Ægir - 01.08.2011, Síða 162
160
„Kaupendur sjávarafurða og neytendur
um heim allan eru að verða betur með-
vitaðir um umhverfismál og nauðsyn
þess að nýta land og mið á sjálfbæran
hátt,“ segir Guðný Káradóttir, markaðs-
stjóri Iceland Responsible Fisheries, og
bætir við að auk þess séu strangari
kröfur gerðar til ábyrgra fiskveiða hjá al-
þjóðastofnunum . „Iceland Responsible
Fisheries verkefninu er ætlað að kynna
uppruna íslenskra sjávarafurða og miðla
upplýsingum um ábyrgar fiskveiðar til
kaupenda og annarra hagsmunaaðila á
markaði fyrir íslenskar sjávarafurðir . Við
viljum styrkja og viðhalda þeirri
verðmætu ímynd sem íslenskt sjávar-
fang hefur með því að tengja saman
uppruna þess og ábyrgar fiskveiðar .“
Unnið er að vottun á veiðum undir
merkjum Iceland Responsible Fisheries
og hafa þorskveiðar Íslendinga verið
vottaðar af óháðum vottunaraðila,
Global Trust á Írlandi . Vottunarferlið er
unnið samkvæmt alþjóðlegum stöðlum
og eru kröfulýsingar unnar samkvæmt
leiðbeiningum Matvæla- og landbún-
aðarstofnunar Sameinuðu Þjóðanna,
FAO, um umhverfismerkingar og vottun
vegna veiða úr villtum stofnum .
Áhugaverðir fyrirlesarar
Þann 22 . september stendur Iceland
Responsible Fisheries fyrir hádegis-
verðarfundi um ábyrgar fiskveiðar og
markaðssetningu í sjávarútvegi . John
Sackton, markaðsgreinir á sviði
sjávarútvegs og ritstjóri fréttasíðunnar
SeafoodNews .com, lýsir hvernig norður-
amerískir smásöluaðilar hafa tekið upp
þá stefnu að kaupa einungis
sjávarafurðir úr sjálfbærum stofnum og
hvernig þeir sýna fram á uppruna
vörunnar . Þá ræðir Peter Vassallo um
áratuga reynslu sína af að selja ís-
lenskar sjávarafurðir í Bretlandi, en fyrir-
tæki hans, Cumbrian Seafood, leggur
mikla áherslu á ábyrgð í um-
hverfismálum . Fyrirtæki hans var einmitt
það fyrsta sem fór í gegnum vottun á
rekjanleika sjávarafurða undir merkjum
Iceland Responsible Fisheries .
„Það verður áhugavert að heyra
hvað þeir Sackton og Vassallo hafa fram
að færa um þróun á mörkuðum og
kröfur í innkaupum á sjávarfangi .
Fjölmargar verslunarkeðjur í Bretlandi,
Bandaríkjunum og víðar hafa einmitt
sett sér þá stefnu að skipta eingöngu
við birgja sem bjóða sjávarafurðir unnar
úr fiskistofnum sem hafa hlotið vottun
fyrir ábyrgar fiskveiðar,“ segir Guðný .
Markaðstæki sem skilar árangri
„Verkefnið Iceland Responsible Fis-
heries var sett á laggirnar til að koma
upplýsingum um íslenskan uppruna og
ábyrgar fiskveiðar Íslendinga á framfæri
á mörkuðum fyrir íslenskar sjávarafurðir,
einkum við stóra kaupendur erlendis,“
segir Guðný og bætir við að viðbrögðin
við Iceland Responsible Fisheries hafi
ekki látið á sér standa . Víðtæk sam-
staða sé meðal íslenskra fyrirtækja um
verkefnið sem skilar sér í góðri kynn-
ingu erlendis . Nú þegar hafi
verslunarkeðjan Waitrose í Bretlandi
hampað íslenska þorskinum sérstaklega
í auglýsingaherferð í kjölfar vottunar-
innar, sem hefur leitt til stórfelldrar sölu-
aukningar og Morrisons selur nú þorsk
með auðkennismerki fyrir vottun á
rekjanleika . „Með markvissu innra starfi
sjávarútvegsins og þessu kynningar-
átaki undir merkjum Iceland Res-
ponsible Fisheries má stuðla enn frekar
að því að treysta stöðu íslenskra
sjávarafurða á samkeppnismörkuðum í
sessi og sýna ábyrgð í verki .“
Iceland Responsible
Fisheries
www.responsiblefisheries.is
Guðný Káradóttir, markaðsstóri Iceland Responsible Fisheries . „Við viljum styrkja og við-
halda þeirri verðmætu ímynd sem íslenskt sjávarfang hefur með því að tengja saman upp-
runa þess og ábyrgar fiskveiðar .“
Nútíma markaðir
krefjast sjálfbærra
fiskveiða