Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Síða 46
Tímarit Máls og menningar
fylgdu Proudhon, en flestir ef ekki allir höfðu þeir verið félagar í Parísar-
deild AlþjóSasambandsins, höfSu mikla starfsreynslu í verkalýSsfélögum og
kölluSu sig ýmist byltingarsinnaSa sósíalista eSa alþjóSahyggjumenn. Einn
merkasti leiStoginn meSal þessa minnihluta var Ungverjinn Frankel, sem
hafSi sezt aS í París.
Þótt hér hafi veriS reynt aS draga nokkrar línur milli þessara pólitísku
hópa kommúnunnar þá eru mörkin ekki alltaf skýr. Ef kommúnunni hefSi
orSiS lengri lífdaga auSiS hefSu margar af pólitískum tálsýnum kommúnu-
manna horfiS í eldi reynslunnar og þeir hefSu einbeitt sér frekar aS raun-
hæfum viSfangsefnum en tímafrekum táknrænum skemmdarverkum svo sem
niSurbroti Vendómesúlunnar. En þrátt fyrir mörg mistök tókst kommúnimni
aS vekja ParísaralþýSuna af þeim dásvefni, sem tveggja áratuga keisara-
stjórn hafSi á hana lagt. Óteljandi pólitískir klúbbar voru stofnaSir þar sem
rætt var um öll vandamál mannlegs félags og franskar konur urSu ekki eftir-
bátar manna sinna. Þær stofnuSu sína eigin klúbba, skipulögSu vinnustöSvar
til aS hlynna aS umkomulausum börnum, aS síSustu stóSu þær viS hliS
manna sinna á götuvígjunum og féllu þar meS vopn í hendi. Sennilega hefur
athafnasemi hins óbrotna almúgamanns Parísar aldrei veriS fj ölbreyttari en
á valdatíma kommúnunnar þótt lífiS hefSi lítiS annaS aS bjóSa honum en
sultinn eSa dauSann.
Stjórnarnefnd sú, er fjallaSi um atvinnumál, iSnaS og verzlun, ein þeirra
tíu sem fyrr var getiS, var eingöngu skipuS sósíalistum og hafSi Frankel
hinn ungverski þar alla forustu. í nefnd þessari var unniS af miklu kappi og
undan rifjum hennar runnu þær ráSstafanir, sem bera eSli kommúnunnar
skýrast vitni, aS hún var samfélag vinnandi stétta. Þar ber fyrst aS telja, aS
fulltrúar kommúnunnar skyldu ekki bera úr býtum meira en almenn verka-
mannalaun, svo sem þau þá voru. VeSlánahúsin urSu aS afhenda eigendum
muni sína. Næturvinna bakara var afnumin og launaskerSing bönnuS þótt
verkamönnum hefSi orSiS eitthvaS á viS vinnu sína. VinnumiSlun var
komiS á og leitast viS aS skipuleggja opinbera vinnu. Þá var verkamannasam-
tökum faliS aS taka í sínar hendur og starfrækja þau fyrirtæki, sem atvinnu-
rekendur höfSu yfirgefiS er þeir flýSu frá París. Þótt okkur nútímamönnum
þyki þessar aSgerSir ekki sérlega róttækar, þá voru þær mikil nýlunda á
þessum tíma og vöktu hneyksli og skelfingu góSborgaranna. En alþýSu
Parísar voru þær mikiS og nærtækt bjargræSi.
ASrar mikilvægar stjórnarnefndir kommúnunnar virSast samt ekki hafa
veriS starfi sínu vaxnar sem skyldi. Fjármálanefndin fékk aS láni hjá Frakk-
36