Morgunblaðið - 27.12.2014, Page 1
SUNNUDAGUR
ÞAKKLÁT STJÓRN-MÁLAMÖNNUM
STJÖRNUSPÁIN 2015
Í FAÐMI FJÖLSKYLDUÁ GAMLÁRSKVÖLD SILJA HAUKSDÓTTIR 2
HVAÐ ER FRAMUNDAN? 14
UNGLINGASPJALL 18
ÓMÓTSTÆÐILEGTÁRAMÓTABOÐ
28. DESEMBER 2014
ÚTFLUTNINGUR ÁÍSLENSKRITÓNLIST GEKKVONUM FRAMAR Á ÁRINUOGVORUTÓNLEIKARERLENDIS UM 1.300 OGBREIDDIN MIKIL 4
HaldinnÍslandssýki
ÍSLAND KEMURVIÐ SÖGUÍ NÝJUSTU BÓK BRESKAMETSÖLUHÖFUNDARINSDAVID MITCHELL 48
ÞAÐ
BESTA
0142
ALLSKO
UMMÆLI
Útrás í
tónum
„Ég verð sífellt þreyttariá þeirri fullvissu mannsinsað hann sé æðri öllumöðrum í lífríkinu.“Gyrðir Elíassonrithöfundur
NAR
„Sumir lentu bara hræðilegailla í því. Það var í rauninnilíka spurning um heppni hverskonar hesti hver lenti á.“Aníta Margrét Aradóttirknapi
„Svo finnst mér líka raunalegthvernig gömlu kollegarnir hópast
saman á kommentakerfunumog tala um hvað allt hafi veriðflott og gott í gamla daga áfjölmiðlunm.“Þorsteinn J.Vilhjálmssonfjölmiðlamaður
„Þegar hringurinn lokaðistþarna; þar sem ég lenti á Íslandi,
orðin heil heilsu og tilbúin aðtakast á við ný verkefni, var það
mjög tilfinningaþrungin stundfyrir mig.“
Sofie Gråbøl leikkona
10 b
L A U G A R D A G U R 2 7. D E S E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 302. tölublað 102. árgangur
TEKUR MYNDIR
Á GAMLA FILMU-
VÉL Á FLAKKINU
LÖG SEM GEFA
INNSÝN Í
ÞJÓÐARSÁLINA
DÆGURPERLUR 38YRSA ROCA FANNBERG 10
FORTE
blanda meltingargerla
MÚLTIDOPHILUS
þarmaflóran
hitaþolin
www.gulimidinn.is
Guðrún Hálfdánardóttir
guna@mbl.is
Bryndís Kristjánsdóttir leið-
sögumaður er á batavegi eftir að
hafa fallið ofan í sprungu við Þrí-
hnúkagíg þar sem hún var með hóp
ferðamanna. Fallið var sex metrar
og fékk hún margháttaða áverka,
m.a. alvarlega höfuðáverka. Skjót
viðbrögð samstarfsmanna hennar
björguðu lífi hannar og hefur batinn
verið með ólíkindum. „Ég held að
það hafi líka haft mikið að segja að
ég var í góðu jafnvægi andlega sem
og líkamlega. Ég fékk mikið höfuð-
högg eins og gefur að skilja og ég
þjáist af stöðugum höfuðverk.“ Bati
Bryndísar er ótrúlegur en hún var
algjörlega rúmliggjandi fyrsta mán-
uðinn eftir slysið. Hún þurfti að læra
alla hluti upp á nýtt, til að mynda að
ganga á ný og eins var öll samhæfing
ekki upp á sitt besta í upphafi. „Það
hefur örugglega verið bráðfyndið að
sjá mig skrölta um, með lepp fyrir
auganu vaggandi til og frá eins og ég
hefði drukkið tvær flöskur af tequila
í brotsjó. En þetta er allt á réttri leið
og mér miðar eitt og eitt skref
áfram,“ segir Bryndís. Spurð um
minnið þá segir Bryndís að skamm-
tímaminnið sé enn gloppótt og hún
hafi í raun talið sig vera minnislausa
í styttri tíma en raunin er því hún
hafi hreinlega ekki gert sér grein
fyrir því hversu langur tími var lið-
inn frá slysinu þar til hún náði al-
mennilega áttum. »6
„Eitt og eitt skref áfram“
Bati Bryndís Kristjánsdóttir.
Bryndís Kristjánsdóttir er á batavegi eftir fall ofan í
sprungu við Þríhnúkagíg Skjót viðbrögð skiptu sköpum
Morgunblaðið/Ómar
Snjórinn gerir jólin alltaf örlítið hátíðlegri og eiga
margir sér ósk um hvít jól á hverju ári. Það hefur svo
sannarlega gengið eftir í ár enda hvít jörð um allt
land. Í þokkabót hefur verið kyrrt og fallegt veður
þessi jól og margir nýtt sér færðina til að fara á skíði
eða renna sér á sleða, eins og í Jöklaseli í Breiðholti á
öðrum degi jóla í gær. Var einnig nauðsynlegt að
njóta útivistar eftir veisluhöld um hátíðirnar. Í kort-
um Veðurstofu Íslands er öllu óskemmtilegra veður
framundan. Það hlýnar og kólnar til skiptis fram að
áramótum með slyddu og rigningu. Hálkan gæti því
orðið mikil og áramótin mögulega rauð.
Morgunblaðið/Ómar
Sleðaferð í jólasnjónum
Landsmenn nutu víða útivistar á öðrum degi jóla eftir hátíðarhöldin
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Líklegt er að breytingar verði gerðar á ráð-
herraskipan Framsóknarflokksins um ára-
mót. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins eru áform um að fimmti ráðherra
Framsóknar komi
inn í ríkisstjórnina
og taki við um-
hverfis- og auð-
lindaráðuneytinu.
Nafn Sigrúnar
Magnúsdóttur hef-
ur helst verið nefnt
í því sambandi. Til
skoðunar var að
þessi breyting yrði
nú í desember-
byrjun, þegar
Sjálfstæðisflokk-
urinn fól Ólöfu
Nordal að taka við
innanríkisráðu-
neytinu. Þá var
niðurstaðan hins vegar sú að bíða að
minnsta kosti til áramóta.
Sigurður Ingi Jóhannsson varaformaður
hefur gegnt embættum sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra og umhverfis- og
auðlindaráðherra frá því ríkisstjórn Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar tók við í
maí á síðasta ári. „Breytingar hafa verið í
umræðunni og til þeirra gæti komið nú.
Endanleg ákvörðun er í höndum forsætis-
ráðherra,“ sagði Sigurður Ingi í gær.
Ríkisráðsfundur með forseta Íslands, þar
sem formlegar breytingar á ríkisstjórn eru
gerðar, er samkvæmt venju á Bessastöðum
að morgni gamlársdags. Ekki náðist í for-
sætisráðherra vegna þessa í gær.
Breyt-
ingar
líklegar
Framsókn bætir við
ráðherra í ríkisstjórn
Ríkisstjórnin
» Nýr ráðherra
taki við umhverf-
is- og auðlinda-
ráðuneyti.
» Endanleg
ákvörðun hefur
ekki verið tekin.
» Ríkisráðs-
fundur verður á
Bessastöðum á
gamlársdag.
Örlítil fækkun
er á tónleikum ís-
lenskra tónlistar-
manna og hljóm-
sveita í útlöndum
í ár, samanborið
við árið í fyrra.
Sigtryggur Bald-
ursson, fram-
kvæmdastjóri
Útflutnings-
skrifstofu ís-
lenskrar tónlistar, ÚTÓN, telur
engu að síður að árið í ár sé á vissan
hátt merkilegra.
„Á síðasta ári voru öll stóru núm-
erin á tónleikaferðalagi, það er að
segja Björk, Of Monsters and Men,
Sigur Rós og Ásgeir Trausti. Af
þessum er bara Ásgeir Trausti að
túra í ár. Samt erum við í 1.300 tón-
leikum í ár,“ segir Sigtryggur m.a.
í Sunnudagsmogganum en í fyrra
voru tónleikarnir um 1.400 og má
því ætla að breiddin sé að aukast.
Breiddin í tónlist
meiri í ár en í fyrra
Sólstafir fóru um
Evrópu.
Fríverslunarsamningur Íslands
og Kína gerir það að verkum að
verð á flugeldum mun haldast
óbreytt frá í fyrra, þrátt fyrir
hækkandi flutningskostnað og
hækkandi verð í Kína vegna verð-
bólgu þar í landi.
Flugeldasala björgunarsveitanna
hefst á morgun, sunnudag, og
stendur til kl. 16 á gamlársdag. Jón
Ingi Sigvaldason, markaðs- og sölu-
stjóri Landsbjargar, segir svipað
magn vera flutt inn í ár og á undan-
förnum árum. Ýmsar nýjungar eru
í boði þetta árið. »16
Fríverslun heldur
aftur af hækkun á
flugeldunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugeldar Frá síðustu sölutörn.