Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 117

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1980, Page 117
Stafur Prosperðs gangi leiksins er Aríel ekki móthlutverk Kalíbans. Hann er ekki sýnilegur öðrum en Prosperó og áhorfendum. Allar aðrar leikpersónur skynja hann aðeins sem músík eða rödd. Kalíban er aðalpersóna næst á eftir Prosperó. Hann er eitt mesta og áleitnasta sköpunarverk Shakespeares. Hann er engum og engu líkur. Hann hefur full- komið einstaklingseðli. Hann lifír í leiknum, en einnig utan hans, eins og Hamlet, Falstaff og Jagó. Hann verður ekki skilgreindur eins og Ariel með einum myndhvörfum, né verður honum komið fyrir í einni líkingu. Á skránni yfir persónur leiksins er hann sagður „þræll, vanskapaður villimaður“. Prosperó kallar hann „djöfulborinn drýsil", „skarn“, „skjaldböku“, „nornarhvolp", eitr- að fól“, og ekki sízt „skrímsl“. Trinkúló kallar hann „fisk“. Kalíban hefur fætur eins og maður, en armar hans eru sem uggar. Hann er með eitthvað uppi í sér, sem hann tyggur án afláts, urrar, gengur á fjórum fótum. Dúrer hefur málað svín með tvo hausa, skeggjað barn, nashyrning sem likist vansköpuðum fil. Leónardó hefur þessa forskrift að dreka í riti sínu Um mál- aralist'. „Tak hunds haus, kattar augu, broddgaltar eyru, héra munn, ljóns augabrýn, gagnaugu af gömlum hana, og háls af skjaldböku.“ Fundizt hafa teikningar frá byrjun sautjándu aldar, sem sýna skrímsl á borð við Kalíban. Fræðimenn hafa talið, að lýsing Shakespeares fari næst tilteknu spendýri af ætt hvala, sem einkum lifi á Malaja-svæðinu. Svo Kalíban ætti þá að vera eins konar búrhveli. En á leiksviðinu er Kalíban, rétt eins og Aríel, aðeins leikari í búningi. Það er hægt að sýna hann sem fisk, sem dýr, eða sem manneskju. Það þarf að vera í honum einhver dýrslegur skepnuskapur, og skriðdýrs meinfýsi; að öðrum kosti kæmust grodda-sýnurnar með Stefanó og Trinkúló ekki til skila. En helzt vildi ég hafa hann svo mennskan sem verða mætti. Skrímslis-myndhvörf í máli eru af öðrum toga en sjálft gervi og látbragð leikarans. Kalíban er manneskja, ekki skrímsl. Allerdyce Nicoll vekur réttilega á því athygli, að Kalíban talar í bundnu máli. I veröld Shakespeares tala ekki aðrir lausamál en æringjar og aukapersónur, þeir einir sem koma ekki sjálfu efni leiksins beinlínis við. Kalíban hafði verið herra eyjarinnar; þegar Prosperó er farinn, mun hann aftur verða þar einn eftir. Af öllum leikpersónum í Ofviðritiu eru örlög hans að sönnu hörmulegust. Ef til vill er hann sá eini sem breytist. Ollum öðrum persónum er lýst utan frá, eins og sýnd séu fáein grundvallar-einkenni. Svo er jafnvel um Prosperó. Leikur Prosperós er allur á vitsmuna sviði. Leikur Aríels er einnig bundinn afhverfum hugtökum og vettvangi þeirra. Aðeins Kalíban hefur Shakespeare gætt ástríðu og heillegri ævisögu. 107
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.