Fréttatíminn - 01.05.2015, Qupperneq 4
N orræn þjóðernishyggja hefur verið rannsökuð í bútum, þ.e í hverju landi fyrir sig, en það hefur enn
ekki verið framkvæmd nein samanburðar-
rannsókn,“ segir stjórnmála-
fræðingurinn Eiríkur Berg-
mann en hann hefur gert
samning við alþjóðlegu útgáf-
una Palgrave McMillan um
útgáfu á fræðibók um sögu
hægri-öfgaflokka og þjóðern-
ishyggju á Norðurlöndunum.
„Ég mun grafast fyrir um það
hvort norræn þjóðernishyggja
sé frábrugðin öðrum og hvort
það sé til eitthvað sem heitir sam-norræn
þjóðernishyggja.“
Þjóðernispopúlismi í Framsókn
Eiríkur segir Ísland ekki hafa haft neinn
hreinræktaðan þjóðernispopúlískan flokk
á þingi þó vissulega hafi verið til nokkrar
hreyfingar.
„Það eru hreyfingar eins og gömlu nas-
istaflokkarnir og svo Frjálslyndi flokk-
urinn sem keyrði í gegn slíka stefnu frá
nóvember 2006 og fram að kosningum
vorið 2007. Og svo eru líka slík element
í Framsóknarflokknum núna, án þess
að maður slái því föstu, að minnsta kosti
ekki fyrirfram, að flokkurinn sé í heild
sinni þess eðlis,“ segir Eiríkur sem hef-
ur í rannsóknum sínum notað skapalón
sem eru tíu þættir sem popúlískir flokkar
beita. Hann segir Framsóknarflokkinn
beita þó nokkrum þessara aðferða. „Það
er til dæmis andstaða við fjölmenningar-
samfélag, andstaða við innflytjendur og
þá sér í lagi múslíma, það er tilbúningur
á elítu sem slíkir flokkar setja sig svo í
andstöðu við, það er orðfæri sem skiptir
skýrt á milli okkar sem tilheyrum hinum
skilgreinda hópi sem ber að vernda og svo
þeirra sem eru fyrir utan hinn skilgreinda
hóp og ber að verjast. Svo er alið á leið-
togadýrkun, hinn sterki leiðtogi sem á að
vera í sérstökum tengslum við alþýðuna.
Einföld svör við flóknum spurningum og
þar fram eftir götum. Popúlískir flokkar
eru heldur ekkert of uppteknir af innri
mótsögnum, eins og að lækka skatta og
auka ríkisútgjöld.“
Andlit öfganna mýkra í dag en áður
Eiríkur segir þessar hugmyndir alltaf
hafa verið til staðar í öllum norrænum
samfélögum en þær komi upp á yfirborðið
við misjafnar aðstæður, en nú gætum við
verið að horfa upp á þriðju bylgju popúl-
isma í kjölfar fjármálakrísunnar. „Fyrsta
bylgjan kom á áttunda áratugnum í kjöl-
farið á auknum innflytjendastraumi, síðan
færist þetta yfir í andstöðu við múslíma og
fram koma snoðinkollahreyf-
ingar á tíunda áratugnum
en það tengdist líka stækk-
un Evrópusambandsins og
auknum straumi fólks í kjöl-
farið. Svo hefur þriðja bylgj-
an nú risið í kjöfar fjármála-
kreppunar. Það eru yfirleitt
þjóðfélagshræringar sem
framkalla stuðning við slík-
ar hreyfingar en það sem er
öðruvísi við þessa flokka núna er að þeir
hafa mýkra andlit. Þeir hafa náð að verða
meginstraumsþátttakendur í stjórnmálum
í stað þess að standa fyrir utan eins og
áður. Þetta eru ekki lengur snoðinkolla-
hreyfingar sem öskra á kerfið heldur eru
þetta jakkafataklæddir menn sem eru inn-
an kerfisins.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Straumurinn
liggur til
Fréttatímans
Ja
n.
-m
ar
s
20
11
6
1%
Ja
n.
-m
ar
s
20
15
6
5%
„Þetta eru
ekki lengur
snoðinkolla-
hreyfingar
sem öskra á
kerfið heldur
eru þetta
jakkafata-
klæddir menn
sem eru innan
kerfisins.“
veður Föstudagur laugardagur suNNudagur
Hægur A-lægur vindur. Sól v-lAndS,
en AnnArS SkýjAð.
HöFuðborgArSvæðið: Hægur vindur,
bjart framan af, en síðan Háskýjað.
golA AF A eðA nA, bjArt með köFlum.
Smá vætA, einkum S-lAndS.
HöFuðborgArSvæðið: Þurrt og sól
annað veifið.
vAxAndi A- og nA-átt, SkAFrenningur
á FjAllvegum n-til.
HöFuðborgArSvæðið: Þurrt og bjart,
en síðan skýjað
kemur allt á endanum
að loknum skakviðrasömum og
fremur köldum aprílmánuði eru vonir
landsmanna um blíðan maí. lítur út
fyrir að það fari hægt hlýnandi. Þó
frysti víða að næturlagi yljar sólin
á daginn þar sem hún nær í gegn.
veigalítil lægðadrög
verða hér á sveimi og
frá þeim lítilsháttar
úrkoma, jafnvel snjór
ef hittir á nóttina.
á sunnudag hvessir
heldur af a og na
þegar mildara loft
sækir að úr suðri.
4
0 -1
2
3
5
1 0
0
4
6
0 0
0
5
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
stjórNmál eiríkur BergmaNN stjórNmálaFræðiNgur
Segir Framsókn
sýna einkenni
þjóðernispopúlisma
Andstaða við fjölmenningarsamfélag, andstaða við innflytjendur, leið-
togadýrkun og einföld svör við flóknum spurningum eru klassísk dæmi
um þjóðernispopúlisma. eiríkur bergmann stjórnmálafræðingur sér slík
dæmi í Framsóknarflokknum. Eiríkur hefur gert samning við útgáfurisann
Palgrave mcmillan um útgáfu á næstu bók sinni sem mun fjalla um sögu
þjóðernishyggju og hægri-öfga flokka á Norðurlöndunum.
eiríkur segir að greina
megi þjóðernispop-
úlisma í framsóknar-
flokknum núna, án þess
þó að slá því föstu að
flokkurinn sé í heild
sinni sé þess eðlis.
eiríkur bergmann
stjórnmálafræðingur.
VÍS hagnast um 733 milljónir
vátryggingafélag íslands skilaði hagnaði
upp á 733 milljónir króna á fyrsta árs-
fjórðungi 2015, en
þetta kom fram
í tilkynningu frá
félaginu. er það
öllu betri niður-
staða en á sama
tíma í fyrra þegar
fyrirtækið skilaði 14 milljóna
króna tapi.
fjármunatekjur námu 1.113 milljónum
króna samanborið við 171 milljón króna
fyrir sama tímabil í fyrra. iðgjöld námu
3.959 milljónum króna samanborið við
3.861 milljón í fyrra og nemur hækkunin
2,6%.
Sameinaður banki
vonir standa til þess að nýr, sameinaður
banki hefji starfsemi með haustinu.
bankinn mun starfa undir nýju heiti
sem verður kynnt síðar. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá mP banka og
straumi. Þar er greint frá því að stjórnir
MP banka og Straums hafi samþykkt
áætlun um samruna félaganna og hann
miðist við 31. desember 2014. samrun-
inn sé háður samþykki hluthafafundar
beggja banka, fjármálaeftirlitsins og
samkeppniseftirlitsins.
Blakhús tókst á loft í Neskaup-
stað
mildi þykir að ekki fór verr þegar stórt
uppblásið blakhús tókst á loft í nes-
kaupstað í vikunni. blakdeild Þróttar
var að undirbúa fjölmennt öldungamót
sem hefst um helgina og var langt
komin með að blása blakhúsið
upp þegar vindhviða lyfti því
upp og braut saman.
fjöldi sjálfboðaliða vann við
að reisa húsið og hreinsa af því
snjó og brá fólkinu mjög þegar
það tókst á loft. Húsið rúmar
þrjá blakvelli. ekki er vitað til
þess að neinn hafi slasast en kona sem
dróst stuttan spöl með tjaldinu sagðist
finna fyrir eymslum. Enn var snjór á
öðrum enda hússins þegar hinn endinn
byrjaði að fjúka og mögulega hefur það
komið í veg fyrir að það fyki lengra og
skemmdist. Húsið kostar fimm milljónir
króna. Mótshaldarar hyggjast flytja
tjöldin til reyðarfjarðar og blása þau
upp inni í fjarðabyggðarhöllinni.
4 ára dómur í Svíþjóð
íslensk ur karl maður á þrítugs aldri
var dæmd ur í fjög urra ára og þriggja
mánaða fang elsis vist í svíþjóð í janú ar,
en málið er sagt tengj ast því þegar
gunn ar Þór grét ars son var eft ir lýst ur af
alþjóðalög regl unni in terpol.
maður inn var dæmd ur fyr ir fíkni efna-
smygl frá Hollandi til svíþjóðar, en hann
tók á móti tösku í amster dam og kom
henni til stokk hólms. átti hann svo
að koma til íslands þann 4. októ ber á
síðasta ári, en á sama tíma var fjöldi
íslend inga í stokk hólmi vegna bar daga
gunn ars nel son ar.
vikaN sem var
Sigurður hættir
hjá ÍlS
sigurður erlingsson, forstjóri íbúðalána-
sjóðs, hefur óskað eftir því að láta af
störfum og hefur stjórn sjóðsins fallist á
uppsögn hans. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá íbúðalánasjóði til kauphallarinnar.
sigurður hefur verið forstjóri íbúðalána-
sjóðs frá árinu 2010.
4 fréttir Helgin 1.-3. maí 2015