Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Side 19

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Side 19
Fyrsti maí 1 974 þær línstroknu lífi þeirra, svo ekki sé talað um siðgæði þeirra og kristindóm. í öllum borgum var her og lögregla höfð til taks, byssuglaðir þjónar kunnu sér ekki læti og beittu þeim tækjum sem höfðu verið leikföng þeirra frá æsku. Viða um Evrópu lágu lík verkamanna, fórnarlömb pólitískrar móðursýki og yfir- stéttargrimmdar, en engin bylting brast á, enda hafði það aldrei verið ætlun þeirra er að þessúm aðgerðum stóðu að stofna til slíkra tíðinda. Þeir vissu mæta vel að þjóðfélagsbylting verður ekki gerð með því einu að ganga fylktu liði um strætin og syngja byltingarsöngva. Síðar hefur valdstéttunum farið dálítið fram í vitsmunalegu tilliti og stundum finnst manni ótrúlegt hve langt er hægt að teygja ógreindan hund á veg þroskans. Fyrsta maígangan var stofnuð til þess að ná einu sameiginlegu markmiði. Til þess var aðeins eitt nauðsynlegt: eining — samfylking. Ekki tvístrun. Ekki pukurslegt nagg. Ekki hreppslegt puð um það hvar koma ætti niður sveitar- ómaga. Hér þurfti heiðarlega og einlæga rökræðu um það sem skipti máli. Menn þurftu að skilja og skynja hvað i húfi var og ganga síðar að dagsverkinu. Menn þurftu að ganga að þessu sem heild, skipuleg heild, en ekki eins og hræddur og tvístraður rolluhópur eltur af hundum. Svo sem þið megið sjá er ég maður nokkuð við aldur. Eg var strákur í skóla þegar ég gekk fyrst í kröfugöngu 1. maí hér í Reykjavík. Eg held það hafi verið 1927. Við vorum ekki ýkja mörg. Við vorum nefnilega hávær minnihluti, við sungum byltingarsöngva, því einhvernveginn þurftum við að láta bera á okkur. En á gangstéttunum var áreiðanlega meirihlutinn. En það var ekki hinn frægi þögli meirihluti sem nú fer svo mikið orð af. Það var ekki þetta hljóðláta blíðlynda fólk, sem hefur að vísu komist til meðvitundar, en hefur ekki enn lært að tala. Það telur sig þess vegna meðal málleysingjanna í landinu og heimtar að það heyri undir dýraverndunarlögin. Eg vona að Dýraverndunarfélagið taki að sér málstað þessa fólks á næsta aðalfundi, þegar minkur, silungur, lamb og sólskrikja verða á dagskrá. íslendingar! Á þessum fyrsta maídegi eru liðnar ellefu aldir frá upphafi Islandsbyggðar. Það er mikið ár. Afmælisdagurinn verður æði langur, 365 dagar (ég vona það verði ekki hlaupár). Hófið er þegar byrjað. Við héldum Þjóðhátíðarálfabrennu sem varð að vísu að fresta vegna óveðurs, en svo stytti upp og nú er kösturinn brunninn, guði sé lof. En mér frnnst að hátíðisdagur íslensks verkalýðs sé ekki lítill þáttur í ellefu hundruð ára þjóðhátíð 1974. Við söfnuðumst öll heils hugar við bálköstinn á iþróttavellinum, heil þjóð og óskipt. Og síðan gengur 1. maí í garð, dagur hins 9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.