Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 92

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 92
Tímarit Má/s og menningar slotað, töfrunum er lokið, og sömuleiðis sýningunni. Lífið hefst að nýju, á sama hátt og fyrir ofviðrið, áður en sýning hófst; það á jafnt við persónur og áhorfendur. Hefur ekkert breytzt? En áður en frá er horfið, skulu áhorfendur hlýða á eftirmála. Prosperó, eða öllu heldur leikarinn sem leikur Prosperó, kemur fram og flytur eftirmálann. Þessi eftirmáli, loka-eintal Prosperós, er einn hinn fegursti sem Shakespeare samdi, og einnig einhver hinn dapurlegasti og torráðnasti. Prosperó talar beint til áhorfenda: .. . von mín .. . ... er sú að sjá hjá yður þann sanna vinarhug, scm biður um likn og miskunn mér til handa, sem misst hef kynngivald og anda er hlýða minu máttarorði. (V,l) í spænskum sjónleikjum — bæði eftir Calderon, og ekki síður Lope de Vega — var algengt að leikari sneri sér til áhorfenda í lokin og bæði um vægð fyrir ágalla sýningarinnar. En dapurlegur eftirmáli af þessu tagi, sem beinlínis er beint til áhorfenda, kemur ekki fyrir í öðrum leikritum Shakespeares en Ofviðrinu. Hann er saminn í allt annarri tóntegund; þetta er mikil ljóðræn stefja, og sá er að sönnu daufur, sem heyrir þar ekki áhrifamikið persónulegt hljóðfall. Ofviðrið er síðasta stórvirki Shakespeares. Að því loknu samdi hann að líkindum aðeins fáeinar sýnur i harmleik Fletchers, Hinrik áttunda. Ofviðrið er kórónan á verki Shakespeares. Það er engin furða, að margar kynslóðir fræðimanna og rýnenda hafa séð þar skáldleg ályktarorð, kveðju til leiklistarinnar, heimspekilega og listræna sjálfsæviskrá. Sagt er, að Shakespeare hafi kynnt sjálfan sig í gervi Prosperós. Lærðir Shakespeares-fræðingar hafa sumir reýnt að túlka Ofviðrið beinlínis sem sjálfsævisögu, eða sem táknrænan stjórnmálaleik. Chambers leit svo á, að í Ofviðrinu fælist bjartsýnis-játning Shakespeares; og hann rakti leikritið til vega- skila sem urðu á lífsbraut hans eftir 1607 með fráhvarfi frá hinum myrku viðhorfum í Hamlet. J. D. Wilson sá speglast í Ofviðrinu sveitablíðu staðhátt- anna í Stratford og friðsæld ellinnar sem skáldið naut hjá dóttur sinni og dótturdóttur. Robert Graves leit á Ofviðrið — sem og sonnetturnar — sem dulbúna sjálfsævisögu. Nornin Síkórax átti að jafngilda „dömunni dökku“; fangavist Aríels táknaði uppgjöf fyrir ástríðu ástarinnar; en Trinkúló var talinn fulltrúi fyrir sjálfan Ben Jonson. Aríel átti að vera píslarvotturinn Hinrik fjórði 82
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.