Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Síða 64
Tímarit Máls og menningar
TVískinnungur og menningarlegt rótleysi varð samfara upplausn miðalda-
samfélagsins um leið og sá commercialismi, sem frumkvöðlar samvinnustefn-
unnar og sósíalisma hérlendis, þingeyskir bændur, töldu einkenna öldina,
náði hér fótfestu. Andstæðingar óhefts kapítalisma hér á landi vitnuðu gjarn-
an í þjóðlegar erfðir og dyggðir, sem andstöðu við hann og þótt þessar erfðir
og dyggðir væru mörgum óljósar þá skynjuðu landsmenn þær sem blund-
andi afl í eigin undirvitund, en þær voru arfleifð útópískra trúarkenninga
miðaldakirkjunnar. Þessi arfleifð varð samsvari þeirra félagslegu hreyfinga,
sem gætti hérlendis í samvinnufélagsskap og sósíalisma, en þær hreyfingar
voru samofnar fram á þriðja áratug tuttugustu aldar.
Tímaskekkjunnar gömlu gætti hér í sambandi við kviknun borgarastétt-
arinnar, sú stétt bar í sér ýmis hnignunarmerki í Evrópu á fyrstu áratugum
tuttugustu aldar, en hin nýja stétt hérlendis miðaði aðgerðir sínar og umsvif
við aðstæður, sem voru nú víðast hvar orðnar hálfri öld á eftir Evróputíma,
sbr. allt tal blaðaskrifara um frjálsa og óhefta samkeppni á dögum hringa-
myndana og heimsvaldastefnu. „Hinn argasti commercialismus er að hreiðra
um sig hjá okkur, flúinn hingað undan hinum nýju félagslegu hreyfingum
meðal annara þjóða til þess hér á hala veraldar að framdraga snýkjudýralíf
sitt á okkur í næði fyrir nýjum hugsjónum. Og blaðskrumarar hrópa hósi-
anna! Við erum að evrópiserast!“ Þannig skrifaði Benedikt á Auðnum 1903.
Fossamálið varð einn prófsteinninn á styrkleika þjóðlegrar samstöðu og í
því máli birtist tíðarandinn skarpast í fossakvæðum skáldanna þriggja. Það
er eftirtektarvert að þjóðrembings gætir einkanlega meðal þeirra afla sam-
félagsins, sem tengdust voru evrópsku hagkerfi og auðhyggju, sem var and-
stæða við þjóðernisvitund- og kennd ungmennafélaganna í fyrstu, en þau
hefjast um þetta leyti og vöktu upp pólitíska vitund meðal almennings.
Stjórnmálabaráttan var tengd afstöðu manna til sjálfstæðismálsins, og á
fyrsta áratug aldarinnar varð hluttaka almennings um þau málefni almennari
en áður einmitt fyrir tilstuðlan ungmennafélaganna. Áhrif blaða og stjórn-
málamanna verða einnig meiri.
Því meir sem bæir eflast því meira eykst efnahagslegt og menningarlegt
misræmi milli sveita og bæja, innflutt kapítalískt hagkerfi og landaurabú-
skapur í upplausn hlutu að stangast á, mórallinn var annar, efnahagsleg
nauðsyn nýrrar stéttar sat í fyrirrúmi, nytsemdarsjónarmiðið réð stefnunni,
en það kom meðal annars fram í afnámi grískukennslu í Lærða skólanum og
samdrætti latínunáms, en með þeim ráðstöfunum hófst niðurkoðnun æðri
menntunar hérlendis. í skáldskap áranna eftir aldamótin gætti bæði áhrifa
54