Fréttatíminn - 01.05.2015, Blaðsíða 74
María Guðmundsdóttir ljósmynd-
ari frumsýnir nýja heimildarmynd
í Trékyllisvík.
„Þetta boð kom nokkuð
óvænt ekki fyrir svo löngu.
Okkur tókst að bregðast
skjótt við og verða við ósk-
um þeirra Abu Dhabi-manna
um að kynna íslenskar bók-
menntir og menningu,“ segir
Egill Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins.
Fjöldi framámanna í ís-
lenska bókaheiminum er á
leið til Abu Dhabi í Sam-
einuðu arabísku fursta-
dæmunum í næstu viku
á stóra bókamessu. Þar
verður Íslandi gert sér-
staklega hátt undir höfði
ár. Í hópnum verða meðal
annars metsöluhöfundur-
inn Yrsa Sigurðardóttir,
Guðmundur Andri Thors-
son, Gauti Kristmanns-
son, Áslaug Jónsdóttir,
Stefán Hjörleifsson, Guðrún
Vilmundardóttir hjá Bjarti
auk feðganna Egils Arnar
og Jóhanns Páls Valdimars-
sonar í Forlaginu.
Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Íslendingar
sækja þessa bókamessu.
„Héðan hefur farið hópur
höfunda og útgefanda. Við
höfum verið að selja bækur í
kjölfar þessara heimsókna –
Andri Snær er til að mynda
að koma út í Jórdaníu – og
við höfum keypt bækur til
þýðinga. Það er ánægjulegt
að ná útgáfusamningum á
hinu arabíska málsvæði,“
segir Egill Örn.
Bækur kynna íslenskar Bækur á hinu araBíska málsvæði
Íslendingar á bókamessu í Abu Dhabi
Egill Örn og Yrsa
Sigurðardóttir eru meðal
þeirra Íslendinga sem
sækja bókamessuna í
Abu Dhabi í næstu viku.
árneshreppur uppeldisstaður maríu Guðmundsdóttur ljósmyndara
Heimildarmynd
um æskuslóðirnar
Ljósmyndarinn
María Guðmunds-
dóttir hefur frá
árinu 2009 unnið
að heimildar-
mynd um upp-
eldisstað sinn,
Árneshrepp á
Ströndum. Hún
segir staðinn sér
mjög hjartfólginn
og taugarnar
mjög sterkar
þrátt fyrir að
hafa flutt þaðan
12 ára gömul.
María ætlar að
frumsýna mynd-
ina í félagsheimili
Árneshreppsbúa
í kvöld, föstudag-
inn 1. maí.
í myndinni Ferðin heim leiðir María Guðmunds-dóttir ljósmyndari, sem
alin var upp í þessum af-
skekktasta hreppi landsins,
áhorfendur inn í daglegt líf
og störf fólksins í hreppnum.
María kvikmyndaði megin-
hluta myndarinnar á árunum
2009-2014. „Hugmyndin var
búin að vera lengi í kollinum
á mér og taugarnar eru mjög
sterkar,“ segir María. „Hrepp-
urinn er mjög einangraður
og ekki nema 38 manns sem
búa þar allt árið um kring. Á
sumrin eru þó fleiri sem hafa
búsetu þarna,“ segir hún.
„Ég bjó þarna til 12 ára
aldurs og flutti til Reykjavíkur
árið 1953. Margir af þeim sem
ég man eftir úr barnæsku búa
í Djúpavík ennþá, en þar var
ég alin upp,“ segir hún. „Auð-
vitað eru svo yngri kynslóðir
líka, sem ég hef kynnst á
undanförnum árum og þarna
er alveg yndislegt fólk.“
María hefur safnað mynd-
efni í myndina á undanförnum
árum. „Ég hef verið að hlaupa
í þetta þegar ég hef getað og
mér líður svo vel hérna að mig
langaði varla til þess að klára
myndina,“ segir María sem er
þessa dagana á Ströndunum
og undirbýr frumsýninguna.
„Ég ætla að frumsýna í Tré-
kyllisvík og finnst það vera
skylda mín að leyfa söguhetj-
unum að sjá myndina fyrst,
áður en hún verður sýnd
annarsstaðar,“ segir María.
„Hún verður sýnd í sjónvarpi
en líklega ekki fyrr en í haust.
Þetta fólk er búið að opna líf
sitt fyrir mig og er búið að
gera alla vinnuna dásamlega,“
segir hún.
„Þetta verkefni er búið að
vera stórkostlegt í alla staði
en ég er nú ekki með aðra
mynd á prjónunum,“ segir
María. „Ég er ekki mikið fyrir
að gera margt í einu og hef
ekkert hugsað þetta lengra,“
segir hún. Vigdís Grímsdóttir
rithöfundur tók flest viðtölin í
myndinni og Anna Dís Ólafs-
dóttir gerði handritið. Heim-
ildarmyndin er framleidd af
Bláus Art og Profilm.
„Ég vona að fólki líki
myndin. Árneshreppurinn er
stórkostlegur. Harðduglegt
fólk og einangrunin er mikil,
en á vorin opnast allt,“ segir
María Guðmundsdóttir ljós-
myndari.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
74 menning Helgin 1.-3. maí 2015