Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 75
Jakob Benediktsson
Hafnarháskóli og
íslensk menning
Erindi flutt á samkomu í Háskóla íslands, sem haldin var 29. apríl 1979
í tilefni 500 ára afmalis Kaupmannahafnarháskóla. Erindið var samið
og flutt á dönsku, par sem viðstaddir voru erlendir gestir, m. a. rektor
Hafnarháskóla. Það er birt he'r ípýðingu höfundar.
Eftir að Kaupmannahafnarháskóli var endurreistur 1537 varð hann háskóli
Islands vegna þeirra breytinga á stjórnarháttum og trúarb'rögðum sem sið-
skiptin höfðu í för með sér. Að vísu stunduðu nokkrir íslendingar nám við
þýska háskóla á 16. öld, einkum i Rostock, en frá því um 1600 og fram til 1918
má segja að Hafnarháskóli væri eini erlendi háskólinn sem íslendingar leituðu
til að nokkru marki. Það liggur þvi í augum uppi að þau áhrif sem Hafnarhá-
skóli hefur haft á íslenska menningu og íslensk vísindi eru fyrirferðarmeiri en
svo að þeim verði gerð skil í stuttu erindi nema í fáeinum megindráttum. Auk
þess er allt annað en auðvelt að rekja þessi áhrif í einstökum atriðum. Við vitum
að vísu hvaða íslendingar stunduðu nám við Hafnarháskóla, en við erum
fáfróðari um það hvað þeir lærðu á sjálfum háskólanum og að hve miklu haldi sá
lærdómur kom þeim síðar á ævinni í samanburði við þá lífsreynslu sem Hafn-
ardvölin varð þeim að öðru leyti, hvaða áhrifum þeir urðu fyrir frá mannlífinu
utan veggja háskólans. Hvorttveggja hefur vafalaust átt sinn þátt í þeim
þroskaferli sem Hafnarvistin var þeim hópi íslenskra stúdenta sem dvöldu
æskuár sín við háskólann. Hinsvegar má fullyrða að einmitt vegna þess að þessir
ungu íslendingar fóru utan til háskólanáms gafst þeim tækifæri til að kynnast
öðrum lífsháttum, öðrum menningarstraumum, en þeir áttu nokkurn kost á í
einangruninni heima fyrir. Hafnarháskóli varð þannig sá gluggi íslendinga sem
sneri út að hinum stóra heimi, sá tengiliður sem þeir áttu við lærdóm samtímans
og helsta tækifæri þeirra til þess að kynnast erlendri menningu.
Hversu mörgum íslendingum gafst þá þetta tækifæri til þess að víkka
andlegan sjónhring sinn? Nefna má fáeinar tölur. Um íslenska stúdenta í
Kaupmannahöfn fyrir siðaskipti vitum við ekkert, en frá því um 1540 til loka
TMM 5
65