Tímarit Máls og menningar - 15.12.1990, Blaðsíða 26
Þýddar bókmenntir
ISABEL ALLENDE
Eva Luna
segirfrá
Eva Luna segir ástmanni sínum,
Rolf Carlé, tuttugu og þrjár smá-
sögur umjafnmörg tilbrigði ástar-
innar. Hér segir af skuggalegum
stigamönnum og háttprúðum hefð-
armegjum sem elskast með ærsl-
um og glæframönnum sem stíga í
vænginn við annálaðar sóma-
konur; tinandi gamalmenni hejja
upp langþráð bónorð, mæðgur
keppa um hylli farandsöngvara,
draumar rætast og skýjaborgir
hrynja. Sagt er frá klækjum og
vélábrögðum, taumlausri ágirnd
og takmarkalausri fórnfýsi og
hvort sem sögurnar eru sóttar
beint ífurðulegan veruleika Suður-
Ameríku eða framkallaðar með
óþrjótandi ímyndunarqfli skáld:
konunnar eiga þær allar sam-
merkt að miðla ást á lífinu í sínum
fjölbreytilegustu myndum.
EVA LUNA
segir frá
Isabel Allende
Isábel Allende hefur þegar öðl-
ast hylli íslendinga fyrir litríkar
sögur sínar, Hús andanna, Ást og
skugga og Evu Lunu, þar sem hún
sameinar töfraraunsæi og skarpa
samfélagssýn.
Tómas R. Einarsson þýddi úr
spænsku.
Bókin er 218 bls.
Verð: 2980,- Félagsverð: 2533,-
24