsframboð Fisktækniskólans
Fiskvinnsla: Nemendur læra um fersk-
leika og meðhöndlun fisks ásamt því að
fá þekkingu varðandi gæðakerfi sem
notuð eru í sjávarútvegi og markaðsmál
ásamt fræðslu um vélar, tæki og búnað
sem þarf til að hámarka verðmæti fisks í
sátt við umhverfið .
Sjómennska: Nemendur læra skip-
stjórn smáskipa (pungapróf), vélavörslu,
aflameðferð og veiðitækni ásamt því að
kynnast hlutverki stjórnsýslu og ytra um-
hverfi greinarinnar . Markmiðið er að
nemendur geti stundað sjómennsku
hvort sem er á smáskipi eða frystitogara
með það að leiðarljósi að hámarka
gæði og verðmæti fisksins ásamt því að
stunda fagleg vinnubrögð við
meðhöndlun, eftirlit og viðhald á
veiðarfærum á fiskiskipi .
Fiskeldi: Auk grunnnáms í vinnslu og
sjómennsku sérhæfa nemendur sig á
sviði fiskeldi með áherslu á almenn störf
í greininni . Námið er góður grunnur að
frekara námi við skóla hérlendis sem og
samstarfsskóla Fisktækniskólans er-
lend is .
Netagerð: Netagerð er samnings-
bundið iðnnám og löggilt iðngrein .
Meginmarkmið er að veita nemendum
þekkingu og færni í hönnun, fram-
leiðslu, viðhaldi og viðgerðum á
veiðarfærum . Náminu lýkur með sveins-
prófi og geta nemendur haldið áfram í
meistaranámi og/eða til frekara náms á
háskólastigi að loknu viðbótarnámi .
Námskeið í fullorðinsfræðslu og
endurmenntun: Jafnframt er boðið upp
á stök námskeið fyrir hópa frá Vinnu-
málastofnun eins og nám í skipstjórn
fyrir 12 metra báta og styttri og
vélavarðanám . Smáskipaprófið er 105
kennslustundir og vélavörðurinn 85
kennslustundir .
„Fisktækniskólinn er lítill skóli sem
leggur áherslu á að vinna með hverjum
nemanda miðað við þarfir hans og óskir .
Jafnframt er unnið að samstarfi 9 fram-
haldsskóla um allt land á sviði mennt-
unar í sjávarútvegi,“ segir Nanna Bára .
Frekari upplýsingar er hægt að fá í
síma 412 5965 eða á heimasíðu skólans
á www .fiskt .is
Fisktækniskóli Íslands ehf
Víkurbraut 56
240 Grindavík
Sími 4125965
www.fiskt.is
Fisktækniskólinn
Icelandic College of Fisheries
Víkurbraut 56
240 Grindavík
Sími: 412 5940
www.fiskt.is
www.facebook.com/fisktaekniskoli
info@fiskt.is
Fisktækniskólinn býður upp á stutt, skemmtilegt og hagnýtt
einingabært nám sem opnar þér �jölda möguleika í vel launuð störf
í sjávarútvegi auk möguleika á framhaldsnámi að loknu grunnnámi
Fisktækniskóli Suðurnesja
Námið er til tveggja ára og með mikla áherslu á tengingu við atvinnulífið og vinnustaðaþjálfun.
Námsárið skiptist í eina önn í skóla með áherslu á faggreinar og eina önn á vinnustað undir
leiðsögn tilsjónarmanns. Fólk sem vill hasla sér völl í þeim greinum sem skólinn býður upp á
fær því gott tækifæri að mynda góðar tengingar út í atvinnulífið auk þess að búa sig undir frekara
nám. Náminu lýkur með framhaldsskólaprófi.
Samstarfsaðilar Fisktækniskólans eru:
Einhamar ehf, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur, Stakkavík ehf, Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur, Verkakýðsfélag Grindavíkur, Vísir ehf, Þorbjörn ehf, Þróttur ehf
Fisktækniskólinn býður upp á nám í:
Fiskvinnslu, sjómennsku, fiskeldi og netagerð
Meðhöndlun á fiski er einn af lykilþáttum í
námi Fisktækniskólans .
Fisktækninám á
framhaldsskólastigi