Tímarit Máls og menningar - 01.07.1971, Side 80
Umsagnir nm bækur
IVú — Nú — Nú
1.
Veturinn 1969—1970 gerðust }iær furð'ur
á íslandi, að bóndi einn í Suðursveit, ekki
aðeins sveitungi Þórbergs meistara, heldur
meira að segja albróðir, talar blaðalaust
inn á segulband á vegum Ríkisútvarpsins,
og þaðan er mál hans flutt í 26 þáttum,
hálftíma í senn eða 13 klukkustundir alls,
og rekur Steinþór þar minningar frá 77 ára
lífsferli sínum.
Utvarpsþættir þessir urðu hinir vinsæl-
ustu. Hvervetna varð maður þess var, að
fjöidi manns lagði þeim eyra, þegar við
varð komið. Ég var einn í þeirra tölu, og
var mér þó ljóst, að ýmislegt, sem þar kom
fram, væri öðrum enn fréttnæmara og ný-
stárlegra en mér, þar sem ég var mörgum
öðrum kunnugri sérkennum Skaftafells-
sýslu, oft á tíðum stórbrotnum og ævintýra-
iegum, og ýmiss konar þjóðháttum, sem lítt
eru kunnir í öðrum héruðum landsins.
Ungaveiðarnar á söndunum, seladrápið í
Hrollaugseyjum, atburðirnir í sambandi við
ströndin, sjóróðrarnir við brimsandana,
kaupstaðarferðir og fjárrekstrar yfir sanda,
stórfljót og jökla, villifé í skógi klæddum
dölum og fjallsrönum, umgirtum jöklum og
beljandi vatnsflaumum, — þetta eru hlutir,
sem fáir einir kunna frá að segja, en er
gott á að hlýða þeim, sem ekki þekkja af
eigin raun, en hinum ánægjulegt upp að
rifja. Að vísu var mikið þátta Steinþórs
ógnariegt þunnmeti, sviplausir atburðir,
kryddaðir fremur ómerkilegum kjafthætti
og ekki alitaf smekklegum, en maður hefur
vanið sig á að njóta þeirra mola, sem góm-
sætastir eru, en halda stíflulausum farvegi
fyrir hina inn um annað eyrað og út um
hitt. Og það var fleira en ákveðin efnisat-
riði, sem gott var við þessa þætti. Tónteg-
und frásagnarinnar var einstaklega við-
kunnanleg. Mörgu fullorðnu fólki var flutn-
ingurinn endurminning um baðstofulífið í
sveitinni, það var eins og að baki lægi
hvinur í rokki, urg í kömbum og kattamal.
Frásögnin leið fram jöfnum straumi, og
frásagnarnautn flytjanda merlaði af hverju
orði. Það eru ekki margir útvarpsmenn,
sem hlustendur hafa kvatt með almennara
þakklæti en Steinþór á Hala, þegar hann
hafði lokið sínum 26 þáttum á útmánuðum
1970.
2.
En þá er þessum hrekklausa frænda mín-
um og jafnaldra gerður sá grikkur, að
þessar frásagnir hans eru látnar á þrykk
út ganga og um leið látið í það skína, að
útgáfa þessi sé einsdæmi í veraldarsögunni.1
Hinn landskunni og ástsæli fréttamaður,
Stefán Jónsson, hagyrður með ágætum,
bæði léttur og rökrænn í máii og framar-
lega í röðum rithöfunda okkar, er fram-
kvæmdarstjóri þessarar útgerðar, allt frá
1 Nú-Nú, bókin sem aldrei var skrifuif.
Minningar Steinþórs Þórðarsonar á Hala í
Suðursveit. Stefán Jónsson sá um útgáfuna.
Bókaútgáfa GuðjónsÓ, Reykjavík 1970.
70