Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Blaðsíða 49
Alpjóðlegar efnahagshorfur og priðji heimurinn
bylnngarinnar, véltæknin og samhæfing þjóðlegra markmiða, setti mark sitt á
öll svið mannlegs lífs, opinbert líf og einkalíf, andlegt og veraldlegt, utan lands
sem innan. Pólitískar afleiðingar hennar urðu sist minni. Oll heimsbyggðin var
njörvuð við Evrópu með böndum nýlendna og utanríkisverslunar. Evrópsk
stjórnmál, hugsunarháttur og hagfræði urðu að mælistiku og viðmiðun allra
hluta.
Ba^ii hinn kommúníski heimur sem og þriðji heimurinn eru ýmist skilgetin
afleiðing iðnbyltingarinnar eða hafa mótast verulega af henni. Efnahagslegur og
félagslegur ávinningur iðnbyltingarinnar er yfir allan efa hafinn, en há og
reisuleg mannvirki varpa frá sér stórum skuggum. Einn stærsti skugginn er
nýlendukúgun og arðrán þriðja heimsins.
En höldum okkur við hagsöguna enn um sinn. Menn hafa oft leikið sér að
því að búta söguna niður í tímabil og timabilum í skeið. Einn möguleikinn er að
skipta efnahagslegri þróunargöngu niður i samræmi við tímaröð framleiðslu-
ferilsins. I grófum dráttum fylgir sú niðurröðun efdrtalinni framleiðsluröð:
frumvinnsla, úrvinnsla, dreifing og þjónusta.
Fyrsta tímabilið er langlengst. Það nær allt frá upphafi fastrar búsetu og
skipulags landbúnaðar fram til iðnbyltingarinnar. Mannleg viðleitni miðast við
að ná tökum á náttúrunni og sveigja hana undir vilja sinn. Aðalatvinnuvegir voru
landbúnaður, skógarhögg, námagröftur og fiskveiðar. Landkönnun og landa-
fundir setja mark sitt á framvindu þessa tímabils. Gildismatið var spákennd
umhyggja sem hafði að geyma vangaveltur um Guð og tilveruna. Baksviðið er
stéttarþjóðfélag þræla, ánauðugra bænda og leiguliða.
Næsta tímabil einkennist af tilraunum mannsins til að ná tökurn á efninu og
efnisheiminum. Þetta er tíminn sem hefst með iðnbyltingunni. Mannskepnan
hefur þá kortlagt allan heiminn og náð miklum tökum á náttúrunni. Efnisúr-
vinnsla, öðru nafni iðnaður og byggingarstarfsemi, eru aðalatvinnuvegirnir.
Gildismatið er efnishyggja og skynsemishyggja ásamt nokkuð einhliða fram-
faradýrkun. Baksviðið er stéttarbarátta verkalýðs hins iðnvædda samfélags,
styrking þjóðríkisins og fyrstu tilraunir til að koma á fót sósíalískum samfé-
lögum. Þetta eru okkar tímar, tímar sem virðast vera að renna skeið sitt á enda.
Hér eru þau tímamót sem getið var í upphafi. Hið hefðbundna vestræna
iðnaðarsamfélag er að þróast yfir í eins konar æðra iðnaðarsamfélag þar sem bæði
frumframleiðsla og úrvinnsla hafa vikið fyrir margþættri þjónustu, s. s. margs
konar skriffinnsku, fjölþættum samgöngum, alls konar menntun, stjórnun,
auglýsingastarfsemi, fjarskiptum, verslun og vaxandi opinberri stjórnsýslu. Á
þessu tímabili verður háð barátta mannsins við stjórnkerfi og stofnanir samfélagsins.
39