Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 21

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Page 21
Hjalað við Medeu lenzka mállýzku, Aisor, stundum nefnd Kaldverjar eða Assýringar í vest- rænum bókum; þeir eru kristinnar trúar og halda sið Jakobíta eða Nestoríana. Kákasusmál, eða þau mál í Kákasuslöndum sem ekki eru skyld neinum þessara ættbálka, skiptast í þrjár kvíslir: norðvesturmálin og norðaustur- málin — þau ganga norðanfjalls — og suðurmálin eða kartvelsk mál; þau ganga fyrir sunnan fjall. Hver þessara kvísla er ætt út af fyrir sig, og þær tungur sem þar heyra eru allar runnar af sömu rót, frumtungu sem til hefur verið einhvern tíma í fyrndinni; þó eru málin líklega víða svo fjarskyld að þau hljóta að hafa greinzt hvert frá öðru fyrir örófi alda. Aftur á móti hafa öngvar sönnur verið færðar fyrir skyldleika á milli ætthálkanna þriggja; en vitaskuld er ekki með því þvertekið fyrir að þeir geti verið skyldir. Og svo sem skyldleiki þessara ættbálka sín á milli er allur á huldu, slíkt hið sama er óvinningur að ætla nokkuð á um skyldleika þeirra, hvers einstaks eða allra, við önnur tungumál. Sitthvað mun þó vera ekki óáþekkt í bask- neskri tungu og sumum Kákasusmálanna, t. a. m. fj ölpersónulegar sagnir (sögnin er ekki aðeins hneigð eftir frumlaginu eins og hjá oss er tíðkanlegt, heldur einnig eftir andlögunum) og fleira, og hafa því sumir menn látið sér til hugar koma að einhvern tíma aftur í grárri forneskju komi saman ættir þessara tungna. En æði fjarlægur myndi sá skyldleiki vera ef einhver væri. Og hið sama á við búrúsaski, tungumál lítillar þjóðar í Hindúkúsfj öllum, en það hefur stundum verið rakið saman við Kákasusmál. Líklegri tilgáta væri það að skyldleiki sé á milli einhverra ættbálkanna í Kákasus og þeirra mörgu forntungna í nálægum löndum sem enn hefur hvergi tekizt að sveitfesta: höttsku, úrörtsku, húrrnesku, elömsku, súmersku o s. frv. En allt hingað til hafa slíkar rannsóknir ekki leitt til neins; svipur með málkerfunum, fjölpersónulegar sagnir, tvítug talning (fjörutíu er sama sem tvisvar tuttugu o. s. frv.), gerandafall (ergativus, haft sem frumlag með áhrifssögnum), líkindi í hljóðafari og þar fram eftir, — allt getur þetta verið eintóm tilviljun og verður af því ekkert ráðið um skyldleika málanna. Georgisk1 tunga eða kartvelska er helzt og langfjölmennust sunnantungn• 1 Georgía er afbökun ítalskra manna í fyrri daga á persnesku, serknesku og tyrknesku nafni landsins (á persnesku Gúrdjistan; Gúrdjí, georgiskur maður). Sama nafn hafa Rússar afbakað í orðinu Grúzija. Nú er það orðin hefð hér á landi að hafa ítalska nafnið, þótt einstaka maður sjáist stundum sletta því rússneska, og þykir höfundi þessa spjalls ekki ástæða til að breyta frá þeirri venju. Georgíumenn nefnast sjálfir Kartvelní eða Kartvelebí, land sitt kalla þeir Sakartvelo; og mætti úr þeim orðum búa til heitin Kartvelir, Kartvelaland, kartvelsk tunga o. s. frv. 11
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.