Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Blaðsíða 40

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Blaðsíða 40
Tímarit Máís og menningar anir, lýöveldissinna og konungssinna, en öllum var þeim það sameiginlegt, að þeir óttuðust verkalýðinn og hreyfingu hans. Parísarbúar, smáborgarar og verkamenn, kröfðust þess af stjórninni, að í varnarstríði þjóðarinnar yrðu allir kraftar nýttir og ekki farið að pólitískum skoðunum. Það var fyrir at- fylgi Parísarbúa, að sjálfboðaherinn, Þjóðvarðlið borgarinnar, var aukinn upp í 200 þúsundir manna. Til þessa hafði lið þetta verið valið til þjónustu úr auðmannahverfum Parísar, en nú gengu verkamenn og smáborgarar í hinar nýju herdeildir. Þjóðvarðliðið var vel vopnum búið, átti til að mynda tvö þúsund fallbyssur, sem það hafði sjálft aflað sér. En ríkisstjórnin taldi, að leiknum væri lokið við Þjóðverja og óttaðist mátt Þjóðvarðliðsins. Sú skoðun varð æ almennari í París, að stjórnin sæti á svikráðum við þjóðina og hygði á frið við Þjóðverja. í umsátrinu óx neyðin og atvinnuleysið í París. Áhrif hinna byltingarsinnuðu samtaka fóru ört vaxandi og Blankistar reyndu tvisvar að hefja uppreisn, seint í október og 22. janúar 1871. Verkamenn stofnuðu nú með sér ný samtök, eftirlitsnefnd í hverju hinna 20 umdæma Parísar, en þar við bættist svokölluð „miðnefnd hinna 20 umdæma“. Þessi miðnefnd gaf út stefnuskrá, og var þar krafizt kosinnar borgarstjórnar, fundafrelsis, prentfrelsis, skömmtunar á matvælum, hervæðingar fólksins. Þá var það ekki veigaminna, að Þjóðvarðliðið setti á stofn miðnefnd, sem skipuð var að mestu verkamönnum og smáborgarafólki. Hún lýsti yfir því stefnumarki, að afstýra hverri tilraun til að velta lýðveldinu, og gæta hags- muna Þjóðvarðliðsins. En umsátrinu hélt áfram. Þegar París varð að gefast upp 28. jan. 1871, þá var það sulturinn sem réð úrslitum, en ekki prússnesk vopn. Þýzki herinn þorði ekki að hernema París, hershöfðingjarnir kunnu vel að meta skotfimi ihúanna, og aðeins í 3 daga hélt þýzki herinn nokkrum hluta borgarinnar hernumdum og var það reyndar meira til að sýnast og metta þýzka hégóma- dýrð. Meðan á umsátrinu stóð fékk franska rikisstjórnin safnað saman herj- um, en herstjórn var léleg og loks komust valdhafarnir að þeirri niðurstöðu, að ekki væri annarra kosta völ en semja vopnahlé. Bráðabirgðafriðurinn var undirritaður í Versölum. Adolphe Thiers, gamall stjórnmálarefur, samdi við Bismarck fyrir hönd Frakklands. Það varð að ganga að afarkostum: selja Elsass-Lothringen af hendi til þýzka keisaradæmisins og greiða 5 milljarða gullfranka í stríðsskaðabætur. Þegar vopnahléð var gert 28. janúar var Þjóðvarðliðinu leyft að halda vopnum sínum. En 28. febr. 1871 þegar undirritaður var bráðabirgðafriður ætlaði franska herstjórnin að framselja fallbyssur Þjóðvarðliðsins í hendur 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.