Morgunblaðið - 27.12.2014, Qupperneq 41
– því myndir þeirra segja meira en
þúsund orð. Þannig á að hugsa
veiðibækur. Myndir fyrst, skrifa
svo. Það er gaman að skoða flottar
veiðimyndir en þær eru bara of fá-
ar í þessari bók. Góðu myndirnar
og textinn falla í skuggann á ódýru
leiðinni sem var farinn sem er mið-
ur því þetta hefði geta orðið svo
miklu betri bók.
Höfundurinn Guðmundur Guð-
jónsson, höfundur bókarinnar.
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 2014
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Plötur eiga það til að koma útóvænt um þessar mundir,viljandi sem óviljandi. Þessi
tíska hefur fært okkur eitt stykki
U2 plötu, sem var aukinheldur – í
einhverjum tilfellum – óvelkomin
og nú plötu Madonnu, eða prufu-
upptökur af henni, en Madonna
segir að um leka sé að ræða og er
trítilóð. Mig grunar þó að hún viti
lengra en nef hennar nær, kynning-
armeistarinn sem hún er. Ný plata
D‘Angelo ber þó ekkert af þessu
með sér. Ekki nóg með að henni
hafi verið slengt út í fullu samráði
við listamanninn heldur hefur
henni auk þess verið tekið fagnandi
af lærðum sem leikum.
Bið og bið
D‘Angelo? Hver er það? kann
einhver að spyrja. Rifjum það upp
og setjum merkilegheit útgáfunnar
í samhengi. Það var árið 2000, eftir
útkomu Voodoo, sem rætt var um
D‘Angelo sem helstu vonarstjörnu
framsækinnar r og b tónlistar. Síð-
sálartónlist hans var hrífandi, þar
sem gildi og fagurfræði klassískrar
tónlistar af því taginu var splæst
saman við hipp hopp og aðrar sam-
tímahræringar í dægurtónlist-
armenningu blökkumanna. Hann
stóð nú jafnfætis Erykuh Badu,
Lauryn Hill og viðlíka listamönnum
hvað virðingu og vinsældir varðaði.
Um aðra plötu hans var að ræða og
fólk hafði beðið í ofvæni en frum-
burðurinn, hin stórgóða Brown
Sugar, hafði komið út fimm árum
fyrr, sem er augnablik ef miðað er
við þessa seinni bið.
Og þá hófst önnur bið. Biðin of-
urlanga. Okkar maður gestaði
stundum hjá öðrum á þessari eyði-
merkurgöngu meðfram því að
glíma við áfengissýki, efaðist um
eigið ágæti sem listamanns og hann
hryllti við þeim kyntáknskröfum
sem á hann voru settar. Nýja platan
var auðvitað alltaf „alveg að koma“
og hvíslað var um plötuna James
River árið 2009.
Það var 15. desember síðastlið-
inn sem platan Black Messiah kom
Fögnuð megn-
an færi ég...
Framsýni D‘Angelo, sem hér sést á tónleikum, vinnur með arfinn en stýrist af framsækni.
svo út, fullbúin, og nánast með eng-
um fyrirvara. Vissulega var á
margra vitorði að eitthvað væri í
pípunum en forsagan gaf ekki til-
efni til bjartsýni. Það voru hins veg-
ar samfélagslegar þreifingar, póli-
tík, sem ýttu gripnum úr vör.
Mótmælin í Ferguson, þar sem ung-
lingspilturinn Michael Brown var
skotinn til bana af lögreglunni,
hreyfðu það hressilega við D‘An-
gelo að síðustu vikurnar lagði hann
dag og nótt við það að koma plöt-
unni út sem allra fyrst.
„Meistaraverk“
Viðbrögðin hafa verið með
ólíkindum og orðinu „meist-
araverk“ flaggað í gríð og erg af
gagnrýnendum. Questlove, trymb-
illinn knái og einn af helstu sam-
starfsmönnum D‘Angelo, fer fögr-
um orðum um þennan vin sinn sem
býr yfir þessum vel þekktu eig-
inleikum hinna sönnu listamanna.
Meðfram styrk og framsýni fer
sami skammtur af viðkvæmni og
tilhneigingu til sjálfstortímingar,
eins og hefur sýnt sig. Og það er
sannarlega ekki verið að fara auð-
veldu leiðina, platan er „þung“,
lykluð og torræð, maður heyrir
áhrif frá Prince og Erykhu Badu og
hljóðmottan er sýrulegin, eins og
hún kraumi bókstaflega. Minnst
hefur verið á sígild verk eins og
There‘s A Riot Goin‘ On og What‘s
Going On í þessu samhengi og alls
ekki að ástæðulausu. D‘Angelo
vinnur mjög markvisst með arfinn,
líkt og síðsálartónlistarmanna er
siður en um leið – og það er tilgang-
urinn sem helgar meðalið – er verið
að horfa fram á við.
» Vissulega var ámargra vitorði að
eitthvað væri í pípunum
en forsagan gaf ekki til-
efni til bjartsýni. Það
voru hins vegar sam-
félagslegar þreifingar,
pólitík, sem ýttu gripn-
um úr vör
D‘Angelo snýr aftur eftir tólf ára hlé
„Svartur Messías“ með tímamótaverk?
Þegar pólska tón-
skáldið Frederic
Chopin lést í París
árið 1849, 39 ára
að aldri, var dán-
arorsökin sögð
berklar. Lækn-
irinn sem krufði
líkið fjarlægði
hjartað og skráði
hjá sér at-
hugasemdir um
stækkun þess en skrif hans hafa glat-
ast. Hjartað setti hans hinsvegar í
krukku og var hún flutt til Póllands.
Samkvæmt fréttavef BBC hefur
krukkan með hjartanu verið geymd í
vegg kirkju í Varsjá og við hátíðlega
athöfn fyrr á árinu var hún tekin þar
út og fengu sérfræðingar, meina-
fræðingar og krufningalæknar, að
virða hjartað fyrir sér til að reyna að
geta sér til um dánarorsök þessa
frægasta sonar pólsku þjóðarinnar.
Þeir fengu þó ekki að krukka í
krukkuna og verða getgátur þeirra
því að duga. Þeir telja líklegt að
berklar hafa orðið Chopin að ald-
urtila – en útiloka ekki aðrar ástæð-
ur.
Lést Chopin
úr berklum?
Frederic Chopin
48
RAMMA
12
16
L
THE HOBBIT 3 3D (48R) Sýnd kl. 2 - 4 - 5 - 7 - 8 - 10 - 11
NIGHT AT THE MUSEUM 3 Sýnd kl. 1:50 - 5 - 8
BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 2
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
7
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
GLEÐILEG JÓL
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
BÍÓUPPLIFUN ÁRSINS!