Ægir - 01.08.2011, Side 160
158
Ný Skipaskrá og sjómannaalmanak fyrir
árið 2012 frá fyrirtækinu Árakló er í
undirbúningi og mun verða dreift fyrir
áramót til útgerða skipa og báta í rekstri .
Einnig verður henni dreift til
framkvæmda- og útgerðastjóra stærri
fyrirtækja auk fleiri aðila .
Fyrirtækið Árakló er í eigu Jóns Sig-
urðssonar sem er menntaður vélstjóri,
skipaáhugamaður og fyrrum starfs-
maður Fiskfélags Íslands . Í því starfi kom
hann að útgáfu sjómannalmanaks Fisk-
félagsins um árabil og ritstýrði síðustu
árgöngum bókarinnar í útgáfu Athygli
ehf . Jón segir bókina með mjög hefð-
bundnu sniði en þetta er sjötta árið í röð
sem Jón gefur út skipaskrá og sjó-
mannaalmanak með þessum hætti .
„Uppbygging bókarinnar er mjög lík
frá ári til árs, enda má segja að maður
gerir ekki stórar breytingar á því sem er
vel heppnað og fær góðar viðtökur
notenda,“ segir Jón en í bókinni eru
upplýsingar um sjávarföll, vita- og
sjómerki, veður og sjólag, fjarskipti,
öryggismál og fleira . Þá fylgir henni eins
og áður geisladiskur með m .a . laga- og
reglugerðakafla en hann er auðvelt að
lesa í sérstöku forriti með öflugri
leitarvél . Þá er á diskinum að finna
ýmsar aðrar hagnýtar upplýsingar eins
og eyðublöð frá Hafró og öðrum
opinberum aðilum .
Skipaskráin í bókinni er mjög mikið
notuð af sjómönnum en þar er að finna
ítarlegar upplýsingar um öll skip og báta
á skrá hjá Siglingastofnun . Skránni er
skipt í tvo hluta, mynda- og textaskrá . Í
myndaskrá eru skip og bátar sem eru í
rekstri, þar með taldir opnir bátar . Í
textaskrá eru upplýsingar um önnur skip
og báta .
„Ég hef stundum sagt að sumar
síðurnar í bókinni eru upplesnar,“ segir
Jón „og ég er ekki í vafa um að þetta er
mest lesna bókin á Norður-Atlantshafi .“
Samkvæmt lögum er skylda að vera
með sjómannaalmanak um borð í öllum
skipum, 12 metrum og lengri . Engu að
síður er bókinni einnig dreift til smærri
báta, líkt og áður segir .
Jón fer reglulega um landið, bæði til
að hitta útgerðarmenn og sjómenn og
taka jafnframt myndir af skipum og
bátum . Sjálfur hefur hann tekið um
helming þeirra mynda sem eru í bókinni .
Hann segist alltaf hafa verið mikill
áhugamaður um skip og báta .
„Já, þessi áhugi hefur fylgt mér alla
tíð . Ég hef alltaf haft gaman af vélum og
var mikið í bílum og mótorhjólum áður
en ég fór á sjóinn . Og síðan snerist starf
mitt líka um vélbúnað skipa þau ár sem
ég var hjá Fiskifélagi Íslands þannig að
útgáfa á Skipaskránni og sjómanna-
almanakinu var bara áframhald á þessu
áhugamáli mínu,“ segir Jón sem mun
eiga annríkt næstu vikur við undir-
búning á Skipaskránni 2012 .
Árakló slf
Hamravík 50
112 Reykjavík
jon@sjs.is
Fylkir KE 102 er dragnóta- og netabátur, smíðaður í Rönnang í Svíþjóð árið 1985 . Ítarlegar upplýsingar um hann og á 3 . þúsund önnur för er
að finna í Skipaskrá Áraklóar . Ljósm . Jón Sigurðsson .
Mest lesna bókin á
Norður-Atlantshafi