Morgunblaðið - 27.12.2014, Side 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2014
✝ Anna Lilja Sig-urðardóttir
fæddist að Stærra-
Árskógi á Árskógs-
strönd 14. janúar
1952. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða á Ísafirði
hinn 16. desember
síðastliðinn. For-
eldrar Helga Sól-
veig Jensdóttir, f. 7.
febrúar 1926 og
Sigurður Jóhann Stefánsson, f.
27. nóvember 1926, d. 26. ágúst
2013. Systkini Lilju eru: 1) Jens
Sigþór, f. 14. febrúar 1953. 2)
Margrét, f. 23. júlí 1954, maki
Hannes Ragnar Reynisson, f.
1953. 3) Stefán Júlíus, f. 11. ágúst
1958, maki Guðrún Jóna Karls-
dóttir, f. 1959. 4) Signý, f. 16. maí
1960, maki Sigþór Harðarson, f.
1956. 5) Jónas Ingi, f. 15. nóv-
ember 1963, maki Berglind Sig-
urpálsdóttir, f. 1968. 6) Brynja, f.
10. febrúar 1966, maki Jón Mar-
teinn Jónsson, f. 1963.
Eiginmaður Lilju er Erlingur
mars 2011. 4) Sólveig, f. 17. febr-
úar 1984, maki Halldór Karl Vals-
son, f. 3. mars 1982. Börn þeirra
eru Una Margrét, f. 2. júlí 2010,
og Erlingur Valur, f. 12. júlí 2012.
Lilja ólst upp að Stærra-
Árskógi og lauk hefðbundinni
skólagöngu frá Árskógsskóla.
Hún hóf ung að aðstoða foreldra
sína við störfin í sveitinni auk
þess sem hún starfaði utan heim-
ilis á unglingsárum, m.a. á öldr-
unarheimilinu Skjaldarvík. Lilja
fór vestur á Ísafjörð til að stunda
nám við Húsmæðraskólann Ósk.
Á Ísafirði kynntist hún eigin-
manni sínum og hófu þau þar bú-
skap árið 1974, fyrst á Hlíðarvegi
35, en byggðu sér síðan einbýlis-
hús að Fagraholti 3 og fluttu
þangað árið 1979. Árið 1997
fluttu þau að Aðalstræti 24 og
hafa búið þar síðan. Eftir nám í
Húsmæðraskólanum starfaði
Lilja á Hótel Mánakaffi en lengst
af starfaði hún hjá Íshúsfélagi Ís-
firðinga jafnhliða húsmóðurstarf-
inu. Lilja og Elli ráku og störfuðu
við verslunina Skóhornið á ár-
unum 1994 til 2007 en síðast starf-
aði Lilja við umönnun aldraðra
hjá Ísafjarðarbæ.
Lilja verður jarðsungin frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag, 27. desember
2014, og hefst athöfnin klukkan
14.
Tryggvason, f. 23.
febrúar 1953. For-
eldrar Tryggvi Jóa-
kim Jóakimsson, f.
10. febrúar 1919, d.
29. maí 1974 og
Birna Sigurð-
ardóttir, f. 5. mars
1923, í sambúð með
Halldóri Pálssyni, f.
5. nóvember 1922.
Systkini Erlings eru:
1) Tryggvi, f. 1950,
maki Björg Þ. Thorlacius. 2)
Reynir, f. 1951, d. 1971. 3) Svan-
björn, f. 1957, maki Kristín Mar-
teinsdóttir, f. 1957, d. 2008, og 4)
Jóhanna Margrét, f. 1960.
Lilja og Elli gengu í hjónaband
29. september 1974. Þau eign-
uðust 4 börn. Þau eru: 1) Reynir
Erlingsson, f. 20. apríl 1973. 2)
Óskírður drengur, f. 7. febrúar
1975, d. 8. febrúar 1975. 3) Sig-
urður Jóhann, f. 8. maí 1977, maki
Ragnhildur Einarsdóttir f . 12.
febrúar 1979. Börn þeirra eru
Birna, f. 15. október 2000, Bríet, f.
29. janúar 2005, og Einar, f. 16.
Margs er að minnast og margs
er að sakna, komið er að kveðju-
stund. Í dag verður eiginkona
mín og móðir okkar borin til graf-
ar, í hjarta okkar bærist mikil
sorg en jafnframt mikið þakklæti
fyrir allt sem hún hefur gefið okk-
ur. Lilja var einstök manneskja,
hugsaði ávallt vel um okkur og
heimilið og sá til þess að okkur
skorti ekkert, var umhugað um
að allt væri í lagi og allt á sínum
stað, var það iðulega hennar síð-
asta dagsverk að hringja í okkur
krakkana og athuga hvort það
væri eitthvað sem okkur vanhag-
aði um og liði vel. Nú ef okkur svo
vantaði eitthvað þá var það komið
á eldhúsborðið ekki seinna en á
hádegi daginn eftir. Skipulagið
var til að mynda svo mikið að búið
var að skrifa jólakortin og pakka
inn öllum jólapökkum fyrir þetta
ár, það eina sem var eftir var að
koma þeim á sína staði. Lilja var
mikil fjölskyldukona og mundi
eftir öllum afmælum í stórfjöl-
skyldunni og víðar, og allir skyldu
fá pakka og það fyrirfram.
Lilja hafði ýmis áhugamál og
m.a. skipaði tónlist stóran sess í
lífi hennar og sótti hún ýmsa þá
viðburði sem hún hafði tök á
sækja. Til marks um það að þrátt
fyrir veikindi síðustu misseri þá
lét hún tónleika ekki fram hjá sér
fara og voru seinustu tónleikar
hennar með Karlakórnum Erni
degi áður en veikindin urðu alvar-
legri. Hún var einnig virk í
kvennastarfi hjá Slysavarna-
félaginu um árabil og var dugleg
að taka í spil með góðum fé-
lagskap og átti marga góða vini
þar hin síðustu ár.
Við þökkum fyrir árin öll og
minnumst þeirra með þakklæti í
huga og við verðum dugleg að
minnast þín í verkum okkar og
starfi, kveðjum þig með einu af
uppáhaldslagi þínu.
Undir Dalanna sól, við hinn einfalda óð
hef ég unað við kyrrláta för,
undir Dalanna sól hef ég lifað mín ljóð,
ég hef leitað og fundið mín svör,
undir Dalanna sól hef ég gæfuna gist,
stundum grátið en oftast í fögnuði
kysst.
Undir Dalanna sól á ég bú mitt og ból
og minn bikar, minn arin, minn svefn-
stað og skjól.
(Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum.)
Hvíl í friði.
Erlingur Tryggvason, Reynir
Erlingsson, Sigurður Erlings-
son og Sólveig Erlingsdóttir.
Elsku Lilja mín. Ég kveð þig
með ljóði sem ég söng fyrir þig í
50 ára afmælinu þínu, og pabbi
þinn spilaði undir á harmonikk-
una.
Stúlkan mín
Nú ljómar vorsins ljós
um loftin heið og blá
og allt er þrungið ilm
og ævintýraþrá.
Nú göngum við til skógar
hinn græna, mjúka veg
við stefnum út í ævintýrið,
stúlkan mín og ég!
Og gullið sólskin hlær
um hvolfin víð og blá.
Í augum okkar skín
hin eina og sama þrá
og lífið er svo fagurt
og ljómi þess svo skær
og hönd þín er svo heit
og hlátur þinn svo tær!
Svo dönsum við og syngjum
og teygum vorsins vín
og kannski stel ég kossi frá þér,
litla ljúfan mín!
því full af sól og söng
er sál mín ung og heit,
og stúlkan mín er indælust
af öllu, sem ég veit!
(Jón frá Ljárskógum.)
Þín,
mamma.
Mig langar að kveðja elskulega
tengdamömmu mína.
Ég kom inn í fjölskylduna í
mars árið 1997 og var vel tekið
um leið. Dæmi um það þá hringdi
þessi elska strax um vorið og bað
mig um að keyra með sér vestur
þar sem Elli hafði fengið í bakið
og gat ekki keyrt. Ég flaug norð-
ur og við ókum saman sem leið lá
vestur. Lilja vildi helst ekki fara
Strandirnar svo við fórum Lax-
árdalsheiði og Þorskafjarðar-
heiðina og höfðum gaman af ferð-
inni. Um haustið förum við Siggi
svo suður í skóla og byrjum að
búa saman. Allt gekk sinn vana-
gang þar til í byrjun febrúar er
pakki frá Lilju og Ella kom allt í
einu með póstinum. Stax á þess-
um fyrsta afmælisdegi, sem ég
átti eftir að við hjónin byrjuðum
saman fékk ég frá þeim gjöf og
þannig var það allar götur síðan.
Þannig er Lilju rétt lýst, hún
hafði sérstaklega gaman af að
gefa og passaði upp á allar gjafir
sem ávallt komu tímanlega.
Svo var það sumarið 2004 að
Una okkar varð 90 ára og bauð
okkur öllum til Danmerkur þar
sem hún og Lilja voru miklar vin-
konur. Úr varð að við Lilja, Elli,
Siggi og Birna okkar, sem þá var
eina barnabarnið, fórum. Þetta
voru tvær yndislegar vikur í júní.
Við fórum meðal annars í dýra-
garð, á sundstaði og í Lególand
þar sem Lilja og Birna skemmtu
sér í lestinni og fleiri tækjum.
Ég er þakklát fyrir að hafa
kynnst og átt tíma með þessari
yndislegu konu og fjölskyldu
hennar. Hér með set ég texta að
uppáhaldslaginu hennar. Það
mun alltaf minna mig á Lilju og á
svo vel við á þessari stundu.
Ég leit eina lilju í holti,
hún lifði hjá steinum á mel.
Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk
– en blettinn sinn prýddi hún vel.
Ég veit það er úti um engin
mörg önnur sem glitrar og skín.
Ég þræti ekki um litinn né ljómann
en liljan í holtinu er mín!
Þessi lilja er mín lifandi trú,
þessi lilja er mín lifandi trú.
Hún er ljós mitt og von mín og yndi.
Þessi lilja er mín lifandi trú!
Og þó að í vindinum visni,
á völlum og engjum hvert blóm.
Og haustvindar blási um heiðar,
með hörðum og deyðandi róm.
Og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó.
Hún lifir í hug mér sú lilja
og líf hennar veitir mér fró.
Þessi lilja er mér gefin af guði
hún grær við hans kærleik og náð,
að vökva hana ætíð og vernda
er vilja míns dýrasta ráð.
Og hvar sem að leiðin mín liggur
þá liljuna í hjartastað ber,
en missi ég liljuna ljúfu
Þá lífið er horfið frá mér.
(Þorsteinn Gíslason.)
Hvíldu í friði.
Ragnhildur Einarsdóttir.
Lilja systir var elst af okkur
systkinunum. Eftir skólagöngu í
Árskógarskóla hóf Lilja störf á
dvalarheimilinu í Skjaldarvík,
starfaði hún þar í nokkur ár, og
eignaðist þar marga góða vini.
Þaðan lá leiðin til Ísafjarðar í
„grautó“ nánar tiltekið Hús-
mæðraskólann Ósk. Á Ísafirði
kynntist hún eftirlifandi eigin-
manni sínum og hefur búið þar
síðan. Nú er skarð komið í systk-
inahópinn, engin Lilja systir á
Ísafirði. Margs er að minnast og
leitar hugur okkar á æskuslóðir í
Stærra-Árskógi, þar sem við
brölluðum ýmislegt saman og ylj-
um við okkur nú við minningarn-
ar. Þegar eitthvað stóð til í fjöl-
skyldunni var Lilja systir alltaf
mætt norður, hvort sem var ætt-
armót, afmæli eða önnur tilefni,
og ekki klikkaði hún á gjöfunum
sem iðulega voru komnar á undan
henni, því gjafmild var hún. Þú
varst einstaklega gestrisin og
vildir allt fyrir okkur gera, hafðir
gaman af að sýna og segja okkur
frá áhugaverðum stöðum á Vest-
fjörðum. Þú spilaðir á gítar á þín-
um yngri árum og hafðir þú unun
af dansi og söng, varst dugleg að
fara á tónleika og var það eitt af
því síðasta sem þú gerðir. Nú er
komið að kveðjustund, elsku
Lilja, og söknuður okkar er mik-
ill. Við kveðjum þig með þessu
lagi sem þú hélst mikið upp á.
Ég leit eina lilju í holti,
hún lifði hjá steinum á mel.
Svo blíð og svo björt og svo auðmjúk
– en blettinn sinn prýddi hún vel.
Ég veit það er úti um engin
mörg önnur sem glitrar og skín.
Ég þræti ekki um litinn né ljómann
en liljan í holtinu er mín!
Þessi lilja er mín lifandi trú,
þessi lilja er mín lifandi trú.
Hún er ljós mitt og von mín og yndi.
Þessi lilja er mín lifandi trú!
Og þó að í vindinum visni,
á völlum og engjum hvert blóm.
Og haustvindar blási um heiðar,
með hörðum og deyðandi róm.
Og veturinn komi með kulda
og klaka og hríðar og snjó.
Hún lifir í hug mér sú lilja
og líf hennar veitir mér fró.
Þessi lilja er mér gefin af guði
hún grær við hans kærleik og náð,
að vökva hana ætíð og vernda
er vilja míns dýrasta ráð.
Og hvar sem að leiðin mín liggur
þá liljuna í hjartastað ber,
en missi ég liljuna ljúfu
Þá lífið er horfið frá mér.
(Þorsteinn Gíslason.)
Elsku mamma, Erlingur,
Reynir, Sigurður, Sólveig og fjöl-
skyldur. Innilegar samúðar-
kveðjur til ykkar allra.
Kveðja. Þín systkini,
Jens, Margrét, Stefán,
Signý, Jónas og Brynja.
Í dag kveðjum við Lilju
frænku í hinsta sinn. Lilja flutti
til Ísafjarðar þegar hún kom í
Húsmæðraskólann Ósk og
nokkru áður hafði ég farið í hús-
mæðraskólann og ílengdumst við
báðar fyrir vestan. Við vorum
tvær sveitastelpur að norðan, úr
Hörgárdal og af Árskógsströnd,
sem leituðum á vit ævintýranna
fyrir vestan. Vegna erfiðra sam-
gangna á yngri árum var sam-
gangur ekki mikill á milli heimila
mæðra okkar, systranna Helgu
og Sigrúnar Jensdætra frá
Stærra-Árskógi.
Stuttu eftir að Lilja lauk
húsmæðraskólanum kynntist hún
Ella sínum, ég hafði þá kynnst
Sigga mínum og við eignast okk-
ar heimili. Mikill samgangur var
á milli okkar, fjölskyldurnar hitt-
ust í afmælum, á jólum og við
Anna Lilja
Sigurðardóttir
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermannÚtfararþjónusta
Hafnarfjarðar
Sími: 565-9775
www.uth.is. uth@simnet.is.
Við sjáum um alla þætti útfararinnar.
Seljum kistur,krossa og duftker hvert
á land sem er.
Persónuleg þjónusta.
Stapahrauni 5 Hafnarfirði.
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
STOFNUÐ 1996
STOFNUÐ 1996
„Lækkar lífdaga sól.“ Nú er
Anna frænka mín búin að kveðja
þennan heim eftir erfið veikindi.
Alltaf bregður manni við svona
fréttir þótt vitað sé í hvað stefnir.
Við Anna höfum þekkst frá því
við vorum litlar og hún var að
koma í sveitina til okkar og við
lékum okkur saman, þá var
margt skemmtilegt brallað. Bak-
aðar þessar fínu drullukökur, far-
ið út að renna sér, farið í berjamó,
það var alltaf nóg að gera hjá
Anna
Rögnvaldsdóttir
✝ Anna Rögn-valdsdóttir
fæddist í Reykjavík
1. nóvember 1953.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans 11. desember
2014.
Útför Önnu fór
fram frá Fossvogs-
kirkju 19. desember
2014.
okkur. Í gegnum
árin höfum við átt
margar skemmti-
legar frænkustu-
ndir og var yfirleitt
mikið hlegið. Stund-
um var Ragna syst-
ir Önnu með okkur
og var oft glatt á
hjalla. Anna hafði
gaman af söng og
starfaði hún einn
vetur hjá okkur í
Skagfirsku söngsveitinni. Var
hún frábær félagi og gott að njóta
söngkrafta hennar þennan vetur
með okkur. En ég trúi því að
henni líði vel núna þar sem hún er
og þarf ekki að glíma við veik-
indin lengur. Vil ég kveðja
frænku mína með þessu ljóði eftir
Bubba Morthens.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum lifum í trú