Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Side 44

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Side 44
Tímarit Máls og menningar miðnefndarmönnunum, Ranvier, skrautlistarmálari að atvinnu, en blankisti að skoðunum, ávarpaði mannfj öldann: „Hjarta mitt er svo fullt gleði, að ég get ekki haldið langa ræðu. Leyfið mér aðeins að þakka alþýðu Parísar fyrir það stórkostlega fordæmi, sem hún hefur nú gefið heiminmn. í nafni þjóðar- innar, kommúnan er stofnuð!“ Franskur maður, G. Mandé, sem var þar viðstaddur, en raunar enginn að- dáandi kommúnunnar, lýsti síðar þessari stundu með svofelldum orðum: „Ég er ekki stj órnmálamaður, heldur áhorfandi sem sér, heyrir og þreifar á. Ég var staddur á torginu fyrir framan ráðhúsið þegar lesin voru upp nöfn kommúnumannanna og er ég skrifa þessar línur orkar þessi stund mjög á mig. Hve margir skyldu þeir hafa verið? Hvaðan voru þeir komnir? Frá öll- um hverfum borgarinnar. í hliðargötunum stóðu í þéttum fylkingum vopn- aðir menn, flugbeittir byssustingir glóðu í sólskininu, því líkast að eldingar í þúsundatali titruðu á torginu. Fyrir miðju torginu var komið fyrir hápalli, að baki gnæfði myndastytta lýðveldisins og bar á höfði frýgverska húfu... Hljómsveit hersins leikur mars- ejesinn og allur mannfjöldinn tekur undir. Allt í einu kveða við þórdunin: úr fallhyssu. Söngurinn hækkar, og fallbyssudrunurnar heyrast ekki fyrr en söngurinn hættir. Fagnaðarlæti hins óteljandi manngrúa yfirgnæfa allt og allir þessir menn eiga sér aðeins eitt hjarta og eina rödd.“ Þennan sama dag sagði miðnefnd Þj óðvarðliðsins af sér og afhenti völdin kommúnunni. Nefndin lýsti því um leið yfir, að kommúnan væri hin eina löglega stjórn, en sjálfri sér ætlaði hún það hlutverk eitt að vernda kommún- una og endurskipuleggja Þjóðvarðliðið. Hinir 90 borgarráðsmenn, sem kosnir voru í kommúnuna 26. marz týndu bráðlega tölunni: 15 auðborgarar sögðu sig svo til strax úr ráðinu og aðrir heltust úr lestinni af ýmsum ástæðum. Hinn 16. apríl þurfti að kjósa 21 mann í þau sæti borgarráðsmanna, sem stóðu auð. Að ytra borði var komm- únan aðeins borgarráð Parísar, en sjálf taldi hún sig einnig vera þjóðsam- komu og ríkisstjórn og hagaði starfsemi sinni samkvæmt því. Hinn 29. marz samþykkti kommúnan að skipa tíu stjórnarnefndir, en hver þeirra starfaði að hætti ráðuneyta. Allar voru nefndir þessar eingöngu skipaðar mönnum kommúnunnar, en þeir störfuðu eftir sem áður í kommúnuráðinu. Meðal þessara nefnda má nefna framkvæmdanefndina, fjármálanefndina, öryggis- málanefndina og utanríkismálanefndina, og ber sú síðastnefnda því greinilega vitni, að kommúnan taldi sig ekki vera einskæra borgarstjórn. Nefndir þess- ar skyldu þó ekki vera sjálfráðar: dag hvern áttu þær að gera kommúnunni 34
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.