Tímarit Máls og menningar - 15.12.1990, Page 5
Skáldverk
Söguhetja þessarar bókar er Jjórt-
án ára stúlka sem afgreiðir í Söla-
skálanum þar sem inn streyma af
þjóðveginum þýskir ferðamenn,
fjölskyldur úr Reykjavik, þéttvaxn-
irflutningabílstjórar, töjfarar áfyll-
eríi — og Biggi. Hestamannamótið
nálgast og þá dregur til tíðinda í
lífl hennar og lífi hins friðsæla
sveitaþorps.
HALLGRÍMUR HELGASON
Hella
Hella er nýstárleg skáldsaga um
ísland. Hér er lýst ungu fólki og
ungri þjóð, dægurmenningu og
umróti, aldagömlum hefðum og
rótgrónum einkennum, og ekki
síst: síkvikri náttúru Lýsingar höf-
undar á dæmigerðum nútíma
íslendingum eru bæði fyndnar og
glöggar og auga hans fyrir náttúr-
unni einstakt.
Hella erfýrsta skáldsaga Hall-
gríms Helgasonar. Nýr höfundur
— ný sýn á ísland — nýr tónn í
íslenskum bókmenntum.
Bókin er 154 bls.
Verð: 2480,- Félagsverð: 2108,-
Hallgrímur Helgason (f. 1959) er Reykvíkingur og send-
ir nú jtá sér fyrstu bók sína. Hann er bæði þjóðkunnur
málarí og vinsæll pistlahöfundw á Rás tvö í þáttum
sínum „Útvarp Manhattan“. Hallgrímur er búsettur í
París.
3