Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 54
Tímarit Máls og menningar koma. Ekki heldur við hagnýtingu orkunnar. Það kann að reynast hagkvaemt i undantekningardlfellum að reisa hér verksmiðjur í samvinnu við erlend auðfé- lög, og slíkt verður að sjálfsögðu að meta hverju sinni. Þar verður að meta efnahagslegan ávinning, félagslega áhættu, pólitískt og menningarlegt sjálf- stæði. Slika ákvörðun má aldrei taka við þvingandi aðstæður. Þessar þvingandi aðstæður felast ekki í legu landsins eða þeirri efnahagslegu einhæfni sem við búum við. Þærgætu hins vegar skapast ef verðbólgan verður óhindruð um skeið og afrakstur þjóðarbúsins fer allur í verðbólgukostnað. Takist okkur ekki að halda verðbólgunni innan einhverra viðráðanlegra marka, þá verður vinna okkar alltaf líkari atvinnubótavinnu, við vinnum og vinnum myrkranna á milli á versnandi kjörum þrátt fyrir aukinn afla og gott árferði. Verðbólgan er dýr á fóðrum. Það verður alltaf dýrara að halda henni gangandi og afkoma fyrirtækj- anna verður sífellt þokukenndari með framhaldandi verðbólgu. Bókfært tap getur í raun verið uppgripahagnaður. Alveg eins getur afgangur á rekstrar- reikningi í reynd þýtt bullandi tap, allt eftir því hver lána- og eignastaða fyrirtækjanna er. Það er því engin furða þótt verkalýðshreyfingin viti ekki hver sé raunveruleg rekstrarafkoma viðsemjenda sinna. Það veit enginn. Mælitækin eru ónýt. I upphafi þessarar greinar var bent á þrjú stig á efnahagslegum þróunarferli mannkynsins. Baráttuna við náttúruna, að gera hana sér undirgefna, sem frum- stig,glímuna viðefnið til uppbyggingar og úrvinnslu sem annan áfanga og átökin viðstofnanir og kerfi sem þriðja stig. Lönd heimsins standa hér mislangt á vegi. Þriðji heimurinn er svo til allur á frumstigi þróunarinnar, þar sem Vesturlönd eru mislangt komin inn í það þriðja. Þróunarmöguleikar þriðja heimsins eru sannarlega ekki glæsilegir. Forsendur áætlunarbúskapar eru litlar og hætt við að hann endi í uppgjöf ef gengið er út frá óbreyttri þjóðfélagsgerð. Möguleikar kapítalísks markaðsbúskapar eru einnig hverfandi, til slíks vantar athafnasama millistétt, þar er lítil eftirspurn og fjárfestingar þess vegna í smáum stíl. Óheftum umsvifum auðhringa fylgir félagsleg upplausn ásamt pólitísku afturhaldi. Aðeins öflug samhjálp ríkja þriðja heimsins ásamt ströngum skilyrðum gagnvart erlendum auðhringum og ríkisstjórnum þeirra getur þokað þróunar- löndunum sameiginlega fram á leið. Þó skiptir mestu máli að breyta sjálfri þjóðfélagsgerðinni, því án þess verður öll utanaðkomandi aðstoð, hvort sem hún er veitt í eiginhagsmunaskyni eða af öðrum hvötum, að vatni á myllu þcirra sem stefna að forréttindum fárra og eymd almúgans. 44
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.