Tímarit Máls og menningar - 01.03.1981, Page 64
Tímarit Máls og menningar
Styrkur ljóðsins felst í líkingunni, samanburðinum á því náttúrulífi
sem er og því mannlífi sem gœti orðið. Náttúran er skáldinu ekki óvið-
komandi, hann bregst við henni með aðdáun og þrá. En vanmáttarkennd
hans gagnvart henni, bundin ósk hans um að verða sem hún, nær ekki að
kvikna sem tilfinning heldur kafnar hún undir þeirri ströngu hugsun sem
grípur utanum líkinguna af kröftum og ótta við að allt fari úr böndum ef
einhversstaðar er slakað á. Þannig fær náttúran litlu meira líf í þessu
kvæði en hinu fyrra.
Nú er þetta breytt. í ljóðinu nýja, þar sem þeir horfast í augu tjaldur-
inn og skáldið, kemur náttúran fyrir sem mynd og líking. En hún er
meira en mynd og líking. Hún er líka spegill.
En áðuren við veltum fyrir okkur hvað í því felst, sakar ekki að spyrja
hvað valdi þessari breyttu náttúruafstöðu sem Hannes á sameiginlega
með mörgum skáldum öðrum og hefur verið að gerast hér á undanförn-
um árum. Eg efast ekki um að margt leggist á eitt, en höfuðtilgáta mín er
sú, að frammað þessu hafi náttúrulýrikin verið samtvinnuð þjóðernis-
hyggjunni, skáldin hafi ekki skynjað og ort um náttúruna sem slíka
heldur fyrst og fremst Island og íslenska náttúru. Nú þegar þjóðríkið er í
andarslitrunum og þjóðernishyggjan orðin lxtið meira en lýðskrumið, þá
er einsog tjald sé dregið frá og skáldin stormi inná áður óþekkt leiksvið.
IV
Sú tilfinningaörbirgð sem nú er orðin eitt af helstu kennimerkjum
síðkapítalismans á sér vitaskuld rætur lengra aftur en séð verður. Hún er
aðeins núverandi hástig á vanlíðan okkar í menningunni yfírleitt. Samt
verður því ekki á móti mælt að innan hennar hefur í öllum stéttum
sprottið fram persónuleikagerð sem er ný þótt ýmis einkenni hennar séu
áður þekkt. Firring manns frá náttúru, firring manns frá manni, hlut-
gerving mannlegra afstæðna, bæling frumþarfa samfara ræktun gervi-
þarfa, skipbrot gamalla trúarbragða, siðaboða og hegðunarmynstra án
þess að önnur hafi komið í staðinn — allt þetta og margt fleira hefur
mótað einstakling sem svífur í lausu lofti með sjálfsmynd svo ruglaða af
50