Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 33
Samhjálp eða stríð? Sameinuðu þjóðunum ætti að fela þá miklu ábyrgð að kanna, skipuleggja og dreifa þessu fjármagni. Samfélag þjóðanna ætti sjálft að stjórna þessum sjóðum, og þar ættu allir að njóta fyllsta jafnréttis, hvort sem um er að ræða gefendur eða þiggjendur, án nokkurra pólitískra skilyrða og án þess að stærð framlagsins skipti nokkru máli varðandi vægi atkvæðis við ákvarðanatöku um það hvenær og hverjum skuli veitt lán. Framlögin ber vissulega að meta til peninga, en þau þurfa þó ekki að vera reidd fram í beinhörðum peningum. Þau gætu einnig verið fólgin í tækjabún- aði, áburði, hráefnum, eldsneyti og fullbúnum verksmiðjum sem metin yrðu í samræmi við alþjóðlegt viðskiptagildi. Þá gætu framlögin einnig verið fólgin í starfi og þjálfun tæknilegs starfsliðs. Virðulegi forseti og þingfulltrúar: ég er viss um að ef framkvæmdastjóri SÞ og forseti allsherjarþingsins — með þeim bakstuðningi sem felst í orðstir og mikilvægi þessara samtaka, og einnig með stuðningi þróunarlandanna og sér- sérstaklega 77 ríkja hópsins; ef þeir kölluðu saman þá ýmsu aðila sem ég hef nefnt til þess að hefja viðræður, þar sem ekkert rúm yrði fyrir mótsagnir af taginu „suður-norður“ eða „austur-vestur“, heldur tækju allir saman höndum við sameiginlegt verkefni, sameiginlega skyldu og sameiginlega von, þá mundi þessi hugmynd sem við nú leggjum fyrir allsherjarþingið ná fram að ganga með góðum árangri. Hér er um að ræða áætlun sem kæmi ekki aðeins þróunarlöndunum að gagni, heldur öllum löndum. Við byltingarmenn óttumst ekki átök eða baráttu. Við trúum á mátt sög- unnar og fólksins. En það er skylda mín sem talsmanns og túlks þeirra tilfinn- inga sem 95 þjóðir næra í brjósti að berjast fyrir samstarfi þjóðanna. Ef þetta samstarf kemst á og fer fram á nýjum og réttlátum grundvelli mun það verða öllum löndum heims til góðs. Einkum og sér í lagi mun þetta samstarf stuðla að friði í heiminum. Ef litið er til skamms tíma geta slík þróunarframlög litið út fyrir að vera fórnarstarf, jafnvel gj^fir sem ekki verði að neinu leyti endurgoldnar. En af þeim gífurlega stóra hlutá heims sem nú býr við vanþróun, er sviptur kaupmætti og býr við afskaplega takmarkaða neyslugetu, mun spretta flóð neytenda og fram- leiðenda svo hundruðum miljóna skiptir, og það eitt getur hleypt nýju blóði í efnahagslíf heimsins, og þá einnig í efnahagslíf þeirra þróuðu landa sem nú eiga sök á og þjást af efnahagskreppunni. Saga alþjóðlegra viðskipta hefur sýnt, að þróun er mestur lífgjafi viðskipta. Mestöll viðskipti í heiminum nú á dögum eiga sér stað milli iðnvæddra ríkja. 23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.