Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 115

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 115
Stafur Prosperós hinn silfurgljái hefur sigrað. En mun Danmörk hætta að vera dýflissa? Lík Hamlets hafa hermenn borið burt. Enginn mun framar draga í efa þá merkingu sem veit að sögu lénsveldisins og tilgangi mannlífsins. Fortinbras leggur engar slíkar spurningar fyrir sjálfan sig. Hann hefur ekki einu sinni grun um að þar sé neins að spyrja. Sögunni er borgið, en við hvaða verði? Samtímamenn Shakespeares, sem skrifuðu um leikrit á Elsabetaröld, sáu þar mynd mannlífsins. Að þeirra hyggju gat leikrit sem best sameinað sögulegar staðreyndir og skáldlegan tilbúning í fræðingar skyni. Harmleikurinn átti að vara áhorfendur við því að láta undan ástríðum sínum, og sýna afleiðingar misgjörða. Puttenham orðaði þetta svo: .. . þegar eftirlifendum stóö ekki lengur nein ógn af þeim, var illræmt líf þeirra og ofriki gert öllum lýðum ljóst, varmennska þeirra átalin, glópska þeirra spottuð og ósvífmn hroki, en bent á vesöl endalok þeirra meö leikjum og sýningum, til þess að sýna fram á hverfulleik gæfunnar og réttláta refsingu guðs fýrir smánarlegt lastalíf.1 Sir Philip Sidney, höfundur Arkadíu, segir að skáldið sé „hinn sanni al- þýðu-heimspekingur.“ En Shakespeare var enginn slikur alþýðu-heimspekingur, eða — hafi hann verið það — þá einungis í sama skilningi og Montaigne. Shakespeare er víðs fjarri hversdagslegu uppeldis-viðhorfi Puttenhams eða Sidneys. Þjóðhöfðingi er í hans augum ævinlega „Þjóðhöfðinginn" eftir Mac- hiavelli, sem lifir í þeim heimi, þar sem stórfiskar gleypa smáfiska. Hann gleypir, eða er gleyptur. Shakespeare gerir ekki greinarmun á góðum kóngi og harð- stjóra, ekki fremur en hann gerir greinarmun á kóngi og fífli. Báðir eru þeir dauðlegir menn. Grimmdarverk og valdastreita er ekki einkaréttur þjóðhöfð- ingja; heldur lögmál þessa heims. Söguskilningur Shakespeares, bölsýnn og hroðalegur, er þegar í námunda við efnishyggju-heimspeki Hobbes, eins og hún birtist í riti hans, Levíatan. Hobbes samdi verk sitt á viðreisnartímanum. I hans vitund voru kóngar ekki lengur Drottins smurðir. Þeir voru í þess stað hinir smurðu Sögunnar. Alræðisvald þeirra og réttur til ofríkis var árangur af stríði allra gegn öllum. Þeir voru tryggjendur þjóðfélags-reglunnar gegn því stjórnleysi, sem sífellt vofði yfir. Shakespeare leit lénssöguna sömu augum og Hobbes, en hann reis gegn óbreytileik hennar. Hann var að leita lausnar frá þessum dapurlegu valkostum, ógnarstjórn eða stjórnleysi. Hann krýndi aldrei sína Rikarða, Hinrika eða 1) The Art of English Poesie, XV, kap., London, 1589. 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.