Morgunblaðið - 27.12.2014, Síða 41

Morgunblaðið - 27.12.2014, Síða 41
– því myndir þeirra segja meira en þúsund orð. Þannig á að hugsa veiðibækur. Myndir fyrst, skrifa svo. Það er gaman að skoða flottar veiðimyndir en þær eru bara of fá- ar í þessari bók. Góðu myndirnar og textinn falla í skuggann á ódýru leiðinni sem var farinn sem er mið- ur því þetta hefði geta orðið svo miklu betri bók. Höfundurinn Guðmundur Guð- jónsson, höfundur bókarinnar. MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2014 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Plötur eiga það til að koma útóvænt um þessar mundir,viljandi sem óviljandi. Þessi tíska hefur fært okkur eitt stykki U2 plötu, sem var aukinheldur – í einhverjum tilfellum – óvelkomin og nú plötu Madonnu, eða prufu- upptökur af henni, en Madonna segir að um leka sé að ræða og er trítilóð. Mig grunar þó að hún viti lengra en nef hennar nær, kynning- armeistarinn sem hún er. Ný plata D‘Angelo ber þó ekkert af þessu með sér. Ekki nóg með að henni hafi verið slengt út í fullu samráði við listamanninn heldur hefur henni auk þess verið tekið fagnandi af lærðum sem leikum. Bið og bið D‘Angelo? Hver er það? kann einhver að spyrja. Rifjum það upp og setjum merkilegheit útgáfunnar í samhengi. Það var árið 2000, eftir útkomu Voodoo, sem rætt var um D‘Angelo sem helstu vonarstjörnu framsækinnar r og b tónlistar. Síð- sálartónlist hans var hrífandi, þar sem gildi og fagurfræði klassískrar tónlistar af því taginu var splæst saman við hipp hopp og aðrar sam- tímahræringar í dægurtónlist- armenningu blökkumanna. Hann stóð nú jafnfætis Erykuh Badu, Lauryn Hill og viðlíka listamönnum hvað virðingu og vinsældir varðaði. Um aðra plötu hans var að ræða og fólk hafði beðið í ofvæni en frum- burðurinn, hin stórgóða Brown Sugar, hafði komið út fimm árum fyrr, sem er augnablik ef miðað er við þessa seinni bið. Og þá hófst önnur bið. Biðin of- urlanga. Okkar maður gestaði stundum hjá öðrum á þessari eyði- merkurgöngu meðfram því að glíma við áfengissýki, efaðist um eigið ágæti sem listamanns og hann hryllti við þeim kyntáknskröfum sem á hann voru settar. Nýja platan var auðvitað alltaf „alveg að koma“ og hvíslað var um plötuna James River árið 2009. Það var 15. desember síðastlið- inn sem platan Black Messiah kom Fögnuð megn- an færi ég... Framsýni D‘Angelo, sem hér sést á tónleikum, vinnur með arfinn en stýrist af framsækni. svo út, fullbúin, og nánast með eng- um fyrirvara. Vissulega var á margra vitorði að eitthvað væri í pípunum en forsagan gaf ekki til- efni til bjartsýni. Það voru hins veg- ar samfélagslegar þreifingar, póli- tík, sem ýttu gripnum úr vör. Mótmælin í Ferguson, þar sem ung- lingspilturinn Michael Brown var skotinn til bana af lögreglunni, hreyfðu það hressilega við D‘An- gelo að síðustu vikurnar lagði hann dag og nótt við það að koma plöt- unni út sem allra fyrst. „Meistaraverk“ Viðbrögðin hafa verið með ólíkindum og orðinu „meist- araverk“ flaggað í gríð og erg af gagnrýnendum. Questlove, trymb- illinn knái og einn af helstu sam- starfsmönnum D‘Angelo, fer fögr- um orðum um þennan vin sinn sem býr yfir þessum vel þekktu eig- inleikum hinna sönnu listamanna. Meðfram styrk og framsýni fer sami skammtur af viðkvæmni og tilhneigingu til sjálfstortímingar, eins og hefur sýnt sig. Og það er sannarlega ekki verið að fara auð- veldu leiðina, platan er „þung“, lykluð og torræð, maður heyrir áhrif frá Prince og Erykhu Badu og hljóðmottan er sýrulegin, eins og hún kraumi bókstaflega. Minnst hefur verið á sígild verk eins og There‘s A Riot Goin‘ On og What‘s Going On í þessu samhengi og alls ekki að ástæðulausu. D‘Angelo vinnur mjög markvisst með arfinn, líkt og síðsálartónlistarmanna er siður en um leið – og það er tilgang- urinn sem helgar meðalið – er verið að horfa fram á við. » Vissulega var ámargra vitorði að eitthvað væri í pípunum en forsagan gaf ekki til- efni til bjartsýni. Það voru hins vegar sam- félagslegar þreifingar, pólitík, sem ýttu gripn- um úr vör  D‘Angelo snýr aftur eftir tólf ára hlé  „Svartur Messías“ með tímamótaverk? Þegar pólska tón- skáldið Frederic Chopin lést í París árið 1849, 39 ára að aldri, var dán- arorsökin sögð berklar. Lækn- irinn sem krufði líkið fjarlægði hjartað og skráði hjá sér at- hugasemdir um stækkun þess en skrif hans hafa glat- ast. Hjartað setti hans hinsvegar í krukku og var hún flutt til Póllands. Samkvæmt fréttavef BBC hefur krukkan með hjartanu verið geymd í vegg kirkju í Varsjá og við hátíðlega athöfn fyrr á árinu var hún tekin þar út og fengu sérfræðingar, meina- fræðingar og krufningalæknar, að virða hjartað fyrir sér til að reyna að geta sér til um dánarorsök þessa frægasta sonar pólsku þjóðarinnar. Þeir fengu þó ekki að krukka í krukkuna og verða getgátur þeirra því að duga. Þeir telja líklegt að berklar hafa orðið Chopin að ald- urtila – en útiloka ekki aðrar ástæð- ur. Lést Chopin úr berklum? Frederic Chopin 48 RAMMA 12 16 L THE HOBBIT 3 3D (48R) Sýnd kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 - 11 NIGHT AT THE MUSEUM 3 Sýnd kl. 1:50 - 5 - 8 BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 2 NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10:10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar 7 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar GLEÐILEG JÓL Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU BÍÓUPPLIFUN ÁRSINS!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.